Bæjarins besta - 08.02.2007, Side 13
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2007 13
Skipa starfshóp um lýðheilsumál
Bæjarráð Bolungarvík hefur skipað starfshóp til að huga að lýðheilsumálum. Í starfs-
hópnum eiga sæti þau Anna G. Edvardsdóttir formaður, Ólafur Kristjánsson og
Sigrún Gerða Gísladóttir. Tilgangur starfshópsins verður m.a. að skoða og meta
þarfir og úrlausnir Bolvíkinga á félags- og lýðheilsusviði sem og að meta og finna
leiðir til að bæta búsetuskilyrði í sveitarfélaginu, jafnt hjá ungum sem öldnum.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að senda meðlimum starfshóps erindisbréf. Gert er ráð
fyrir að hópurinn starfi í tvö ár og skili áfangaskýrslum á tímabilinu og lokaskýrslu.
Fjarnám í þjálfunarfræðum
Fjarnám í þjálfunarfræðum mun hefjast í fyrsta sinn á Vestfjörðum í febrúar.
Um er að ræða fyrsta stigs menntun á vegum Íþróttasambands Íslands.
Námið tekur átta vikur og gefur tvær námseiningar á framhaldsskólastigi.
„Það hefur verið krafa okkar sem störfum fyrir íþróttahreyfinguna utan stór
Reykjavíkursvæðisins að þeir sem bjóða upp á þjálfaramenntun reyni að auka
möguleikana á fjarnámi. Með því verður okkur betur gert kleift að mennta
okkar þjálfara til jafns við þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu“.
Áhugamenn um vegasam-
göngur á Vestfjörðum hafa
sent bréf til opinberra aðila
þar sem bent er á að hægt sé
að stórauka arðsemi þjóðvegs
60 með því að tengja hann
þjóðvegi 61, Djúpvegi í Kolla-
firði, með göngum þaðan í
Ísafjörð. Í bréfinu segir þá
m.a.: „Vestfirðingar fagna því
að nú liggur fyrir að hægt sé
að leggja láglendisveg um
miðbik Reykhólasveitar á
þjóðvegi 60. Við undirritaðir
bendum á að hægt er að stór-
auka arðsemi vegarins með
að tengja þjóðveg 61, Djúpveg
í Kollafirði, með göngum það-
an í Ísafjörð. Við það styttist
núverandi leið milli Ísafjarðar
og Reykjavíkur um u.þ.b. 90
km. Og jafnframt er hægt að
aka alla leiðina á láglendis-
vegi, sem stóreykur öryggi
vegfarenda og mun gera lokun
vegarins vegna veðurs að sára-
fáum undantekningum“.
Þá segir einnig að áætluð
Arnarfjarðargöng muni ekki
koma að miklum notum fyrr
en búið sé að endurgera veg
um eða undir Dynjandisheiði.
„Nú er áætlað að hefja gerð
Arnarfjarðarganga, sem áætl-
uð er af samgönguráðherra
næstu jarðgöng á Íslandi.
Samkvæmt talningu er haust-
umferð á meðan vegir eru
greiðfærir á þeirri leið ein-
ungis örfáir bílar á dag og
göngin koma ekki að miklum
notum fyrr en búið er að end-
urgera veg um eða undir Dynj-
andisheiði. Þá er nú ekki öll
sagan sögð því eftir eru Klett-
háls og Gemlufallsheiði þann-
ig að hægt sé að tala um lág-
lendisveg fyrir stæðasta hluta
Vestfirðinga til og frá Vest-
fjörðum. Ef sú jarðgangna-
gerð færðist nú yfir að Kolla-
fjarðarheiði, er líklegt að inn-
an fimm ára verði komin
greiðfær heilsársleið á milli
Vesturbyggðar, Reykhóla-
sveitar, Ísafjarðar og Stranda-
sýslu, og miðað við umferð-
arþunga má hún teljast ásætt-
anlega löng miðað við að
greiðfær sumarumferð verði
um Arnarfjörð. Við leggjum
til að könnuð verði hag-
kvæmni þessara breytinga á
þjónustuumhverfi Vestfirð-
inga og jafnframt könnuð hag-
kvæmasta leiðin með tilliti til
vegalengda og öryggis á sam-
eiginlegri leið Vestfirðinga
inn á þjóðveg nr. 1 með fram-
tíðarsýn í huga“.
Afrit af bréfinu var sent til
allra þingmanna kjördæmis-
ins, þar á meðal samgöngu-
ráðherra, til stjórnar Fjórð-
ungssambandsins, sveitar-
stjórnarmanna á Vestfjörðum
og til Vegagerðarinnar.
Undir bréfið skrifa Hjörleif-
ur Guðmundsson, Ólafur
Kristjánsson, Sigurður B. Ól-
afsson, Steinþór Bragason,
Úlfar B Thoroddsen, Úlfar
Ágústson og Valdimar Lúðvík
Gíslason. – eirikur@bb.is
Vilja jarðgöng frá Kollafirði yfir í Ísafjörð
Mikilvægt að fá bætta aðstöðu
fyrir gesti skemmtiferðaskipa
Guðmundur Ingi Kristjánsson
Endurútgefa heildar-
safn ljóða skáldsins
Til stendur að endurút-
gefa heildarsafn ljóða Guð-
mundar Inga Kristjánsson-
ar, fyrrum heiðursborgara
Ísafjarðarbæjar, ljóðskálds
og bónda sem orðið hefði
100 ára í ár. Safnið nefnist
Sóldagar og seldist upp er
það kom út árið 1993 og
hefur ekki verið fáanlegt um
nokkurra ára bil. Í bókinni
er að finna ljóð úr öllum
fimm ljóðabókum skálds-
ins, auk kvæða sem hann
orti eftir að síðasta bók hans,
Sólfar, kom út árið 1982.
Var ákveðið að endurútgefa
bókina á fundi sem Sigríður
Magnúsdóttir hélt með börn-
um Ólafs Þ. Kristjánssonar,
en unnið hefur verið að því
síðastliðnar vikur að leita
leiða til að minnast 100 ára
afmælis Guðmundar, sem
var 15. janúar síðastliðinn.
Meðal þeirra hugmynda
sem ræddar hafa verið til
að minnast afmælisins eru
að halda á Flateyri hagyrð-
ingamót og söngskemmtun
helgina fyrir páska, að halda
málþing um vestfirsk skáld,
t.d. á degi Íslenskra tungu
16. nóvember, að halda skóg-
ræktardag í Holti í júní, og
hefur sú hugmynd líka verið
uppi að efla Ingastofu sem
er gamla skólastofan hans í
Holti. Þar hefur verið komið
fyrir nokkrum munum sem
voru í eigu hans. Auk þess-
ara atburða er í undirbún-
ingi útgáfa óbirtra ljóð og
vísna Guðmundar Inga, sem
hann orti við hvern dag árs-
ins. Leitað er fjármögnunar
til þeirrar útgáfu.
– eirikur@bb.is
Hagsmunaaðilar og áhuga-
fólk um móttöku skemmti-
ferðaskipa á Ísafirði hefur sent
bæjarráði Ísafjarðar ályktun
sem samin var á fundi um
skemmtiferðaskipamál sem
haldinn var á haustmánuðum.
Hnykkja þau þar á þeirri ósk
að farið verði í gerð göngu-
stíga við og frá höfninni sem
nýtast gestum skemmtiferða-
skipa. Fundurinn taldi ásýnd
bæjarins á því svæði sem gest-
ir skemmtiskipa fara um
ábótavant og hefur Hafnar-
stjórn Ísafjarðarbæjar ítrekað
ályktað um þetta mál. Fundur-
inn taldi mjög mikilvægt að á
Ísafjarðarhöfn rísi þjónustu-
hús fyrir ferðamenn á svæð-
inu. Í þjónustuhúsinu væri
hægt að sameina upplýsinga-
þjónustu við farþega skemmti-
ferðaskipa og ýmiskonar þjón-
ustu við aðra ferðamenn, eins
og t.d. Hornstrandafara. Einn-
ig skal líta til ferðamanna á
skútum og skemmtibátum við
byggingu hússins. Hafnir Ísa-
fjarðarbæjar hafa um þetta
góðar hugmyndir sem mikil-
vægt er að fái nægan hljóm-
grunn til að verða að veruleika
fyrir næsta sumar.
Fundurinn taldi að enn þurfi
að gera umtalsverðar úrbætur
í aðgengismálum við Byggða-
safnið í Neðstakaupstað. Und-
irlag þar er nokkuð gróft og
þegar mikill fjöldi gesta er á
svæðinu, eins og gerist þegar
skemmtiferðaskip hafa við-
dvöl, annar svæðið ekki þeirri
umferð á þröngum stígunum
sem þar eru. Þá er aðgengi
fyrir hjólastóla ábótavant.
Fundinum fannst vanta til-
finnanlega minjagripi fyrir
Ísafjörð og töldu þeir sem þar
voru að heppileg lausn á því
máli væri að Ísafjarðarbær
héldi samkeppni um gerð
minjagrips sem væri einkenn-
andi fyrir Ísafjörð/Ísafjarðar-
bæ. Samkeppnin innifæli þá
hönnun tveggja eða þriggja
gripa sem væru allir tilbrigði
við sama stef, en væru allir
mismunandi dýrir og höfðuðu
þannig til mismunandi mark-
hópa. Samkvæmt tillögunni
leggur Ísafjarðarbær til verð-
launafé og/eða sölutryggir
ákveðið upplag, sem bærinn
getur notað í samskiptum
sínum við vinabæi, fundi og
annað þegar þess þarf. Þá telur
fundurinn mikilvægt að vekja
þá vinnu sem farin var af stað
við gerð nýs skjaldarmerkis
fyrir bæjarfélagið.
Fundinn sátu ferðamálafull-
trúi Ísafjarðarbæjar, hafnar-
stjóri, leiðsögufólk, fulltrúar
Vesturferða, Byggðasafnsins,
upplýsingamiðstöðvarinnar
og Markaðsstofu Vestfjarða.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar tók
erindið fyrir á síðasta fundi
og vísaði því til kynningar í
hafnarstjórn og atvinnumála-
nefnd. – annska@bb.is
Minerva er fyrsta klassa skemmtiferðaskip sem hafði viðdvöl á Ísafirði sl. sumar.