Víkurfréttir - 08.11.2012, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 8. nóvember 2012 19
Meira í leiðinni
GERÐU BÍLINN KLÁRAN
FYRIR VETURINN
FYRSTA FLOKKS VETRARDEKK Á FRÁBÆRU VERÐI OG FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTA
WWW.DEKK.IS
Á DEKKJAHÓTELI N1
BÝÐST ÞÉR AÐ
GEYMA DEKKIN
GEGN VÆGUGJALDI
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1
REYKJANESBÆ | GRÆNÁSBRAUT
SÍMI 440 1372
FÓLK OG FRÉTTIR
Njála
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Þjónustustjóri fyrirtækja
Laust er til umsóknar starf Þjónustustjóra
fyrirtækja í útibúi Landsbankans í Reykjanesbæ.
Helstu verkefni
» Móttaka og þjónusta við viðskipta-
vini er lítur að fyrirtækjaþjónustu
» Dagleg verkstjórn með fyrirtækja-
þjónustu í samráði við útibússtjóra
» Umsjón með daglegum samskipt-
um við fyrirtæki í samstarfi við
sérfræðinga og þjónustufulltrúa
» Öflun nýrra viðskiptasambanda
» Innra eftirlit og verklagseftirlit,
tryggja að unnið sé eftir gildandi
ferlum og gátlistum
» Umsjón með lánafundum
útibúsins
Hæfniskröfur og eiginleikar
» Háskólamenntun sem nýtist
í starfi og/eða haldgóð reynsla
af bankastörfum
» Þægilegt viðmót og færni
í samskiptum
» Skipulagshæfni og færni í að
miðla upplýsingum og leiðbeina
» Markviss og sjálfstæð vinnubrögð
L
a
n
d
s
b
a
n
k
i
n
n
, k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
Nánari upplýsingar veita Berglind
Ingvarsdóttir hjá Mannauði í
s: 410 7914 og Einar Hannesson
útibússtjóri í Keflavík í s: 410 8181.
Umsókn merkt „Þjónustustjóri
fyrirtækja“ fyllist út á vef bankans.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember nk.
Á myndinni má sjá hluta hópsins og fremstan kennarann
sjálfan, Þorvald Sigurðsson.
Sveik Hallgerður Gunnar?
Nú var að ljúka 7 vikna Njálunámskeiði á Bókasafni Reykjanes-bæjar en bókasafnið hefur undanfarin ár staðið fyrir ýmsum bók-
menntauppákomum, m.a. fornsögunámskeiðum. Íslenskukennarinn
góðkunni, Þorvaldur Sigurðsson var fenginn til að leiða námskeiðin
og hafa þau vakið mikla lukku. Á fyrsta námskeiðinu var lesin Lax-
dæla, síðan var Egla lesin og nú síðast Njála. Námskeiðin hafa verið
mjög vinsæl og síðasta námskeið sprengdi í raun utan af sér húsnæði
bókasafnsins þegar rúmlega 40 manns mættu og vildu lesa Njálu með
Þorvaldi. Og nú spyr fólk, hvaða saga verður tekin næst fyrir?
Kveikt var í ruslatunnu, sem stóð við timburskjólvegg við íbúðar-húsnæði í Reykjanesbæ. Svo virðist sem einhvers konar spreybrúsi
hafi sprungið í brunanum og voru leifar hans við hlið tunnunnar þegar
að var komið. Snarráður maður og félagi hans, sem voru að vinna við
hús í nágrenninu, hlupu til og slökktu eldinn áður en tjón hlaust af.
Ruslatunnan var þá að mestu brunnin.
Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem athæfi af þessu tagi er til-
kynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum, því fyrr í mánuðinum voru tvær
ruslatunnur teknar af hefðbundnum stað framan við íbúðarhús og settar
upp við vegg fyrir aftan það. Þar var kveikt í þeim og munaði minnstu að
illa færi. Lögregla rannsakar málin.
Enn kveikt í rusla-
tunnu við íbúðarhús