Víkurfréttir - 08.11.2012, Blaðsíða 23
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 8. nóvember 2012 23
SPORTIÐ
VIÐ VERÐUM
ALLTAF Í LEIÐINNI
Íslandsmótið í Taekwondo fór fram um síðustu helgi og var
keppt í Poomsae sem er tækni-
hluti íþróttarinnar. Taekwondo-
deild Keflavíkur fór með sigur af
hólmi í mótinu og því tvöfaldur
Íslandsmeistari í ár því fyrr á
árinu varð Keflavík Íslandsmeist-
ari í bardagahluta íþróttarinnar.
Ástrós Brynjarsdóttir og Bjarni
Júlíus Jónsson, bæði úr Keflavík
voru valin keppendur mótsins,
en þau unnu þrenn gullverðlaun
hvor í þeim þremur greinum sem
keppt var í. Keflavík vann mótið
með minnsta mögulega mun.
Keflavík og Ármann urðu jöfn
að stigum í heildarkeppninni en
Keflavík vann á fleiri gullverð-
launum í keppninni. Keflavík
hefur því yfir að ráða sterkustu
Taekwondo-deild landsins.
„Við erum rosalega ánægð með ár-
angurinn. Ég held að ég hafi aldrei
verið eins spenntur og í ár,“ segir
Helgi Rafn Guðmundsson, þjálfari
hjá Keflavík. „Það er ekki spurning
að við erum með langbestu Taek-
wondo-deildina á landinu því þetta
er í fimmta sinn sem við verðum
Íslandsmeistarar í liðakeppninni
sem er frábær árangur.“
Stefna á 1000 verðlaun
Áhuginn á Taekwondo hefur auk-
ist mikið í Reykjanesbæ á undan-
förnum árum. Í dag stunda um 100
iðkendur íþróttina. Þrátt fyrir að
deildin hafi aðeins verið starfrækt
í um áratug þá er hún í fremstu
röð á landinu í dag og fjölmargir
landsliðsmenn koma úr röðum
Keflavíkur.
„Árangurinn hefur farið fram úr
björtustu vonum. Það eru tvö stór
mót eftir og við stefnum að því að
ná 1000 verðlaunum áður en 12.
starfsárinu lýkur. Í dag höfum við
unnið 950 verðlaun og erum bjart-
sýn á að það takist. Íslenska lands-
liðið er að fara að keppa í sterku
móti í Skotlandi og þar verða sjö
keppendur úr okkar röðum,“ segir
Helgi. „Það er einnig gaman að sjá
hve sterk deildin er orðin í Grinda-
vík. Þar eru um 30 iðkendur og
þeim tókst að verða í þriðja sæti í
deildinni þrátt fyrir að vera með
fáa keppendur. Það er gott samstarf
á milli þessara deilda og gaman að
sjá hvað íþróttin er í mikilli sókn á
Suðurnesjum.“
Ný aðstaða
Taekwondo-deild Keflavíkur og
Júdó-deild Njarðvíkur fluttu í vik-
unni í nýtt húsnæði að Iðavöllum
sem verður framtíðarhúsnæði
deildarinnar. Taekwondo-deildin
var með aðsetur í íþróttaakademí-
unni fyrir nokkrum árum en færði
sig yfir á Ásbrú. Þó aðstaðan þar
hafi verið fín þá þótti staðsetningin
ekki heppileg þar sem margir ungir
iðkendur hefðu þurft að fara um
langan vel til að komast á æfingar.
„Nýja aðstaðan er miklu betri og
það er gott að deila húsnæði með
vinum okkar í júdóinu. Þeir sem
hafa áhuga á að prófa íþróttina geta
séð æfingatöfluna á Keflavik.is. Við
erum að byrja með námskeið fyrir
eldri og fullorðna þannig að þá
geta þeir sem hafa áhuga komið
og prófað.“
Sterkasta Taekwondo-deild landsins
Það er myndarlegur hópur sem stundar taekwondo í Keflavík.