Víkurfréttir - 06.09.2012, Side 23
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 23
Laus er til umsóknar staða sviðsstjóra umhverfis-, skipulags-
og byggingarmála í Sveitarfélaginu Garði og Sandgerðisbæ.
Starfssviðið nær til skipulags, - byggingar- og umhverfismála,
verkefna á sviði fasteigna sveitarfélaganna, vatnsveitu og
fráveitu, ásamt starfsemi áhaldahúsa. Sviðsstjóri umhverfis-,
skipulags- og byggingarmála annast framkvæmd byggingar-
eftirlits í sveitarfélögunum í samræmi við ákvæði skipulags-
og mannvirkjalaga, og samþykkta sveitarstjórna. Undir sviðið
heyra samgöngur og umferðarmál, viðhald gatna, húsafriðun
og brunamál.
Helstu verkefni:
• Framkvæmd og eftirfylgni skipulags- og byggingarmála
• Áætlanagerð; verkefnaáætlanir, fjárhagsáætlanir
• Stefnumótun í málaflokknum í samvinnu við kjörnar nefndir
• Umsjón með eignasjóði
• Umsjón með verklegum framkvæmdum á
vegum sveitarfélaganna
• Skráning og viðhald vegna Fasteignaskrár Íslands
og landupplýsingakerfis
• Undirbúningur funda nefnda á því sviði sem verkefnin ná til,
og ábyrgð á eftirfylgni og frágangi mála sem þar eru
til umfjöllunar
• Samræming verkefna
• Samvinna innan og utan sveitarfélaganna í málaflokknum
Hæfniskröfur og menntun:
• Háskólamenntun á sviði skipulags- og byggingarmála
sbr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010
og 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
• Góð þekking á þeim málaflokkum sem starfið nær til
• Reynsla af stjórnun verkefna og rekstri á sviði skipulags-
og byggingarmála
• Reynsla í gerð fjárhags- og verkáætlana
• Metnaður og skipulagshæfni
• Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
Staðan er laus frá 1. október nk. Launakjör eru samkvæmt
samningum stéttarfélaga við sveitarfélögin. Umsóknum skal
fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Umsóknum skal skilað
á skrifstofu Sandgerðisbæjar eða á netfangið sandgerdi@
sandgerdi.is. merkt „Byggingar- og skipulagsmál“ fyrir
15. september.
Umhverfis-, skipulags-
og byggingarmál
STARFSMAÐUR ÓSKAST
Meira í leiðinniWWW.N1.IS
N1 óskar eftir að ráða áræðinn og þjónustulundaðan
starfsmann til starfa í verslun félagsins í Keflavík.
Í starfinu felst sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskipta-
vina auk annarra tilfallandi verkefna í versluninni.
Nánari upplýsingar veitir
Stefán S. Briem, verslunarstjóri í
síma 820 9014. Áhugasamir geta
einnig sótt um starfið á www.n1.is
Fimmtudagur:
J æ j a , þ á e r
Ljósanótt liðin.
Maður er hálf-
daufur, ég vil
meira fjör en allt
verður að taka
enda. þessi hátíð
tókst sérstaklega
vel að mínu mati. Það fengu allir
eitthvað við sitt hæfi. Við eldri
borgarar störtuðum með sagna-
kvöldi eftir að skólakrakkarnir
voru búnir að sleppa þúsundum
blaðra í öl lum regnbogans
litum. Það voru dætur Sigur-
bergs skóara að segja sögur frá
því þegar þær komu fyrst til
Keflavíkur á stríðsárunum, mér
fannst þetta skemmtilega upp-
sett hjá þeim. Sonur Ernu skó
og barnabarn voru sögumenn
það mættu rúmlega 200 manns
það var alveg troðfullt hús, kaffi
og kleinur á eftir sem Sigurjón
bakari gaf okkur. Ég og dóttir
mín fórum niður í Duushús og
í bíósalnum var verið að heiðra
minningu Helga S. Jónssonar þar
sem Ellert Eiríksson og Óli gamli
Björns sögðu skemmtilegar sögur
um hann, allur salurinn sprakk
úr hlátri trekk í trekk. Eftir það
fórum við í nýja Duussalinn þar
sem yfir 50 listarmenn sýndu
verk sín.
Föstudagur:
Það var farið á Nesvelli og þar
var dansaður línudans kl. 2 um
daginn. Svo um kvöldið var svo
aftur farið á Nesvelli þar sem
var harmónikuball þar sem 90
manns mættu. Mikið stuð og allir
skemmtu sér mjög vel.
Laugardagur:
Þá var farið í hina árlegu árganga-
göngu þar sem maður hitti marga
góða og gamla vini. Það var
gaman að sjá Hafnargötuna fulla
af fólki streyma niður að hátíðar-
svæðinu og hlusta á bæjarstjór-
ann rífa af sér brandara, og segja
okkur að það sé farið að birta til í
atvinnumálum hjá okkur Suður-
nesjamönnum. Þá er ég að tala
um Helgurvíkurmálið. Ég hlakka
mjög mikið til. Eftir það var farið
að skoða myndlistarsýningar,
hönnun og sköpun af öllu tagi.
Þó maður hefði ekki pening var
manni treystandi fyrir kaupum
sem maður borgaði daginn eftir,
þetta kalla ég traust, frábært að
fólk sé farið að treysta hvert öðru
aftur. Um kvöldið fór ég aftur
niður í bæ að hlusta á tónleika á
hátíðarsvæðinu sem heppnaðist
mjög vel. Við eigum frábært tón-
listarfólk.
Sunnudagur:
Fór á frábæra sýningu Með blik í
auga þar sem var fullt hús. Krakk-
arnir sem sýndu Gærur glimmer
og gaddavír voru frábær. Ég vil
þakka öllu því fólki sem stóðu
að þessari hátíð fyrir gott starf.
Og að endingu vil ég segja að ég
hef aldrei séð aðra eins flugelda-
sýningu.
Takk, Takk, Takk.
Erna Agnarsdóttir eldri borgari.
Að lokinni Ljósanótt
LÖGFRÆÐISTOFA REYKJANESBÆJAR EHF
Hefur tekið til starfa á Hafnargötu 27a 3. hæð.
Allir velkomnir í frítt viðtal.
Sími: 421-3435
Úlfar Guðmundsson, hdl.
Fótboltasumrinu lauk hjá Víðismönnum í 3. deild karla
í fyrradag þegar liðið tapaði
grátlega eftir vítaspyrnukeppni
í 8-liða úrslitum deildarinnar.
Leiknir frá Fáskrúðsfirði hafði
sigur í Garðinum í fyrradag með
fimm mörkum gegn fjórum en
staðan eftir venjulegan leiktíma
var 2-1 fyrir Víði. Sú staða var
einnig uppi í fyrri leik liðanna
á Fáskrúðsfirði og því þurfti að
grípa til framlengingar.
Mörk Víðismanna í venjulegum
leiktíma skoruðu þeir Tómas
Pálmason og Ólafur Ívar Jónsson.
Í framlengingunni bar það helst til
tíðinda að þrír leikmenn fuku út af.
Einn frá Leikni og tveir Víðismenn.
Einar Karl Vilhjálmsson fékk tvö
gul spjöld og Björn bróðir Einars
fékk að líta beint rautt spjald. Hvor-
ugu liði tókst þó að skora og víta-
spyrnukeppni staðreynd.
Þar brást tveimur leikmanna
Víðis bogalistin en aðeins einum
frá Leikni og því fara þeir áfram í
næstu umferð.
ÍRB náði nýjum hæðum í sund-lauginni þetta árið. Á AMÍ var
ÍRB með yfirburði og vann með
1749 stigum en næst á eftir komu
Fjölnir með 959 stig og Ægir með
829. Sundmenn ÍRB voru með
hæsta hlutfall bestu tíma eða 85%
og er það hæsta hlutfall bestu
tíma hjá nokkru liði á öllum Ís-
landsmeistaramótum sem skráð
eru síðustu 6 ár.
Á tímabilinu 2011/2012 náði ÍRB
einnig 14 sundmönnum í lands-
lið, það er 8 fleiri en á tímabilinu
á undan. Á tímabilinu 2011/2012
voru 7 sundmenn sem náðu 13 Ís-
landsmetum í aldursflokkum og
einu Íslandsmeti í opnum flokki.
Árni Már Árnason lenti í 31. sæti á
Ólympíuleikunum í London með
sterku sundi en besti árangur hans
á árinu var á Mare Nostrum í Canet
þar sem hann varð í 4. sæti og bætti
Íslandsmet sitt í 50 m skriðsundi.
Árni keppti einnig á Evrópumeist-
aramótinu og var Íslandsmeistari á
ÍM50 í 50 og 100 m skriðsundi og
50 m bringusundi.
Íris Ósk Hilmarsdóttir átti afar til-
komumikið ár. Hún stimplaði sig
inn á toppinn í íslensku baksundi
þegar hún vann brons á Íslands-
meistaramótinu aðeins 13 ára
gömul, vann gull í sínum aldurs-
flokki á Aldursflokkameistaramóti
Íslands, varð Norðurlandameistari
æskunnar í 200 m baksundi á NMÆ
og fékk brons í 100 m baksundi á
sama móti. Hún vann einnig gull
á Smáþjóðaleikunum og vann ald-
ursflokkabikarinn á AMÍ.
Erla Dögg Haraldsdóttir átti fínt
ár og keppti í úrslitum bæði á
Evrópumeistaramótinu og á Mare
Nostrum. Erla var Íslandsmeistari
í 50 m laug í öllum bringusund-
sgreinum og var sundmaður ársins
hjá ÍRB og Njarðvík fyrir sund sitt
á Heimsmeistaramótinu 2011 þar
sem hún varð í 17. sæti.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson var
valinn sundmaður Keflavíkur fyrir
baksund sitt á Íslandsmeistara-
mótum 2011 og hann varð aftur Ís-
landsmeistari 2012 í öllu baksundi
og var valinn til þess að keppa fyrir
Ísland á smáþjóðaleikunum og
Mare Nostrum.
Auk þess náðu fjölmargir ungir
og efnilegir sundmenn frábærum
árangri og ljóst er að sund er í stöð-
ugri sókn í Reykjanesbæ.
Frábært ár hjá sundfólki
Víðismenn úr leik eftir
tap í vítaspyrnukeppni