Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.11.2012, Page 13

Víkurfréttir - 15.11.2012, Page 13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 15. nóvember 2012 13 Gengur þú með dulda sykursýki? Ókeypis blóðsykursmæling í boði Lions Föstudaginn 16. nóvem- ber frá kl. 13 ti l 16, munu Lionsklúbbarnir á Suðurnesjum í samstarfi við Lyfju, bjóða upp á ókeypis blóðsykursmælingu í verslunarmiðstöðinni Krossmóa í Reykjanesbæ. Í Grindavík verða blóðsykursmælingarnar í verslun- inni Nettó. Nóvember er mánuður sykursýkis- varna hjá Lionshreyfingunni og í tilefni af því beina Lionsmenn nú kröftum sínum sérstaklega að þessu þarfa málefni. Sykursýki er hættulegur sjúk- dómur. Báðar tegundir sykursýki, sykursýki 1 og sykursýki 2, eru í mikilli sókn. Talið er að jafnvel þúsundir einstaklinga gangi með dulda sykursýki. Hver sem er, óháð aldri, getur fengið sykursýki 1, en eldra fólk, þeir sem hafa ættarsögu um sykursýki og þeir sem eru of þungir, eru í sérstakri hættu á að fá sykursýki 2. Blóðsykursmælingin, sem tekur aðeins örstutta stund, verður fram- kvæmd af hjúkrunarfræðingi sem er sérfræðingur í málefnum sykur- sjúkra. Lionsklúbbarnir á Suðurnesjum þakka fyrir jákvæðni og stuðning fyrr og nú og hvetja Suðurnesja- menn eindregið til að nýta sér þetta tækifæri til að fá fría blóðsykurs- mælingu. Með Lionskveðju, Geirþrúður Fanney Bogadóttir, svæðisstjóri á sv. 5 109A INTERNATIONA L FÓLK OG FRÉTTIR É g á góðan vin sem heitir Jón (og hann heitir í alvöru Jón). Við tölum mikið saman eins og er eðli góðra vina og höfum ferðast saman í gegnum ótal hæðir og lægðir í lífinu. Hann hefur gefið mér ómetanlega sýn inn í heim karlmanna og hann hefur oftar en ekki þakkað mér fyrir að opna sýn hans á flóknum heimi konunnar. Ég ætlast til að Jón lesi pistlana mína því það er bara það sem vinir gera, en hann á í erfiðleikum með það. Af hverju – jú af því að þeir eru of langir: er ekki hægt að fá EINN stuttan Anna Lóa! Þú skrifaðir um dag- inn 750 orð um hve miklu máli skiptir að vera maður sjálfur og taka niður grímuna. Það hefði dugað mér að hlusta á Helga Björns syngja: vertu þú sjálfur, gerðu það sem þú vilt! En honum finnst ekki bara pistl- arnir mínir of langir því sömu skoðun hefur hann á statusunum mínum, sms-unum, tölvupósti, já honum finnst ég einfaldlega hafa of mörg orð um flesta hluti. Hann segir að stundum sé ég 10 mínútur að segja eitthvað sem gæti tekið ½ mínútu og þessar 9 og ½ mínútu horfi hann á munninn minn hreyfast (eða setur símann á borðið) og er löngu dottinn út og farinn að hugsa um eitthvað allt annað (eins og „hvernig get ég bætt sveifluna mína“). Anna Lóa, mundir þú keyra hringinn í kringum landið til að komast í Skorra- dalinn þegar þú getur keyrt beint þangað uppeftir? Þú tekur ALLTAF lengri leiðina. Jóni finnst að bak við umræður okkar þurfi að vera ákveðinn ásetningur: vanda- mál sem þarf að leysa eða ákveðinn hlutur sem verður að koma á framfæri. Sam- ræðurnar eiga að leiða til þess að málið verði leyst á fljótlegan og öruggan hátt. Ég nota aftur á móti samtölin okkar til að komast að því hvernig mér líður og nota Jón sem spegil. Hann þarf EKKI að koma með lausn á vandanum en VERÐUR að hlusta á það sem ég hef að segja, finna til samkenndar og skilja af hverju mér finnist þetta eða hitt erfitt. Með því að deila vand- anum líður mér betur jafnvel þó lausnin sé ekki komin. Þarna er munurinn á okkur í hnotskurn, hann finnur fyrir pressu til að bjarga málunum fyrir mig og mundi vilja stökkva í slökkviliðsbúninginn og slökkva alla elda. Hann verður ráðvilltur þegar hann hefur enga lausn á málunum á meðan ég þurfti ekki á slökkviliðsmanni að halda heldur einhvern sem er til staðar. Karlmenn (margir) eru frekar línulaga í hugsun, það er upphaf og það er endir en á meðan erum við konurnar (margar) frekar hringlaga, upphaf, miðja, upphaf, miðja..... förum út í smáatriðin og allt sem gæti tengst efninu. Einföld spurning: „getum við hist á mánudaginn“, ætti að vera hægt að svara með já eða nei en mitt svar gæti verið: er ekki viss þar sem ég var búin að lofa frænku minni að kíkja á ritgerðina með henni og ef hún er ekki með fyrir- lestur það kvöld þá kemur hún til mín. Svo er ég búin að vera mikið í burtu undan- farið svo ég veit ekki hvort ég nenni að keyra í bæinn þetta kvöld. Ef ég er laus þá er spurning um hvort þú komir til mín þar sem bíllinn er heldur ekki kominn á vetrardekkin! Jón er sofnaður á hinum enda línunnar. Þetta snýst ekki um að ég sé að gera eitt- hvað rangt og Jón vinur minn rétt – frekar að við erum öll að reyna að hafa sam- skiptin í lagi og þau verða það frekar ef við áttum okkur á því að við nálgumst hlutina á mismunandi hátt. Jón hefur ekki talað við mig í viku. Hann hringdi um daginn og sagðist vera veikur. Þar sem ég var að skrifa þessa grein gaf ég honum línulegt svar: hættu þessu væli Jón, fá þér Íbúfen og leggðu þig!! Þangað til næst – gangi þér vel. Anna Lóa Fylgstu með mér www.facebook.com/Hamingjuhornid Er hægt að fá einn stuttan! ANNA LÓA ÓLAFSDÓTTIR SKRIFAR HamIngjUHoRnIð Anna Lóa Jón er sofnaður á hinum enda línunnar. Við bjóðum á morgunverðarfund Dagskrá 8.00 Húsið opnað 8.30 Ávarp Sighvatur Ingi Gunnarsson, útibússtjóri Íslandsbanka í Reykjanesbæ 8.35 Sameining til sóknar Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka 8.45 Vöxtur í krefjandi umhverfi Sigþór Kristinn Skúlason, framkvæmdastjóri Airport Associates og UPS 9.05 Klakaböndin bresta: Efnahagshorfur að hausti Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka 9.30 Gengisáhættu má minnka með framvirkum samningum Guðmundur Magnús Daðason, Gjaldeyrismiðlun Íslandsbanka 9.45 Umræður og fyrirspurnir 10.00 Fundi slitið Fundur í Reykjanesbæ um efnahagsumhverfi fyrirtækja Fimmtudaginn 22. nóvember býður Íslandsbanki fulltrúum fyrirtækja til morgunverðarfundar um efnahagsmál í Stapa. Fundurinn er opinn öllum og aðgangur er ókeypis. Boðið verður upp á léttan morgunverð fyrir fundargesti. Vinsamlegast skráðu þig fyrir kl. 12, miðvikudaginn 21. nóvember, í síma 440 3106 eða með tölvupósti á bergthora.johannsdottir@islandsbanki.is Lj ós m y n d: O dd ge ir K ar ls so n islandsbanki.is | Sími 440 4000 Við bjóðum góða þjónustu FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM Á DÖMUR OG HERRA Hafnargata 29 (gamla Stapafellshúsið)

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.