Víkurfréttir - 08.11.2012, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 8. nóvember 2012 21
V ið erum búin að vera að hittast í nokkurn tíma og líður vel saman.
Förum í leikhús, á tónleika, horfum á
bíómyndir og borðum góðan mat.
Fórum á Bond í vikunni og út að borða.
Mér leið vel og á leiðinni heim er ég eitt-
hvað hugsi og segi áður en ég veit af:
hugsaðu þér, núna erum við búin að vera
saman í fjóra mánuði!
Það fylgdi þögn í kjölfarið, óþægileg þögn.
Ég hugsaði: ætli það hafi farið
í taugarnar á honum að ég hafi
sagt þetta. Honum finnst örugg-
lega eins og ég sé að taka þessu of
alvarlega. Kannski finnst honum
þetta vera orðin of mikil skuld-
binding.
Hann hugsar: fjórir mánuðir, vá
hvað tíminn líður.
Ég hugsa: já ég er nú heldur ekk-
ert svo viss um að ég vilji eitt-
hvað alvarlegt samband. Ég væri
alveg til í að halda frjálsræði mínu,
þetta gerist allt svo hratt. Og hvað,
höldum áfram svona og áður en
við vitum af þá er hann fluttur inn
með fermingarlampann sinn, tengdó í mat
og mér finnst ég ekki einu sinni þekkja
manninn almennilega.
Hann: úff það þýðir að það er kominn
nóvember og ég átti að láta skoða bílinn í
september. Ég var búinn að heita sjálfum
mér að ég mundi ekki borga vanrækslu-
gjald framar.
Ég: sé á honum að hann er pirraður, þekki
þennan svip. En er ég mögulega að lesa
vitlaust í þetta. Kannski vill hann meiri
alvöru í þetta samband - meiri skuldbind-
ingu og er hræddur við höfnun frá mér.
Æ greyið.
Hann blótar sjálfum sér í huganum: oh,
og ég veit að það verður gerð athugasemd
varðandi handbremsuna, verð að láta laga
hana ef ég ætla að fá skoðun. Þarf líka að
kaupa ný vetrardekk þannig að við erum
að tala um tugir þúsunda í útgjöld vegna
bílsins.
Ég fæ samviskubit: æ, hann er reiður sem
ég skil reyndar vel. Það er ekki þægilegt
að vera hafnað - been there, done that! En
hvað get ég gert, ég er bara ekki viss um að
ég vilji endilega fara út í meiri skuldbind-
ingu. Hann er yndislegur og allt það en
verður maður ekki að vera alveg viss!
Hann reiknar þetta saman í huganum:
dekkin ein og sér gætu kostað um 80.000
kr. - oh þetta er brjálæði og svona rétt fyrir
jólin.
Ég: skil ekki sjálfa mig stundum - eftir
hverju er ég að bíða, að prinsinn á hvíta
hestinum komi. Hér sit ég við hliðina á
þessum yndislega manni sem mér finnst
svo gaman að vera í kringum og hann
niðurbrotinn því ég er bara sjálfselsk kona
með óraunhæfa rómantíska ævintýra-
drauma.
Hann mundi allt í einu eftir auglýsingu á
FB ,,Dekk til sölu, hagstætt verð“. Tékka á
þessu um leið og ég kem heim.
Ég verð að segja eitthvað við hann: við
verðum að tala saman!
Hann hrekkur aðeins við: já er það, já ok.
Ég horfi djúpt í augu hans: æ fyrirgefðu,
kannski átti ég aldrei að segja þetta, oh
ég er svo mikill bjáni stundum. Ég fór að
gráta.
Hann horfir á mig, eitt spurningarmerki:
bíddu, bíddu, hvað er að?
Ég rétt næ að stama út úr mér, inn á milli
ekkasoganna: æ ég er bara svo mikið fífl
eitthvað. Veit alveg að það er enginn prins
og svo sannarlega enginn hestur. Hvað er
eiginlega málið.
Hann áfram eitt spurningarmerki: enginn
hestur?
Ég: finnst þér ég algjört fífl!
Hann fljótur að svara: NEI alls ekki.
Ég þurrka mér um augun: held ég þurfi
bara smá tíma til að hugsa þetta allt - gerist
eitthvað svo hratt.
Hann er hugsi smá stund en segir svo: já
já ég skil.
Ég: æ takk, þú ert svo skilningsríkur!
Hann: já bara takk sömuleiðis!
Við kveðjumst. Ég er gjörsamlega búin á
því andlega og hringi í þrjár vinkonur og
við förum yfir þessa erfiðu stöðu.
Hann fer heim, horfir á golf í sjónvarpinu
og kíkir svo á dekk á netinu. Hann er með-
vitaður um að það var eitthvað stórundar-
legt að gerast þarna í bílnum. Hefur ekki
hugmynd um hvað það var og sendir vini
sínum sms fyrir svefninn: alls ekki fara
með konuna á Skyfall, myndin hefur ein-
hver stórundarleg áhrif á konur!
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa
Fylgstu með mér
www.facebook.com/Hamingjuhornid
FRÉTTIR
Sambandsspillirinn BOND!
ANNA LÓA
ÓLAFSDÓTTIR
SKRIFAR
HamIngjUHoRnIð
Anna Lóa
Hann fer heim, horfir
á golf í sjónvarpinu
og kíkir svo á dekk á
netinu.
Reykjanesbær og Brynja, sem er hússjóður Öryrkjabanda-
lags Íslands, gengu nýverið frá
samningi um byggingu sex íbúða
húss fyrir fatlaða að Suðurgötu 19
í Reykjanesbæ. Bygging hússins er
hafin og gert er ráð fyrir að íbúar
flytji í nýjar íbúðir næsta sumar.
Öryrkjabandalagið byggir húsið
en Reykjanesbær skuldbindur sig
til að útvega leigjendur að íbúð-
unum. Hjördís Árnadóttir, félags-
málastjóri Reykjanesbæjar, segir
það lítið mál og þörf sé fyrir fleiri
íbúðir fyrir fatlaða og öryrkja í
Reykjanesbæ.
Þegar málefni fatlaðs fólks fóru frá
ríkinu til sveitarfélaga voru gerðar
miklar breytingar á lagaumhverfi
og reglugerðum sem í raun kalla á
að sveitarfélögin vinni miklu betur
að málaflokknum en ríkið gerði,
m.a. í búsetumálum fatlaðs fólks.
Það þykir orðið barn síns tíma að
búa á herbergi í sambýlum eins og
tíðkast mjög víða en á sínum tíma
þótti það mikil framför í stað þess
að búa á stofnunum. Víkurfréttir
ræddu við Hjördísi Árnadóttur um
búsetumál fatlaðra einstaklinga í
Reykjanesbæ.
Það er mjög skýrt í lögum að fatlaðir
séu í búsetu við sitt hæfi og þurfi
ekki að deila öllu með öðrum og
það á einnig við fólk sem fær sólar-
hrings þjónustu. Í Reykjanesbæ eru
þrjú búsetuúrræði. Eitt af þeim er
alveg í takti við nútímann, en það
eru ný raðhús í Seljudal í Dalshverfi
í Innri Njarðvík. Þar er boðið upp á
sólarhringsþjónustu.
Hin tvö úrræðin í Reykjanesbæ eru
herbergjasambýli í Móahverfinu
í Njarðvík. Að sögn Hjördísar er
annað þeirra mjög ásættanlegt, en
það hús er byggt utanum þarfir
þeirra einstaklinga sem þar búa og
þurfa sérhæfða þjónustu. Þriðja úr-
ræðið er íbúðarhús þar sem skjól-
stæðingar hafa sín herbergi en deila
svo sameiginlega eldhúsi, snyrt-
ingu og stofu. Ríkið á þá eign en við
flutning málefna fatlaðra til sveitar-
félaga var ákveðið að Reykjanesbær
myndi leigja húsið til ákveðins tíma
eða þar til ný búsetuúrræði yrðu
til fyrir þá íbúa. Það úrræði er sex
íbúða hús við Suðurgötu 19.
Reykjanesbær ákvað að fara ein-
földustu leiðina og setti sig í sam-
band við Öryrkjabandalag Íslands
og fékk það til samstarfs um bygg-
ingu. Öryrkjabandalagið notar
það fé sem það fær úr Lottóinu til
að byggja húsnæði fyrir öryrkja í
gegnum Brynju, hússjóð félags-
ins. Að sögn Hjördísar var félagið
mjög jákvætt fyrir því að byggja í
Reykjanesbæ.
„Reykjanesbær sóttist eftir því að
byggð yrðu tvö átta íbúða hús, enda
væri þörf fyrir það í sveitarfélaginu.
Öryrkjabandalagið var hins vegar
tilbúið til að byggja eitt hús og að
það yrði með sex íbúðum. Það gerir
bandalagið vegna reynslu sinnar
af byggingu svona húsa. Ekki sé
ráðlegt að byggja of stórar einingar
með einsleitum hópi íbúa,“ sagði
Hjördís.
Lögð var á það áhersla að íbúðirnar
væru miðsvæðis þannig að stutt
væri í alla þjónustu fyrir íbúa húss-
ins og að hún væri í göngufæri. Það
varð því úr að nú hefur verið hafist
handa við byggingu hússins á lóð
Suðurgötu 19. Þaðan er t.a.m. stutt
yfir á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja og í aðra þjónustu sem félags-
þjónusta Reykjanesbæjar er með á
Suðurgötu 14 og 15-17.
Stefnt er að því að nýja húsið verið
tilbúið sumarið 2013 og þá flytji
þangað íbúar sem nú eru á sambýli
í Móahverfinu í Njarðvík. Eins og
staðan er í dag þá eru fimm íbúðir
hugsaðar fyrir fatlaða en sjötta
íbúðin er hugsuð sem starfsmanna-
íbúð. Vegna þess hversu miðsvæðis
húsið er, þá er nú verið að skoða
þann möguleika að sjötta íbúðin
verði einnig fyrir fatlaða og starfs-
maður búi þá í næsta nágrenni,
þannig þó að það þjóni sama til-
gangi og tryggi þjónustuna við
íbúana ekkert síður. Nýja húsið
verður á tveimur hæðum og verða
þrjár íbúðir á hvorri hæð. Þá verður
lyfta í húsinu til að tryggja gott að-
gengi fyrir hreyfihamlaða. Upphaf-
lega stóð til að húsið yrði án lyftu
og búsetu þannig háttað að á efri
hæð væru íbúar sem þyrftu ekki
lyftuna. Öryrkjabandalagið ákvað
hins vegar að leggja húsinu til lyft-
una og kostnaður vegna hennar
verður ekki íþyngjandi fyrir verð-
andi leigjendur í húsinu.
Hjördís segir að stærsti hópurinn
sem bíði eftir búsetuúrræðum séu
einstaklingar en einnig eru pör í
hópnum. Íbúðirnar sem nú eru í
byggingu á Suðurgötunni henta
mjög vel þeim hópi.
Húsið er byggt samkvæmt forskrift
frá Reykjanesbæ en Öryrkjabanda-
lagið fékk upplýsingar frá bæjar-
félaginu um það hvað íbúðirnar
mættu kosta að hámarki þannig að
verðandi íbúar ráði við leiguna þar,
því það fólk sem þangað flytur inn
hefur enga möguleika á að auka við
tekjur sínar. Íbúarnir munu leigja
af Öryrkjabandalaginu og fá sínar
húsaleigubætur frá Reykjanesbæ.
Í samtali við Víkurfréttir sagðist
Hjördís glöð yfir því að þessar
íbúðir séu að verða að veruleika
og vonast jafnframt til að fljót-
lega verði hægt að bæta við fleiri
íbúðum fyrir þennan hóp fólks.
Þörfin sé svo sannarlega til staðar
í bæjarfélaginu.
Byggja sex íbúðir fyrir fatlaða í Reykjanesbæ
Frá framkvæmdum við Suður-
götu 19 í Reykjanesbæ. Þar hefur
vinna við byggingu sex íbúða fyrir
fatlaða og öryrkja verið hafin.
VF-mynd: Hilmar Bragi
n Öryrkjabandalagið byggir fyrir Lottó-peninga n Þörf fyrir fleiri íbúðir fyrir fatlaða og öryrkja
Menntastoðir
vorönn 2013
- opið fyrir umsóknir
Nú hefur verið opnað fyrir um-sóknir í Menntastoðir vor-
önn 2013. Námið er hugsað sem
undirbúningur til áframhaldandi
náms og miðar við háskólabrú
Keilis og frumgreinadeildir við
Bifröst, Háskólann á Akureyri og
H.R. Einnig má nýta einingar úr
Menntastoðum inn í nám í fram-
haldsskóla.
Helstu námsgreinar eru íslenska,
stærðfræði, enska, danska, náms-
tækni, sjálfstyrking, tölvu- og upp-
lýsingatækni og bókfærsla.
Boðið er upp á þrjár leiðir í janúar
2013:
Staðnám 1:
55 einingum lokið á 6 mánuðum.
Kennt er fimm daga vikunnar frá
kl. 08:30 til 15:10.
Staðnám 2:
12 mánuðir/tvær annir: Kennd eru
4 fög (26 einingar) á fyrri önn og 3
fög (29 einingar) á seinni önn. skv.
stundaskrá staðnámshóps.
Fjarnám:
10 mánaða langt nám sem byggir á
einni helgarstaðlotu í mánuði.
Hægt er að sækja um í gegnum
netið á www.mss.is eða í
síma 412 5952/421 7500.
Frekari upplýsinga veitir Særún
Rósa Ástþórsdóttir í síma
412 5952 eða í gegnum net-
fangið saerunrosa@mss.is.