Bæjarins besta - 08.02.2007, Side 11
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2007 11
„Hvernig sjá bæjarbúar Pollinn fyrir sér? Væri hann eitthvað minna
fallegur ef hann væri minnkaður örlítið með brattari bakka, fallegum
gróðri, steinum og göngustíg þar á ofan? Ég sé ekki að hann yrði eitt-
hvað verri ásýndar þótt við myndum breyta aðeins laginu á honum.
En ég er Hnífsdælingur og kannski eru ekki allir sammála mér.“
púl?
„Jú þetta er frekar mikil
vinna en það fer auðvitað eftir
því hversu mikið er í gangi.
Mest er þetta úthaldsvinna,
maður vinnur í um ellefu daga
og er þrjá daga í fríi, þannig
að ég sé konuna mína aðra
hvora helgi. Auðvitað viljum
við fá verk heima fyrir en það
er bara ekki nógu mikið í gangi
til þess. Það eru þó spennandi
tímar framundan í þessum
bransa. Snjóflóðagarður í Bol-
ungarvík á næstunni, vega-
gerð í Djúpinu og þar fram
eftir götunum. Það er margt
að gerast næstu árin og við
reynum að ná eins miklu og
við getum. Við förum þangað
sem verkin eru, og erum mest-
megnis með heimamenn í
vinnu en við erum líka með
starfsmenn annars staðar að
af landinu, gott starfsfólk er
gulls ígildi sem við reynum
að halda í.
Oft eru þetta ansi miklar
vegalengdir sem við þurfum
að fara til að sinna verkunum.
Til að mynda vorum við með
verk á Bíldudal og þurftum
að keyra 800 km til að komast
þangað þegar verst lét, ef jarð-
göngin milli Dýrafjarðar og
Arnarfjarðar sem eru reyndar
á áætlun, hefðu verið komin í
gagnið hefði keyrslan verið
innan við 150 km.
Ef engin verkefni væri að
fá á Íslandi myndum við sjálf-
sagt leita til útlanda. Auðvitað
vill maður vera heima en það
er nú ekki svo langt að fljúga
til Evrópu, tekur rétt um þrjá
tíma. Fyrst útlendingar geta
komið til landsins til að vinna
því ættum við þá ekki að geta
farið út til að sinna verkum.
– Óraði þig fyrir því þegar
þú varst að alast upp, að þú
myndir fara út í þennan geira
þegar þú yrðir eldri?
„Nei, ég er menntaður húsa-
smíðameistari og vélstjóri. Nú
er ég þó að loka hringnum
með samvinnunni við Geir-
naglann og Magga Helga, sem
ég vann með áður en ég fór út
í þennan bransa.
Nei maður hafði ekki hug-
mynd hvað maður ætlaði að
verða þegar maður yrði stór.
Svo er þetta fljótt að gerast og
maður reynir bara að gera
eitthvað af viti“, segir Sævar
Óli Hjörvarsson sem er upp-
fullur af hugmyndum og hefur
drifkraftinn til að koma þeim
í framkvæmd.
– thelma@bb.is
ég sé þau