Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.02.2007, Side 18

Bæjarins besta - 08.02.2007, Side 18
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 200718 Ábendingar um efni sendist til Thelmu Hjaltadóttur, thelma@bb.is – sími 849 8699 Mannlífið Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Blogg Hlyns Þórs Magnússonar http://maple123.blog.is/blog/maple123 „Senn líður að lokum knattspyrnuferilsins hjá Eiði Smára Guðjohnsen, enda verður hann 29 ára í haust. Ef lykilmennirnir hjá Barcelona sleppa við alvarleg meiðsli og spila ekki miklu verr en þeir hafa gert, þá virðast litlar líkur til þess að hann fái þar mörg tækifæri, a.m.k. ekki í byrjunar- liðinu. Þá er spurningun: Hvað gerir Eiður Smári undir lokin? Fer hann til West Ham og spilar í fyrstu deildinni á næsta ári eða kemur hann heim og spilar kannski með Val í tvö-þrjú ár?“ Smáauglýsingar Til sölu er Isuzu Trooper árg. 91. Bíll í góðu standi. Skoaður 07. Annar sem hægt er að nota í varahluti fylgir með. Upplýs- ingar í síma 868 1739. Til sölu er MMC Pajero árg. 98. Sumar- og vetrardekk á felgum fylgja. Skoðaður 08. Topp ein- tak, mjög vel með farinn. Uppl. í síma 892 6010. Þorrablót Sléttuhreppinga verð- ur haldið 17. febrúar í Félags- heimilinu í Hnífsdal. Nánar aug- lýst síðar. Skemmtinefndin. Þorrablót Austfirðingafélagsins á Vestfjörðum verður haldið laugardaginn 17. febrúar. Þátt- taka tilkynninst til Áslaugar í síma 899 0742, Hörpu í síma 843 0413 eða Guðrúnar í síma 863 4945. Til sölu er lítið nota trommu- sett. Selst á kr. 15.000. Uppl. í síma 892 1694. Til sölu er Land Rover Discovery 5 cyl, dísel, arg. 2000. Verð kr. 1.850 þús. Flottur, sparneytinn og góður jeppi. Skipsti á ódýari kemur til greina. Uppl. í síma 892 1694. Þorrablót Grunnvíkingafélags- ins verður haldið í Félagsheim- ilinu í Hnífsdal 10. febrúar nk. Miðapantanir eru í símum 868 0703 (Linda), 867 5560 (Guð- björg) og 456 4145 (Sigríður). Alls svöruðu 880. Já sögðu 423 eða 48% Nei sögðu 329 eða 37% Óvíst sögðu 128 eða 15% Spurning vikunnar Stefnir í hrun á Vestfjörð- um í ljósi fólksfækkunar og neikvæðs hagvaxtar? Vel heppnað þorra- blót Hnífsdælinga Til sölu! Til sölu eru eignir Sæfara, félags áhugamanna um sjósport á Ísafirði. Um er að ræða dráttarbraut sem tekur allt að 30 tonna báta, 123m² íbúð á 2. hæð í vesturhluta, 65m² horníbúð á jarðhæð, 186m² íbúð á 2. hæð í suðurhluta, 132m² verkstæði á jarðhæð, 240m² verkstæði á jarðhæð og 39m² bílskúr. Eignirnar seljast i hlutum eða allt í einni sölu. Tilboðum skal skila fyrir kl. 16 mánudaginn 12. febrúar. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Nánari upplýsingar gefur Örn Torfason í síma 848 3460. Á annað hundrað manns sóttu þorrablót Hnífsdælinga sem var haldið í félagsheim- ilinu í Hnífsdal á laugardag. „Blótið heppnaðist alveg rosa- lega vel í alla stað og voru í húsinu yfir 150 manns sem er mjög fínn fjöldi. Fyrir um átta árum var blótið alltaf mjög vel sótt, eða um 220 gestir, en eftir að þorrablótum fjölgaði á svæðinu fækkaði gestum og er nú aðsóknin aftur farin að aukast. Að mínu mati er ekki æskilegt að það séu mikið meira 170 manns svo það sé ekki of troðið í salnum“, segir Margrét Skúladóttir sem var í skemmtinefnd. Gestir komu með trog að heiman og tóku vel til matar síns. Boðið var upp á heimatil- búin skemmtiatriði þar sem átthagabrandarar um daglegt líf þeirra sem búa í dalnum voru í fyrirrúmi. Að borðhaldi loknu var slegið upp dansleik þar sem Hjónabandið hélt uppi stuði. „Það er að verða fastur liður að Hjónabandið spili á blótinu enda kann það þjóð- söng Hnífsdælinga sem búinn var til úr ýmsum línum úr skemmtivísum og sunginn er á hverju þorrablóti“, segir Margrét. Kvenfélagið Hvöt sá að vanda um framkvæmd blótsins og var þetta í 59. sinn sem það var haldið. Þorsteinn J. Tómasson kom við á þorra- blótinu og tók þar meðfylgj- andi myndir.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.