Bæjarins besta - 08.02.2007, Page 19
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2007 19
Sælkeri vikunnar er Þórunn Anna Elíasdóttir á Ísafirði
Kjúklingasalat, ítalskt
brauð og rabarbarakaka
Horfur á föstudag: Austanátt, snjókoma eða slydda
sunnan- og austantil, en annars skýjað með köflum og
yfirleit þurrt. Horfur á laugardag: Austlæg átt g víða
rigning eða slydda og hiti 0-6 stig. Horfur á sunnudag:
Austlæg átt g víða rigning eða slydda og hiti 0-6 stig, en
yfirleitt þurrt á Norðurlandi og hiti undir frostmarki.
Helgarveðrið
Sælkeri vikunnar býður upp
á kjúklingasalat, ítalskt brauð
og rabarbaraböku í eftirrétt.
„Þetta er salat sem ég og systir
mín gerum oft og er í miklu
uppáhaldi. Það hentar bæði á
heitum sumardegi og þegar
maður er komin með nóg af
þungum þorramat sem landinn
treður í sig þessa dagana. Upp-
skriftin dugir fyrir 4-5, en auð-
velt er að minnka hana og
stækka eftir þörfum. Einnig
fylgir með uppskrift af ítölsku
brauði með sólþurrkuðum tóm-
ötum og í eftirrétt er rabarbara-
baka“, segir Þórunn Anna.
Kjúklingapastasalat
500 g pasta-slaufur
4 kjúklingabringur (ef lítill
tími er til eldunar þá er snið-
ugt að kaupa tilbúna kjúkl-
ingabita)
Beikon – ca 1 bréf
Kál (lambhaga, spínat eða
klettasalat)
Cherrytómatar
Blaðlaukur
Paprika
Annað grænmeti eftir smekk.
Hvítlauksolía (brytjaður
hvítlaukur og matarolía)
Furuhnetur
Pastað er soðið og beikonið
steikt en það er síðan klippt í
búta. Kjúklingurinn er skorinn
í bita, steiktur og kryddaður
lítillega. Þetta allt má jafnvel
elda deginum áður. Grænmetið
er skorið niður í hæfilega stóra
bita. Magn fer eiginlega eftir
smekk, en í þetta fer oftast einn
salathaus, ein paprika, einn
blaðlaukur og einn kassi af tóm-
ötum. Þegar pastað er tilbúið,
er hvítlauksolíunni hellt yfir,
ekki of miklu. Frekar að hver
bæti við eftir smekk eftir á.
Öllu er síðan blandað saman í
stóra skál og borðað með brauð-
inu.
Ítalskt brauð með sól-
þurrkuðum tómötum
7 g þurrger
1 tsk sykur
1 ½ dl volgt vatn
2-3 sólþurrkaðir tómatar
1 msk graslaukur
½ rauð paprika
1 tsk rósmarín
1 tsk oreganó
300 g hveiti
½ tsk salt
1 tsk ólífuolía
Leysið gerið og sykurinn upp
í örlitlu af vatninu. Hrærið vel.
Bætið afgangnum af vatninu
saman við og látið bíða á volg-
um stað í fimm mínútur. Saxið
sólþurrkaða tómata, graslauk og
papriku. Hrærið saman við
gerblönduna ásamt kryddi.
Sigtið hveiti og salt í stóra skál.
Hellið gerblöndunni út í og
hnoðið vel. Breiðið plastfilum
yfir skálina og látið hefast á
volgum stað í eina klst. Eða þar
til það hefur tvöfaldast að stærð.
Hnoðið deigið aftur í 2-3 mín.
Bætið e.t.v. smá hveiti saman
við. Fletjið deigið út í hringlaga
brauð, 23 cm í þvermál. Setjið
á bökunarplötu með pappír.
Penslið brauðið með ólífuolíu
og skerið mynstur ofan á brauð-
ið. Látið hefast í 30 mín. Bakið
í 200°C heitum ofni í 25 mín.
Rababarabaka
Ca. 400 g rababari (bestur
þessi rauði)
2 epli eða perur
Marsipan
½ dl hveiti
2 ½ dl sykur
2 egg
1 ¾ dl hveiti
1 ½ dl púðursykur
50 g smjör
Skerið rabarbarann í 2 cm
bita. Blandið saman rabarbara,
eplum, hveiti, sykri og eggjum.
Setjið í smurt eldfast mót (u.þ.b.
24 cm í þvermál). Ef um frosinn
rababara er að ræða þá er gott
að strá aðeins kartöflumjöli yfir
í forminu svo þetta verði ekki
of blautt.
Marsipan eftir smekk mulið
yfir. Myljið saman hveiti, púð-
ursykur og smjör, dreifið yfir
rabarbarafyllinguna. Þetta er
bakað við 200°C í svona 45
mín. Berið fram volgt með
rjóma og/eða ís.
Ég skora á systur mína, Al-
bertínu Elíasdóttur á Ísafirði
að vera sælkera næstu viku.
Fagnar 100 ára afmæli
Kvenfélagið Von á Þingeyri fagnar 100 ára afmæli í þess-
um mánuði og af því tilefni verður boðið til afmæliskaffis í
félagsheimili staðarins 18. febrúar. Á bóndadag færðu
kvenfélagskonur öllum heimilum í þorpinu rós ásamt boðs-
korti í afmælið. Þær ætla þó ekki að láta staðar numið þar
heldur halda upp á afmælið með ýmsum hætti út árið.
Kvenfélagið var stofnað sunnudaginn 17. febrúar 1907.
Alvestfirskt fyrirtæki á
nígerískum markaði
Klofningur ehf., á Suður-
eyri var stofnað í janúar 1997
og fagnar því 10 ára afmæli
um þessar mundir. Klofningur
er fyrirtæki sem sérhæfir sig í
úrvinnslu auka afurða á fiski.
Meginstoðin í starfsemi fyrir-
tækisins hefur verið þurrkun
á hausum fyrir Nígeríumark-
að. Mikið vatn hefur runnið
til sjávar síðan fyrirtækið var
stofnað en á síðasta ári tók
fyrirtækið á móti rúmum
12.500 þúsund tonnum af hrá-
efni. Í dag hefur fyrirtækið
fimm starfsstöðvar; á Suður-
eyri, Ísafirði, Brjánslæk og
Tálknafirði. Klofningur hélt
ærlega upp á afmælið sitt um
miðjan janúar er fyrirtækið
bauð til heljarinnar veislu í
húsakynnum sínum á Suður-
eyri. Í tilefni af afmælinu var
ákveðið að verja einni milljón
króna til umhverfismála á
Suðureyri. Blaðið ræddi við
Guðna A. Einarsson fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins
um upphafið og reksturinn í
dag.
– Hvert var upphaf fyrirtæk-
isins?
„Það byrjaði nú þannig að
nokkrum okkar í fiskvinnsl-
unni fannst óþarfi að flytja
fiskhausana austur og norður
í land. Raunverulega var allt
til staðar sem til þurfti á Suð-
ureyri til þess að vinna þá þar.“
– Var ætlunin alltaf að flytja
afurðina alla leið til Nígeríu?
„Já Nígería er í sjálfu sér
eini markaðurinn. Síðan höf-
um verið að prófa okkur áfram
í ýmsu öðru. Klofningur er í
dag alhliða úrvinnslufyrirtæki
sem sérhæfir sig í auka afurð-
um. Markmiðið er að ná að
nýta allt sem fellur til hliðar í
hefðbundinni fiskvinnslu og
gera sem mest verðmæti úr
því.“
– Hversu margir starfsmenn
eru hjá fyrirtækinu?
„Í dag starfa um 30 í fimm
starfstöðum fyrirtækisins,
tvær eru á Suðureyri, síðan er
stöð á Ísafirði, Brjánslæk og
Tálknafirði. Fyrirtækið er al-
vestfirskt. Aðaleigendur eru
fiskvinnslufyrirtæki hér vestra
og svo einstaklingar. Rekstur-
inn hefur gengið ágætlega, þó
þetta hafi komið hægt og síg-
andi.“
Fiskhausar sem
súpubragðbætir
– Í gegnum starfið hefur
Guðni oft farið til Nígeríu í
viðskiptaferðir, þar sem hon-
um hefur verið vel tekið.
„Þegar við byrjuðum á
þessu hélt ég að litið væri á
afurðina sem eitthvað drasl.
Ég hafði því mikinn áhuga á
því að fara út til að sjá hvernig
útkoman væri á þegar varan
væri komin á áfangastað. Mín
stærsta uppgötvun þegar ég
kom til Nígeríu var sú að inn-
fæddir voru ekki að borða
fiskhausana af því að þeir voru
svo hollir heldur af því þeim
fannst þeir svo bragðgóðir. Þá
var búið að telja manni trú um
að þeir væru að sækjast eftir
eggjahvítuefnum eða ein-
hverju þvíumlíku, sem auðvit-
að spilar ábyggilega líka inn í
því þeim er ekkert sama um
það hvað þeir láta ofan í sig.
En aðalmálið var hversu gott
þeim þykir þetta, hausarnir eru
látnir í súpur til að fá almenni-
legt bragð.“
– Er markaðurinn í Nígeríu
stór?
„Aðalmarkaðurinn er Bi-
afrasvæðið en þetta hefur
dreifst víða um Nígeríu og
nær raunverulega yfir allt
landið í dag. Um er að ræða
tvo þjóðflokka og þá aðallega
annan þeirra sem er skipaður
af 60-70 milljón manna. Þetta
er gífurlega fjölmennur mark-
aður. Það hefur nú verið meiri
eftirspurn heldur en framboð
síðan ég byrjaði í þessum
bransa. Það hefur ekki verið
vandamál að selja vöruna.“
– Eru fleiri íslensk fyrirtæki
á þessum markaði?
„Já, þetta er verður æ al-
gengara. En í fyrstu ferðinni
okkar þangað út 1998 hafði
ekki verið unnið að markaðs-
setningu sem slíkri í Nígeríu.
Það hefur verið gert síðan svo
segja má að það hafi verið
brotið blað í sögu þarna.“
Chief í konungs-
dæminu Abríba
– Nígeríumenn hafa tekið
þér afar vel, og þú fékkst mik-
ilvæga nafnbót fyrir nokkrum
árum ekki satt?
–Jú það má nú segja að sé
önnur saga“, segir Guðni og
hlær. „Það var í konungsdæm-
inu Abríba að ég og Hilmar
Daníelsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Fiskmiðlunar
Norðurlands, vorum sæmdir
höfðingjatign og berum nú tit-
ilinn „chief“ í ríkinu. Nafn-
bótina fengum við eftir kúnst-
arinnar reglum í þorpi sem
heitir Abríba.
– Var það ekki mikill heið-
ur?
„Það má segja að enginn er
heiðraður með þessum titli
nema að þeir telji hann hafa
gert eitthvað fyrir land og
þjóð. Þannig túlka ég það að
minnsta kosti. Nafnsbótin hef-
ur alveg hellings áhrif þarna
úti og maður komst bara á
annan stall í næstu ferðum
eftir á.“
– Og að lokum hvernig kom
nafnið Klofningur til?
„Það voru Súgfirðingar og
Flateyringar sem stofnuðu
fyrirtækið og gamla leiðin á
milli Suðureyrar og Flateyri
er kölluð Klofningur. Okkur
fannst því við hæfi að nota
það nafn“, segir Guðni.