Víkurfréttir - 15.11.2012, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 15. nóvember 2012 13
Gengur þú með
dulda sykursýki?
Ókeypis blóðsykursmæling
í boði Lions
Föstudaginn 16. nóvem-
ber frá kl. 13
ti l 16, munu
Lionsklúbbarnir
á Suðurnesjum
í samstarfi við Lyfju, bjóða upp
á ókeypis blóðsykursmælingu í
verslunarmiðstöðinni Krossmóa
í Reykjanesbæ. Í Grindavík verða
blóðsykursmælingarnar í verslun-
inni Nettó.
Nóvember er mánuður sykursýkis-
varna hjá Lionshreyfingunni og í
tilefni af því beina Lionsmenn nú
kröftum sínum sérstaklega að þessu
þarfa málefni.
Sykursýki er hættulegur sjúk-
dómur. Báðar tegundir sykursýki,
sykursýki 1 og sykursýki 2, eru
í mikilli sókn. Talið er að jafnvel
þúsundir einstaklinga gangi með
dulda sykursýki. Hver sem er, óháð
aldri, getur fengið sykursýki 1, en
eldra fólk, þeir sem hafa ættarsögu
um sykursýki og þeir sem eru of
þungir, eru í sérstakri hættu á að fá
sykursýki 2.
Blóðsykursmælingin, sem tekur
aðeins örstutta stund, verður fram-
kvæmd af hjúkrunarfræðingi sem
er sérfræðingur í málefnum sykur-
sjúkra.
Lionsklúbbarnir á Suðurnesjum
þakka fyrir jákvæðni og stuðning
fyrr og nú og hvetja Suðurnesja-
menn eindregið til að nýta sér þetta
tækifæri til að fá fría blóðsykurs-
mælingu.
Með Lionskveðju,
Geirþrúður Fanney Bogadóttir,
svæðisstjóri á sv. 5 109A
INTERNATIONA
L
FÓLK OG FRÉTTIR
É g á góðan vin sem heitir Jón (og hann heitir í alvöru Jón). Við
tölum mikið saman eins og er eðli góðra
vina og höfum ferðast saman í gegnum
ótal hæðir og lægðir í lífinu. Hann hefur
gefið mér ómetanlega sýn inn í heim
karlmanna og hann hefur oftar en ekki
þakkað mér fyrir að opna sýn hans á
flóknum heimi konunnar. Ég ætlast til
að Jón lesi pistlana mína því það er bara
það sem vinir gera, en hann á í
erfiðleikum með það. Af hverju
– jú af því að þeir eru of langir:
er ekki hægt að fá EINN stuttan
Anna Lóa! Þú skrifaðir um dag-
inn 750 orð um hve miklu máli
skiptir að vera maður sjálfur og
taka niður grímuna. Það hefði
dugað mér að hlusta á Helga
Björns syngja: vertu þú sjálfur,
gerðu það sem þú vilt!
En honum finnst ekki bara pistl-
arnir mínir of langir því sömu
skoðun hefur hann á statusunum
mínum, sms-unum, tölvupósti, já
honum finnst ég einfaldlega hafa
of mörg orð um flesta hluti.
Hann segir að stundum sé ég 10 mínútur
að segja eitthvað sem gæti tekið ½ mínútu
og þessar 9 og ½ mínútu horfi hann á
munninn minn hreyfast (eða setur símann
á borðið) og er löngu dottinn út og farinn
að hugsa um eitthvað allt annað (eins og
„hvernig get ég bætt sveifluna mína“).
Anna Lóa, mundir þú keyra hringinn í
kringum landið til að komast í Skorra-
dalinn þegar þú getur keyrt beint þangað
uppeftir? Þú tekur ALLTAF lengri leiðina.
Jóni finnst að bak við umræður okkar
þurfi að vera ákveðinn ásetningur: vanda-
mál sem þarf að leysa eða ákveðinn hlutur
sem verður að koma á framfæri. Sam-
ræðurnar eiga að leiða til þess að málið
verði leyst á fljótlegan og öruggan hátt.
Ég nota aftur á móti samtölin okkar til að
komast að því hvernig mér líður og nota
Jón sem spegil. Hann þarf EKKI að koma
með lausn á vandanum en VERÐUR að
hlusta á það sem ég hef að segja, finna til
samkenndar og skilja af hverju mér finnist
þetta eða hitt erfitt. Með því að deila vand-
anum líður mér betur jafnvel þó lausnin sé
ekki komin. Þarna er munurinn á okkur
í hnotskurn, hann finnur fyrir pressu til
að bjarga málunum fyrir mig og mundi
vilja stökkva í slökkviliðsbúninginn og
slökkva alla elda. Hann verður ráðvilltur
þegar hann hefur enga lausn á málunum
á meðan ég þurfti ekki á slökkviliðsmanni
að halda heldur einhvern sem er til staðar.
Karlmenn (margir) eru frekar línulaga í
hugsun, það er upphaf og það er endir en á
meðan erum við konurnar (margar) frekar
hringlaga, upphaf, miðja, upphaf, miðja.....
förum út í smáatriðin og allt sem gæti
tengst efninu. Einföld spurning: „getum
við hist á mánudaginn“, ætti að vera hægt
að svara með já eða nei en mitt svar gæti
verið: er ekki viss þar sem ég var búin að
lofa frænku minni að kíkja á ritgerðina
með henni og ef hún er ekki með fyrir-
lestur það kvöld þá kemur hún til mín. Svo
er ég búin að vera mikið í burtu undan-
farið svo ég veit ekki hvort ég nenni að
keyra í bæinn þetta kvöld. Ef ég er laus
þá er spurning um hvort þú komir til mín
þar sem bíllinn er heldur ekki kominn á
vetrardekkin!
Jón er sofnaður á hinum enda línunnar.
Þetta snýst ekki um að ég sé að gera eitt-
hvað rangt og Jón vinur minn rétt – frekar
að við erum öll að reyna að hafa sam-
skiptin í lagi og þau verða það frekar ef við
áttum okkur á því að við nálgumst hlutina
á mismunandi hátt.
Jón hefur ekki talað við mig í viku. Hann
hringdi um daginn og sagðist vera veikur.
Þar sem ég var að skrifa þessa grein gaf ég
honum línulegt svar: hættu þessu væli Jón,
fá þér Íbúfen og leggðu þig!!
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa
Fylgstu með mér
www.facebook.com/Hamingjuhornid
Er hægt að fá einn stuttan!
ANNA LÓA
ÓLAFSDÓTTIR
SKRIFAR
HamIngjUHoRnIð
Anna Lóa
Jón er sofnaður
á hinum enda
línunnar.
Við bjóðum á
morgunverðarfund
Dagskrá
8.00 Húsið opnað
8.30 Ávarp
Sighvatur Ingi Gunnarsson,
útibússtjóri Íslandsbanka í Reykjanesbæ
8.35 Sameining til sóknar
Una Steinsdóttir,
framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka
8.45 Vöxtur í krefjandi umhverfi
Sigþór Kristinn Skúlason,
framkvæmdastjóri Airport Associates og UPS
9.05 Klakaböndin bresta: Efnahagshorfur að hausti
Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka
9.30 Gengisáhættu má minnka með framvirkum samningum
Guðmundur Magnús Daðason, Gjaldeyrismiðlun Íslandsbanka
9.45 Umræður og fyrirspurnir
10.00 Fundi slitið
Fundur í Reykjanesbæ um efnahagsumhverfi fyrirtækja
Fimmtudaginn 22. nóvember býður Íslandsbanki fulltrúum
fyrirtækja til morgunverðarfundar um efnahagsmál í Stapa.
Fundurinn er opinn öllum og aðgangur er ókeypis. Boðið verður
upp á léttan morgunverð fyrir fundargesti.
Vinsamlegast skráðu þig fyrir kl. 12, miðvikudaginn
21. nóvember, í síma 440 3106 eða með tölvupósti á
bergthora.johannsdottir@islandsbanki.is
Lj
ós
m
y
n
d:
O
dd
ge
ir
K
ar
ls
so
n
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
FULL BÚÐ AF
NÝJUM VÖRUM
Á DÖMUR OG HERRA Hafnargata 29 (gamla Stapafellshúsið)