Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.11.2012, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 08.11.2012, Blaðsíða 8
fimmtudagurinn 8. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR8 Undanfarnar vikur hefur því ítrekað verið haldið fram að atvinnuleysi hafi minnkað. En er það virkilega raunin? Færa má sterk rök fyrir því að skráð atvinnuleysi nái alls ekki að sýna raunmynd vandans heldur sé hann falinn að verulegu leyti. Raun at- vinnuleysi hefur alls ekki minnkað. Til að rannsaka þetta betur er hægt að skoða nokkra hagvísa. Til að byrja með má benda á að samkvæmt tölum frá Hagstofu Ís- lands hefur atvinnuþátttaka farið minnkandi ár frá ári undanfarin ár, eða frá 83% árið 2006 til 80% árið 2011, sjá meðfylgjandi mynd. Í öðru lagi má skoða tölur frá Vinnu- málastofnun Íslands sem heldur skrá yfir atvinnuleysi. Eftir skoðun á þeim þáttum sem leiða til þess að fólk færist af atvinnuleysisskrá þá kemur í ljós að stór hluti atvinnulausra féll af atvinnuleysisskrá vegna annarra ástæðna en atvinnu, eða 36% árið 2009 og 31% árið 2010. Hér er um að ræða umtalsverðan fjölda fólks því árið 2009 voru þetta um 6.151 aðilar og árið 2010 um 4.860 aðilar, samtals um 11.011 manns á tveimur árum. Það er einkum tvennt sem vekur athygli þegar þessi hópur er skoð- aður. Flestir þessara aðila hafa annað hvort flutt af landi brott eða farið í skóla, eða um 3.539 árið 2009 og um 2.270 árið 2010, samtals um 5.809 manns á tveimur árum. Þessu til staðfestingar má nefna að nýnemar í Háskóla Reykjavíkur hafa aldrei verið fleiri en síðasta haust, eða um 1.300, sjá frétt RUV 17.08.2012. Einnig hefur heildarnemendafjöldi í skólum landsins aukist verulega undanfarin ár, þar af var fjölgun í háskólanám lang mest eða úr 16.851 árið 2007 í 19.334 árið 2011, sem samsvarar um 13% hækkun eða 2.483 nemendum. En hvaða máli skiptir þetta svo sem? Atvinnuleysi er eitt mesta böl sem þjóðin glímir við. Án atvinnu er ekki hægt að bjarga sér, greiða skuldir og kaupa nauðsynjar fyrir heimilið. Óá- sættanlegt er að fjöldi fólks, svo þús- undum skipti, sé skammtað úr hnefa atvinnuleysisbætur til að lifa af. Falskar upplýsingar og falið atvinnu- leysi gefa yfirvöldum röng skilaboð sem fyrir vikið skynja ekki hve brýnt það er að fjölga störfum í landinu. Þjóðin finnur það á eigin skinni að gera þarf verulega betur í að fjölga störfum í landinu en gert hefur verið undanfarin ár. Betur má ef duga skal. Magnús Jóhannesson Hjólið er gjarnan talin ein merkasta uppgötvun mannkynssögunnar, enda erfitt að ímynda sér heiminn án hjólsins. Orðtakið „að finna upp hjólið“ er meitlað í tungu- mál okkar og lýsir gjarnan uppgötvun í daglegu lífi sem menn viðurkenna þó að sennilega hafi verið gerð áður. Margt er enn á huldu um hverjir fundu upp hjólið, en fornleifa- fræðingar leiða þó líkur að því að það hafi verið fundið upp fyrir nærri 10.000 árum einhvers staðar í Asíu. Heiðurinn af uppgötvuninni hefur yfirleitt verið veittur Súmerum, framsæknu menningarsamfélagi í Mesópótamíu, sem einnig voru fyrstir til að tileinka sér ritmál og notuðu til þess fleygrúnir. Elsta hjól sem fundist hefur á þessum slóðum er um 5.500 ára gamalt. Ef horft er á hjól, býst maður við hreyfingu. Hjól sem ekki snýst hefur hvorki upphaf né endi. Um leið og hjólið snýst fer atburðarásin af stað oftast áfram, en sjaldnar afturábak. Hjól sem ekki snýst táknar kyrrstöðu. Ritari þessa lína hafði lengi gengið fram hjá táknrænu hjóli kirkjuklukkunnar sem um árabil hafði verið í kyrrstöðu eins og áður hefur verið getið um hér í pistli. Leiddar voru líkur að því að kyrrstaða þessa hjóls væri ástæða þess að í samfélagi okkar ríkti einnig kyrrstaða og doði. Hjól samfélagsins voru einnig í kyrrstöðu, þökk sé hruninu mikla og löngu fyrr. Það þótti því brýnt verkefni að koma klukkuhjólinu á snúning aftur, ef hér ætti ekki að ríkja kyrrstaða áfram. Það var því leitað til Rótary- klúbbs Keflavíkur um stuðning fyrir verkefnið. Hugmyndafræði Rótary byggir á ríflega 100 ára gamalli hugsjón eins manns, Paul Harris, sem vildi safna saman ólíkum starfstéttum til að deila reynslu sinni hverri fyrir annarri um leið og þær tækju þátt í samfélagsverkefnum með það að markmiði að bæta umhverfið og heiminn allan. Fyrir tilstuðlan þessa félagsskapar hefur lömunarveiki verið nær útrýmt í heiminum. Auðkenni (logo) rotarý síðan 1924 er hjólið, með 24 tönnum og 6 pílárum, tákn hreyfingar framávið. Í miðju hjólsins er skráargat, tákn velvilja og þjónustu við samfélagið. Það kann að þykja tilviljunarkennt að 4 dögum eftir að kirkjuklukkan fór aftur að ganga lýsti Gylfi Zoega hagfræðingur því yfir í fjölmiðlum að hrunið væri á enda og hjólin aftur farin að snúast. Litlu vísarnir þrír sem til samans höfðu stöðvast á 666, tákni antikristusar fóru nú að þokast af stað aftur. Ekki löngu síðar var hafist handa við bygg- inu öldrunardeildar á Nesvöllum, bæjarstjóri taldi víst að álverið í Helguvík tæki fljótlega til starfa, árangur nemenda í grunnskólum á samræmdum prófum er til fyrir- myndar og nú er verið að reisa risa fiskeldisstöð úti í Höfnum. Kirkjan sem hýsir umræddar klukkur klæðist nú nýju slöri, endurskapað eftir upprunalegu útliti hennar. Einnig það er merki þess að samfélagið hreyfist nú aftur í takt við úrverkið umtalaða. Kannski þurfti aðeins að koma kirkjuklukkunni af stað aftur. Konráð Lúðvíksson Nú þegar við sjáum til lands eftir endurreisn efnahags og samfélags frá stórkostlegu efnahags- hruni þurfum við að varða leiðina að stöðugum hag- vexti til framtíðar. Þar er þrennt sem skiptir mestu. Menntun og hagvöxtur Til stuðnings öflugu atvinnulífi þarf öfluga skóla. Því þarf að styrkja menntastofnanir til góðra verka sem skila sér ríkurlega til samfélagsins til langs tíma. Á Suðurnesjum er kjölfestan Fjöl- brautaskóli Suðurnesja þar sem um 1.100 Suðurnesjamenn stunda nám. Keilir á Ásbrú, Fisktækniskólinn í Grindavík, MSS í Reykjanesbæ og Þekkingarsetrið í Sandgerði eru allt stofnanir sem styrkja samfélagið og það gera tónlistarskólarnir einnig. Nýsköpun og sprotar Nýsköpun er annar mikilvægur þáttur og mun skipta miklu máli fyrir atvinnulífið á næstu árum. Nú þegar eru styrkir veittir til nýsköp- unarfyrirtækja vegna rannsóknar og þróunar og rannsóknar- og tæknisjóðir verða efldir á árinu 2013 með veiðigjaldinu. Sem fjár- mála- og efnahagsráðherra setti ég af stað vinnu í ráðuneytinu við að undirbúa frumvarp um skattaafslátt til þeirra sem fjárfesta vilja í nýsköp- unarfyrirtækjum. Þegar allt þetta vinnur saman ásamt hugmyndaauðgi og krafti heimamanna þá munu nýsköpunarfyrirtækin blómstra og veita fjölbreytt atvinnutækifæri. Mörg þeirra munu skapa verðmæt störf og verðmætar vörur ef þau fá viðeigandi stuðning. Útflutningur og arður Í þriðja lagi þurfum við að huga vel að þeim greinum sem við byggjum útflutning okkar helst á. Þær eru undirstaða hagvaxtar. Vinna þarf markvisst að því að út- flutningsgreinarnar skili auknu fé til samfélagsins. Allt eru þetta atvinnugreinar sem lifa á íslenskri náttúru og auðlindum hennar. Ferðamannaiðnaðurinn, orkufyrirtækin í gegnum stóriðjuna, útgerðin og fiskvinnslan. Í þjóðar- atkvæðagreiðslunni um nýja stjórnarskrá komu fram skýr skila- boð um auðlindir í þjóðareign. Það gerir um leið þá kröfu að þjóðin njóti arðseminnar sem auðlindirnar skapa og að ekki verði gengið á þær með ósjálfbærum hætti. Suðurnesin og tækifærin Suðurnesin hafa allt til að bera sem vænlegur búsetukostur. Hér eru greiðfærir vegir og samgöngur góðar, ágætar hafnir og alþjóðaflug- völlur. Náttúrufegurð og jarðvangur innan seilingar. Góðir skólar og íþróttastarf. Styrkleikar svæðisins eru ótvíræðir. Við þurfum að laða að fyrirtæki sem veita fjölbreytt og verðmæt störf. Umhverfið og innviðirnir eru til staðar. Góð sam- vinna sveitarfélaganna á Suður- nesjum mun greiða fyrir því að hagvöxtur svæðisins aukist. Góð samvinna ríkis og sveitarfélaga mun einnig vinna að því marki. Oddný Harðardóttir. Mannlífið á Suðurnesjum er fjölbreytt og litríkt. Þar býr kraftmikið og skapandi fólk sem hefur mismunandi skoðanir á hinum ýmsu málum. Þegar Suður- nesjamenn ræða málin kemur þó fljótlega í ljós að á flestum þeirra er það tvennt sem brennur hvað heitast. Annars vegar eru það atvinnumálin og hins vegar skuldastaða heimil- anna. Þetta þarf það fólk að skilja sem tekur það vandasama hlutverk að sér að vera fulltrúar Suðurnesja- manna á Alþingi. Þetta eru málin sem verða á dagskrá stjórnmálanna næstu árin. Heilbrigt og öflugt atvinnulíf er undirstaða alls annars í samfélaginu. Jöfnuður og velferð byggja á því að fólk hafi vinnu. Undanfarin 10 ár hef ég starfað á vettvangi sveitarstjórnarmálanna á Suðurnesjum sem bæjarfulltrúi í Sandgerði og síðasta árið sem for- maður Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Það er m.a. vegna þeirrar reynslu og þekkingar sem ég hef aflað mér á þessum tíma sem ég treysti mér til að gefa kost á mér í 2.-3. sæti í flokksvali Sam- fylkingarinnar í Suður- kjördæmi sem fer fram 16.-17. nóvember. Ég þekki hvað það er sem brennur á Suðurnesjamönnum og treysti mér til að vera mál- svari þeirra sem og annarra íbúa kjördæmisins á Alþingi Íslendinga. Þeir íbúar Suðurkjördæmis 16 ára og eldri sem eru meðlimir í Samfylkingunni eða skrifa undir stuðningsyfirlýsingu inni á heimsíðu flokksins fyrir miðnætti í kvöld geta tekið þátt í að velja efstu menn á lista fyrir þingkosningar í vor. Nú gefst í raun tækifæri til að hafa áhrif á það hvaða einstaklingar það eru sem veljast til ábyrgðarstarfa fyrir þjóðina. Ég er reiðubúinn til starfa. Ólafur Þór Ólafsson frambjóðandi í 2.-3. sæti í forvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi n Oddný harðardóttir skrifar: Hagvöxtur til framtíðar n Magnús JóhannessOn skrifar: Falið atvinnuleysi n ólafur Þór ólafssOn skrifar: Suðurnesjamenn geta haft áhrif n kOnráð lúðvíkssOn skrifar: Um rotarý, kirkjuklukkuna og hjólið vf@vf.isbréf til blaðsins

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.