Víkurfréttir - 15.11.2012, Page 4
fimmtudagurinn 15. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR4
PÁLL KETILSSONvf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
afgreiðsla og ritstjórn:
ritstjóri og ábm.:
fréttastjóri:
blaðamenn:
auglýsingadeild:
umbrot og hönnun:
auglýsingagerð:
afgreiðsla:
Prentvinnsla:
uPPlag:
dreifing:
dagleg stafræn Útgáfa:
RITSTJÓRN
RITSTJÓRNARBRÉF
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir
kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka
smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá
færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á
vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent-
aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Verðum að mæta til að hafa áhrif
Pólitíkin er komin á fullt með
tilheyrandi fjöri í prófkjörum
og uppstillingum hjá pólitísku
flokkunum. Kosningar í vor
og framundan viðburðaríkur
vetur.
Kosningaþátttaka í próf-
kjörum var ekki mikil á höfuð-
borgarsvæðinu um síðustu helgi og
svo virðist sem virðing almennings á
Alþingi komi fram í þátttökunni. Það
er eitt af verkefnum pólitískra fulltrúa
að vinna virðingu Alþingis og stjórn-
málanna almennt aftur. Nokkuð er
um ný nöfn í öllum flokkum en þó
eru margir af efstu fulltrúum flestra
lista frá síðustu kosningum í kjöri
nú. Í síðustu kosningum varð mikil
endurnýjun og þótti við hæfi eftir
efnahagshrun. Því miður hefur
þeim nýja hópi ekki tekist að vinna
traust almennings á þessu
kjörtímabili og því verður
fróðlegt að sjá hvað gerist nú.
Margir forystumenn/konur
náðu endurkjöri um síðustu
helgi og í stærstu flokkunum
í Suðurkjördæmi eru for-
ystusauðirnir áfram að bjóða
starfskrafta sína. Hjá Sam-
fylkingunni mun t.d., að flestra mati,
baráttan standa á milli fyrrverandi
bankamálaráðherra frá Suðurlandi
og næstsíðasta fjármálaráðherra,
þess fyrsta sem Suðurnesjamenn hafa
eignast. Í prófkjörinu um helgina eru
þrír Suðurnesjamenn af ellefu fram-
bjóðendum. Það er vonandi að þeim
gangi vel því þrátt fyrir allt þá vilja
heimamenn á hverjum stað fyrir sig
að þeirra fólk standi vaktina á hinu
stóra Aþingi fyrir svæðið.
Í nýlegri könnun kemur fram að
Sjálfstæðisflokkurinn fær glimrandi
kosningu, nærri helming atkvæða eða
44%. Samfylking fær 17%, Framsókn
14% og Vinstri græn tæp 9%. Það
má því lesa úr þessari niðurstöðu að
íbúar kjördæmisins eru langt frá því
að vera ánægðir með störf núverandi
ríkisstjórnar. Það skýrist kannski vel
í slæmri stöðu á Suðurnesjum sem
er stærsta svæðið í Suðurkjördæmi.
Lítið hefur þokast í atvinnumálum og
ríkisstjórnin hefur ekki gert mikið til
þess að liðka fyrir málum. Umdeildar
skattahækkanir á mörgum sviðum
hjálpa ekki til.
Hvað sem öllu líður verðum við
kjósendur að mæta í prófkjörin til
að hafa áhrif og velja það fólk sem
við treystum best til að stýra okkar
málum á Alþingi.
Hvað á svo að læra?
100 KR. ÚTSALA
Á NOTUÐUM FATNAÐI
19. - 30. nóv. verður útsala hjá Hertex nytjamarkaði,
Hafnargötu 50, Keflavík
Mikið af góðum fatnaði selst á 100 kr. stykkið!
Ekki missa af þessu.
Takk fyrir allan stuðninginn, Hjálpræðisherinn
Háskólabrú Keilis veitir
ný tækifæri til náms
„Ég varð mamma mjög ung og gat
ekki sótt menntaskóla eins og jafn-
aldrar mínir. Ég tók nokkur fög í
kvöldskóla en þurfti oft að láta skól-
ann víkja þar sem ég var í krefjandi
vinnu og með börn á framfæri. Þegar
kreppan skall á missti ég vinnuna og
ákvað að líta á það sem nýtt upphaf.
Núna er ég á öðru ári í þjóðfræði
við Háskóla Íslands. Það er alltaf
erfitt að hefja nám eftir langt hlé, en
undirbúningurinn sem ég fékk í Keili
auðveldaði mér mjög að takast á við
háskólanámið. Í raun var námið
stöðug brú inn í háskólann og ég var
tilbúin að takast á við verkefnin sem
þar tóku á móti mér.“
Snjólaug, nemandi á öðru ári í
þjóðfræði við Háskóla Íslands
Frá stofnun Keilis árið 2007 hefur
Háskólabrú verið ein megin stoðin
í námsframboði skólans. Ekki ein-
ungis með því að vera fjölmenn-
asta námið sem Keilir býður upp á,
heldur einnig og ekki síður vegna
þeirra áhrifa sem námið hefur haft
á líf þeirra sem það hefur stundað.
Auðvitað hefur flest allt nám áhrif
á þá einstaklinga sem það stunda.
En Háskólabrú Keilis er einstakt
nám að því leyti að þar fer saman
samstillt átak bæði kennara og
nemenda í að leiða nemendur sem
hafa misst trú á bæði skólakerfið
og sjálft sig aftur í nám. Í mörgum
tilfellum er um að ræða nemendur
sem hafa flosnað upp úr framhalds-
skólanámi eða fundu sig ekki í hefð-
bundna skólakerfinu á sínum tíma.
Nemendur sem eru að sækja nám
aftur eftir langa fjarveru og koma
með drifkraft, metnað og löngun
til að takast á við nýjar áskoranir.
Einstaklingar sem vilja breyta til og
móta sína eigin framtíð.
„Í dag er ég í námi í viðskiptafræði
við Háskóla Íslands. Er reyndar
kominn með þriðja barnið í hóp-
inn og konan mín er á fyrsta ári
í tölvunarfræði eftir að hafa lokið
fjarnámi í háskólabrúnni hjá Keili.
Við fengum því bæði tækifæri til að
leiðrétta kæruleysið sem upp kom í
okkar námsferli á framhaldsskólaár-
unum og koma því í réttan farveg.
Ég var vel undirbúinn fyrir námið
mitt og er sérstaklega ánægður með
þá áfanga sem voru ætlaðir við-
skiptafræðilínunni hjá Keili.“
Leó Rúnar, nemandi á
þriðja ári í viðskiptafræði
við Háskóla Íslands
Brottfall nemenda í íslenskum
skólum er mikið og hefur lengi
verið svartur blettur á skólakerf-
inu. Það er mikil nauðsyn að
draga úr brottfalli í skólum lands-
ins og ekki síður að koma þeim
aftur í nám sem náðu ekki að klára
skólagöngu, en hafa bæði getu og
áhuga á að sækja aftur nám. Mikil-
vægur þáttur í gæðastarfi Keilis eru
eftirfylgnikannanir brautskráðra
nemenda. Rúmlega 700 manns
hafa útskrifast úr Háskólabrú Keilis
síðan skólinn hóf starfsemi og
hefur um 85% þeirra haldið áfram
í námi. Metnaður nemenda okkar
til áframhaldandi náms er skýr og
þannig leitast starfsfólk skólans við
að mæta metnaði og kröfum nem-
enda. Þetta er besta mælistikan sem
við höfum um árangur okkar og
ekki síður dugnað þeirra nemenda
sem hafa sótt nám við skólann.
„Þegar allt hrundi hér 2008 varð ég
atvinnulaus og sá tækifæri til þess
að fara í nám. Það hafði ég þráð
í mörg ár og hélt að myndi aldrei
verða að veruleika. Námið sem ég
stundaði hjá Keili hefur nýst mér
afar vel og hef ég góðan grunn fyrir
námið sem ég er í. Ég valdi það nám
vegna þess að mig langar til þess
að geta hjálpað væntanlegum nem-
endum mínum að öðlast það sjálfs-
traust sem ég öðlaðist í mínu námi.
Að hafa trú á því að maður geti lært
er svo mikils virði og hvetur mann til
þess að takast á við verkefni og ögra
sjálfum sér“.
Una Kristín, nemandi á
öðru ári í kennarafræði við
Háskólann á Akureyri
Skólar verða aldrei betri en þeir
nemendur sem þeir útskrifa og
vitnisburður um gæði náms verður
bara mælt í árangri þeirra einstak-
linga sem það sækja. Við erum stolt
af öllum þeim sem hafa sótt nám í
Háskólabrú Keilis. Það þarf kjark
og áræðni til að setjast á skólabekk
eftir langa fjarveru, og það þarf
dugnað og trú á sjálfan sig til að
klára skólagöngu. Fyrst og fremst
þarf vilja til að breyta til og takast
á við nýjar áskoranir. Þegar þetta
er til staðar er fólki allir vegir færir.
Við erum þakklát fyrir að fá að
vera með í að greiða götu þeirra og
breyta lífi fólks.
Háskólabrú hefur undanfarin ár
markað sér sérstöðu í að veita
einstaklingsmiðaða þjónustu og
stuðning við nemendur. Kennslu-
hættir miða við þarfir fullorðinna
nemenda, miklar kröfur eru gerðar
um sjálfstæði í vinnubrögðum og
eru raunhæf verkefni lögð fyrir.
Við veitum nemendum okkar pers-
ónulega þjónustu og reynum að
efla sjálfstraust þeirra og sjálfstæði.
Bæði er hægt að stunda fjarnám og
staðnám í Háskólabrú Keilis.
Tekið er á móti umsóknum í fjar-
nám í Háskólabrú sem hefst í
janúar 2013. Umsóknarfrestur er til
10. desember næstkomandi.
Ýrlagnir ehf.
Pípulagningaþjónusta
VANTAR ÞIG
PÍPARA?
Klettaröð 5 - 235 Reykjanesbær - yrlagnir@simnet.is - S. 551 1511, 858 3366
Lionessu konfektkransar
Okkar árlega fjáröflun Lionessuklúbbs Keflavíkur er nú að fara af stað.
Eins og undanfarin ár rennur allur ágóði til líknarmála.
Síðastliðin 30 ár eða síðan Lionessur stofnuðu klúbbinn hafa margir
Suðurnesjamenn, Velferðarsjóður og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
og ýmis góð og áhugaverð mál notið góðs af fjáröflun Lionessa.
Í ár er sælgætið íslenskt frá Freyju.
Á næstunni munu Lionessur bjóða kransana til sölu,
og vonumst við til að fá jákvæð viðbrögð eins og
undanfarin ár.
Einnig er hægt að panta kransa hjá þeim
Elínu s: 863-4246, Áslaugu s: 421-2722
og Eydísi s: 421-1558
Með fyrirfram þökk kæru Suðurnesjamenn.