Bæjarins besta - 08.02.2007, Page 7
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2007 7
Lögreglan á Vestfjörðum
Borgarafundir um
málefni löggæslunnar
· Hvernig vilt þú sjá löggæslunni sinnt í þínu umhverfi?
· Hvaða áherslur vilt þú sjá í löggæslu?
· Hvernig geta íbúarnir stuðlað að öruggara umhverfi?
· Hvernig geta samskipti lögreglu og íbúa skipt máli?
Þessum spurningum og mörgum öðrum viljum við leitast við að
svara á almennum borgarafundum sem haldnir verða í 12 þéttbýl-
iskjörnum umdæmisins. Á fundunum verður hið nýja embætti Lög-
reglunnar á Vestfjörðum kynnt en megin áhersla fundanna snýst
um að kalla eftir hugmyndum íbúanna um hvaða áherslur þeir vilja
sjá í löggæslunni. Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Dagur: Staður: Staðsetning: Kl.
12. febrúar Reykhólar Grunnskólinn 20:00
13. febrúar Patreksfjörður Félagsheimilið 20:00
14. febrúar Tálknafjörður Veitingah. Hópið 20:00
15. febrúar Bíldudalur Baldurshagi 20:00
19. febrúar Drangsnes Félagsheimilið 20:00
20. febrúar Hólmavík Félagsheimilið 20:00
21. febrúar Súðavík Grunnskólinn 20:00
26. febrúar Þingeyri Félagsheimilið 20:00
27. febrúar Flateyri Félagsheimilið 20:00
28. febrúar Suðureyri Félagsheimilið 20:00
1. mars Ísafjörður Stjórnsýsluh. 4. h. 20:00
5. mars Bolungarvík Félagsheimilið 20:00
Við hvetjum alla til að mæta og tjá skoðun sína á löggæslumálum
og leggja þannig lóð sitt á vogarskálarnar til stefnumótunar bættr-
ar og skilvirkari löggæslu.
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum.
Aðalfundur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Ísafjarðar
fyrir starfsárið 2006 verður haldinn miðviku-
daginn 21. febrúar 2007 kl. 20:30 í Sjálf-
stæðishúsinu, Hafnarstræti 12 (2. hæð).
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsþing.
3. Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmis-
ráðs.
4. Önnur mál. Stjórnin.
Klofningur fært styttra leyfi en Funi
Starfsleyfi fyrir sorpbrennsluna Funa í Engidal er loks væntanlegt en leyfið, og þar með leyfi til urðunar sorps að Klofningi við Flateyri,
rann út í júlí á síðasta ári. Þór Tómasson hjá Umhverfisstofnun sagði í samtali við svæðisútvarpið á dögunum að einungis ætti eftir að
undirrita leyfið hjá stofnuninni og senda vestur. Leyfið verður nú tvískipt, sorpbrennslan fær sérleyfi en urðunarstaðurinn í Klofningi í
Önundarfirði fær styttra leyfi. Í nóvember fengust þau svör hjá umhverfisstofnun að nýtt starfsleyfi væri væntanlegt um leið og búið
væri að fara yfir þær athugasemdir sem bárust vegna starfseminnar. Funi er ekki lengur fullkomnasta brennslustöð landsins þar sem
sorpbrennslurnar í Reykjanesbæ og á Húsavík eru fullkomnari. Á ruv.is er haft eftir Þór að í fyrra hafi verið tekinn í notkun viðbótar-
hreinsibúnaður í Funa, sem er umfram kröfur, en byrjunarörðugleikar hafi komið upp sem lýsi sér í auknum reyk á stundum.
Dómur hefur verið kveðinn
upp í héraðsdómi Vestfjarða
yfir þrotabúi Torfness ehf. og
því gert að greiða fyrrum starfs-
manni fyrirtækisins ógreidd
laun. Torfnes ehf. sem gerði
út Hauk ÍS-847 var tekið til
gjaldþrotaskipta 3. mars 2006.
Stefnandi réð sig ótímabundið
til starfa sem háseti á bv. Hauk
ÍS-847 hinn 25. september
2004 þar sem hann starfaði til
12. janúar 2005 með frítúrum.
Stefnandi hefur skýrt og
sundurliðað kröfur sínar svo
að hann hafi starfað á skipinu
Hauki ÍS-847 þetta tímabil og
hafi laun stefnanda því numið
125.782 krónum og 657.186
krónum, eða samtals 782.968
krónum. Til frádráttar þeirri
fjárhæð komi 484.780 krónur
sem stefnandi hafi fengið
greiddar í peningum, 107.750
krónur vegna fæðiskostnaðar,
2.600 krónur vegna leigu
myndbanda, 5.807 krónur
vegna tóbaks og fatnaðar,
5.883 krónur vegna hlutdeild-
ar í tryggingu og 27.856 vegna
4% lífeyrisiðgjalds, eða sam-
tals 634.676 krónur. Krafa
stefnanda nemi því mismunin-
um sem er 148.292 krónur.
Stefnda hefur ekki véfengt
að nefnd gögn eigi við um
launakjör stefnanda. Sam-
kvæmt öllu þessu, og eins og
málið liggur fyrir dóminum,
var því fallist á kröfur stefn-
anda. Stefnda, þrotabú Torf-
ness ehf., var gert að greiða
stefnanda 148.292 krónur, auk
dráttarvaxta og 70.000 krónur
í málskostnað.
Dóminn kvað upp Kristinn
Halldórsson, settur héraðs-
dómari.
– annska@bb.is
Þrotabúi Torfness ehf. gert að
greiða fyrrum starfmanni laun
Rokkhátíð alþýðunnar og Byggðasafn
Vestfjarða fá styrk frá Baugi Group
Styrktarsjóður Baugs Group
hefur úthlutað tónlistarhátíð-
inni Aldrei fór ég suður og
Byggðasafni Vestfjarða styrki.
Rokkhátíð alþýðunnar fékk
hálfa milljón en eins og greint
hefur verið frá verður tónlist-
arhátíðin Aldrei fór ég suður
haldin fjórða sinn á Ísafirði 7.
apríl. Hátíðin er sem kunnugt
er runnin undan rifjum þeirra
feðga Guðmundar Kristjáns-
sonar, eða Mugga hafnar-
stjóra, og Arnar Elíasar Guð-
mundssonar sem betur er
þekktur sem Mugison. Mark-
miðið var að skapa vettvang
þar sem heimamenn stæðu
jafnfætis landsþekktum tón-
listarmönnum í einni heljar-
innar skemmtun. Eins og al-
þjóð veit tókst aðstandendum
ætlunarverkið og er Aldrei fór
ég suður einn af hápunktum
ársins á Ísafirði.
Þá fær Byggðasafn Vest-
fjarða tvær milljónir vegna
fornleifauppgröfts á Eyrartúni
á Ísafirði. Í könnunargreftri á
Eyrartúni fyrir rúmum tveim-
ur árum fundust ýmsir munir
sem taldir eru vera frá 19. öld.
Má þar nefna sem dæmi
flöskubrot og öngla, hnappa,
brot úr leirpípum og kera-
miki.. Afar lítið er vitað um
upphaf byggðar í Skutulsfirði.
Ýmsir telja að Eyri hafi verið
landnámsjörð en fyrir því er
engin vissa þótt almennar lík-
ur séu nokkrar.
Eyrarbærinn stóð á bæjar-
hólnum nokkru norðan við
þann stað þar sem minnis-
merki Ragnars Kjartanssonar,
myndhöggvara, um drukkn-
aða sjómenn stendur nú. Bær-
inn hefur trúlega verið marg-
byggður á sama stað í aldanna
rás eins og venja var. Hann
var rifinn ekki allmörgum ár-
um eftir að Ísafjarðarkirkja,
sem brann árið 1987, var full-
gerð árið 1863. Tóftir bæjarins
munu hafa verið jafnaðar út á
dögum viðreisnarstjórnarinn-
ar á sjöunda áratug nýliðinnar
aldar.
Baugur Group varði 300
milljónum króna til stofnunar
sérstaks styrktarsjóðs, sem
ætlað er það hlutverk að styðja
margvísleg líknar- og velferð-
armál, auk menningar- og
listalífs. Markmið sjóðsins er
að styðja við bakið á menn-
ingar- og listalífi, auk þess að
hlúa að mannréttinda- og líkn-
armálum. Það verður meðal
annars gert með framlögum
til stofnana, samtaka og félaga
á Íslandi, sem hafa framan-
greind málefni sem aðaltil-
gang sinn.
Formaður stjórnar sjóðsins
er Jóhannes Jónsson, en aðrir
stjórnarmenn eru Hreinn Lofts-
son og Ingibjörg S. Pálma-
dóttir.
– thelma@bb.is
Aldrei fór ég suður er einn af helstu viðburðum ársins á Ísafirði.