Bæjarins besta - 08.02.2007, Page 5
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2007 5
Atlantsolía hefur enn áhuga á
að reisa bensínstöð á Ísafirði
Atlantsolía hefur enn áhuga á að reisa bensínstöð á lóð þeirri
er þeim var úthlutað á Skeiði fyrir rúmum tveimur árum, að
sögn Alberts Más Magnússonar, framkvæmdastjóra Atlants-
olíu. Mikið kapphlaup var á milli olíufélaganna Atlantsolíu og
Orkunnar um leyfi til byggingar bensínsstöðvar á Skeiði
sumarið 2004. Miklar deilur spruttu um fyrirhugaða úthlutun
og höfðu forráðamenn Atlantsolíu m.a. uppi stór orð í garð
bæjaryfirvalda á Ísafirði þegar stefnt var að útboði á lóðum
undir bensínstöðvar. Sökuðu forráðamenn Atlantsolíu bæjar-
yfirvöld um að reyna að koma í veg fyrir samkeppni á bens-
ínmarkaði. Segir Albert þau vandamál sem komu upp hafa
gert það að verkum að menn fóru að horfa annað. „Það tók
lengri tíma en gert var ráð fyrir í fyrstu að fá úthlutað lóð, og
þurftum við því að endurskoða útþensluáætlun fyrirtækisins.“
Atlantsolía sneri sér að uppbyggingu á Akureyri á undan
Ísafirði og stendur til að opna stöðvar á Selfossi og Borgarnesi
á næstunni, og svo jafnvel Ísafirði. Fyrirtækið hefur fest kaup
á bíl til að dreifa eldsneyti um landið, og mun hann að sögn
Alberts gera fyrirtækinu auðveldara að reka bensínstöðvar á
landsbyggðinni. Margoft hefur staðið til að Atlantsolía réðist
í framkvæmdir á Ísafirði á síðustu árum, en ekki hefur orðið af
neinu enn. Albert fer varlega í að áætla nokkuð um hvenær
standi til að byggja stöð í bænum, en segir að vonandi verði
eitthvað gert á þessu ári. Orkan opnaði sjálfsafgreiðslustöð á
Skeiði skömmu fyrir jól 2005.
Þegar Atlantsolía sótti um lóð þá sem fyrirtækið fékk úthlutað
á Skeiði á Ísafirði fyrir rúmum tveimur árum var erindið
afgreitt frá bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, en ekki frá umhverfis-
nefnd, eins og venjan er. Þegar umhverfisnefnd afgreiðir
lóðaúthlutanir er jafnan settur sá fyrirvari að framkvæmdir
verði að hafa hafist innan árs, ella falli úthlutunin úr gildi. Við
afgreiðslu bæjarstjórnar á þessari tilteknu úthlutun var hins
vegar ekki kveðið á um að framkvæmdir hæfust innan ákveðins
tíma, heldur einungis að skilað yrði inn teikningum og sótt um
byggingarleyfi innan árs. Þetta gerði Atlantsolía og hefur því
uppfyllt öll skilyrði úthlutunarinnar. Aðspurður um hvort að
úthlutunin sé þá algerlega til óákveðinnar framtíðar, segir
Jóhann Birkir Helgason, bæjartæknifræðingur, svo í raun vera
og erfitt sé að draga í land með úthlutunina þar sem öll skilyrði
hafi verið uppfyllt.
„Þeir hafa verið beðnir um að skila lóðinni“, segir Jóhann.
„En þeir hafa enn áhuga á að byggja þarna bensínstöð.“ Að
sögn Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, hafa
aðrir aðilar lýst yfir áhuga á lóðinni, en ekki verður gefið upp
hvaða aðilar það eru.
Atlantsolía hefur lengi haft áform uppi um að reisa bensínstöð
á Skeiði, og var haft eftir framkvæmdastjóra fyrirtækisins fyrr
í dag að ástæðan fyrir því að það hefur dregist væri sú að af-
greiðsla bæjarins hafi tekið of langan tíma á sínum tíma, og
þegar lóðinni var loks úthlutað hafi fyrirtækið verið búið að
snúa sér annað. – eirikur@bb.is
Siglingaklúbburinn Sæfari
hyggst selja allar eignir sínar
í Suðurtanga á Ísafirði. Stær-
stu eignir Sæfara þar eru þrjár
íbúðir, tvö iðnaðarhúsnæði,
einn bílskúr, sjóvarnargarður
og dráttarbraut fyrir báta allt
að 30 tonnum. Að sögn að-
standenda félagsins er tilgang-
ur sölunnar sá að losa um fjár-
magn. „Það sem vakti fyrir
Sæfara á sínum tíma var að
koma upp aðstöðu fyrir starf-
semi félagsins“, segir Örn Torfa-
son, formaður Sæfara. „Hlutir
hafa ekki gengið eins og við
ætluðum, og nú er komin tími
til að selja þetta.“
Segir Örn að framtíð Sæfara
sé óráðin. Félagið hefur fengið
tvö kauptilboð í dráttarbraut-
ina, eitt frá Ísafirði og annað
að norðan. „Svo væntum við
fleiri tilboða frá mönnum hér
fyrir vestan.“ Þá mun Byggða-
safn Vestfjarða einnig hafa
lýst yfir áhuga á að kaupa drátt-
arbrautina. Hvort að starfsemi
Sæfara heldur áfram í sömu
mynd í framtíðinni ræðst af
sölu eigna.
Siglingaklúbburinn Sæfari
hefur verið starfræktur í á ann-
an áratug og innan hans starfa
íþróttamenn á landsmæli-
kvarða. 200 meðlimir eru í
félaginu og 150 iðkendur. Sæ-
fari hefur verið með öflugt
unglingastarf yfir sumarmán-
uðina og unnið í miklu sam-
starfi við ferðaþjónustufyrir-
tæki á landinu, og hafa menn
komið víða að, bæði innan-
lands og utan, til að sækja
námskeið hjá klúbbnum.
– eirikur@bb.is
Sæfari hyggst
selja eignir sínar
Gott atvinnuástand þrátt fyrir
gjaldþrot Ágústs og Flosa ehf.
Fæstir eru á atvinnuleysis-
skrá á Vestfjörðum á landinu.
Almennt er atvinnuástand gott
í fjórðungnum þrátt fyrir að
allstórt gjaldþrot hafi nýlega
átt sér stað hjá Ágúst og Flosa
ehf á Ísafirði þar sem um 30
manns unnu. Mikil eftirspurn
hefur verið eftir iðnaðarmönn-
um og hefur starfsmönnum
sem þar unnu gengið vel að fá
störf annars staðar. Í dag eru
28 manns á atvinnuleysisskrá
á Vestfjörðum, 5 karlmenn og
23 konur.
Átta einstaklingar eru án at-
vinnu á Bíldudal en vonir
standa til að það atvinnuleysi
minnki verulega er fiskvinnsla
hefst þar að nýju. Í upphafi
janúarmánaðar var fjöldi fólks
á atvinnuleysisskrá á Vest-
fjörðum í sögulegu lágmarki,
en þá voru 24 einstaklingar
skráðir án atvinnu. Frá þessu
er greint á vef Svæðisvinnu-
miðlunar Vestfjarða.
Atvinnuleysi á landinu í
heild jókst um 0,1% á milli
nóvember og desember, en at-
vinnuleysi mældist 1,2% í lok
sl. árs. Í lok árs 2005 var at-
vinnuleysi nokkru hærra, eða
1,5%. Reikna má með að at-
vinnuleysi aukist lítið eitt í
janúar í takt við hefðbundinn
árstíðabundinn samdrátt í
efnahagslífinu yfir háveturinn.
Höfuðstöðvar verktakafyrirtækisins Ágústs og Flosa ehf., sem varð gjaldþrota fyrir stuttu.