Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 20076
Hveitibrauðsdagar
Ritstjórnargrein
Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564
Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir,
símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is – Tinna Ólafsdóttir, sími 868 5963, tinna@bb.is
Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125,
halldor@bb.is · Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 300
eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. ·
Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X
Til sölu Árgerði, Ísafirði
Fasteignin Árgerði (Árholt 8-10) Ísafirði er
til sölu. Um er að ræða 137m² einbýlishús,
byggt árið 1968, ásamt 44m² bílskúr sem
byggður var árið 1995. Fasteignin var öll
endurnýjuð að innan árið 1995. Eigninni
fylgir mjög stór eignarlóð. Fasteignin gæti
verið laus til afhendingar frá 15. september
2007.
Fasteignin er til sýnis í samráði við Björn
Jóhannesson, hrl., í síma 456 4577, sem
jafnframt gefur allar nánari upplýsingar um
eignina.
Óskað er eftir tilboðum í eignina og skal
þeim skilað til Björns Jóhannessonar, hrl.,
Aðalstræti 24, Ísafirði, fyrir 14. júní nk. Áskil-
inn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Lögsýn ehf.,
Björn Jóhannesson, hrl.
Hveitibrauðsdagar nýrrar ríkisstjórnar eru farnir að renna úr
stundaglasinu; tíminn sem venja er að gefa nýjum stjórnendum
til að sanna hvers sé að vænta af þeirra hálfu. Sem við var að
búast hafa viðbrögð við samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar verið blandin. Ýmis hagsmunasamtök segjast
þó binda vonir við sitthvað sem boðað er í stjórnarsáttmálanum,
plaggi sem stjórnarandstaðan segir að miklu leyti almennt og
innihaldslítið snakk og lofar harði andstöðu gegn öllu því sem
hún segir sjáanlegt að fara muni úrskeiðis. Þá hafa verið uppi
gagnrýnisraddir um ráðherravalið. Að venju var meira framboð
til þeirra verka en störfin sem í boði voru. Á því margur um
sárt að binda.
Tilfærslur á málaflokkum milli ráðuneyta kunna að vera
upphaf að fækkun ráðuneyta. Gott mál. Vonandi fylgir sam-
þjöppun í utanríkisþjónustunni og fækkun sendiráða í kjölfarið.
Svo dæmi sé tekið væri yfrið nóg að hafa eitt sendiráð fyrir öll
Norðurlöndin. Þegar fram í sækir þarf svo að stíga hið óum-
flýjanlega skref að skilja á milli löggjafans og framkvæmda-
valdsins. Allt þetta þarf sinn tíma. Upphaf hverrar göngu er
fyrsta skrefið. Sumarþingið sem boðað hefur verið í vikunni
mun leiða í ljós hvers vænta megi. Eitt verður þó að segjast
eins og er, það eru greinilega ekki mikil veðrabrigði í vændum
í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum, sem nú eru komin á
eina hendi.
Ósvinna
Á hvítasunnunni var þess minnst að 100 ár voru liðin frá því
Kleppsspítalinn tók til starfa. Á svo löngum tíma hefur margt
breyst, læknismeðferð, aðbúnaður sjúklinga og viðhorf al-
mennings til hinna sjúku. Enn er þó haft á orði að fordómar séu
til staðar í garð fólks sem haldið er andlegum veikleika.
Lengst af hafði orðið Kleppur neikvæða merkingu meðal
fólks og geðveiki var nokkuð sem talað var um í hálfum hljóð-
um vegna fákunnáttu og ef til vill ótta. Nú er annað uppi á ten-
ingnum. Nú er allt meira og minna geðveikt, nafngiftin orðin
að tískuorði, lýsingarorði til áherslu á ágæti fólks og eiginleik-
um á nær öllum sviðum! Enginn nema sá er á brennur veit
hversu nærri það getur gengið einstaklingi og aðstandendum
að takast á við erfiða sjúkdóma. Auðvitað ber að nefna hlutina
réttum orðum. Það er ekki lengur skömm að því að vera veikur
á geði frekar en vera haldinn einhverjum öðrum sjúkdómi.
Það ber hins vegar vott um takmarkaðan skilning á aðstæðum
fólks, sem glímir við andlegan sjúkdóm, jafnvel árum saman,
að viðhafa sömu nafngiftina yfir sjúkleika þess og ágæti fólks,
sem talið er ganga heilt til skógar, á sviði svokallaðrar menn-
ingar. Látum af þessari ósvinnu.
s.h.
Grunnskóli Bolung-
arvíkur stækkaður
Á þessum degi fyrir 21 ári
Bæjarstjórn Bolungarvíkur samþykkti fyrir skömmu
teikningar að fyrri áfanga viðbyggingar Grunnskólans og
heimilaði byggingarnefnd að hefja framkvæmdir. Er reikn-
að með að á þessu ári verði steyptir sökklar og grunnplata.
Viðbyggingin rís við vesturenda núverandi húss. Gamla
byggingin, sem raunar er þó ekki nema um tvítugt, er
rúmir 1,220 fermetrar að stærð og þar eru 8 kennslustofur
auk skrifstofu skólastjóra, þröngar kennarastofu og bóka-
safns. Þar er orðið allt of þröngt um skólann, enda fer hluti
kennslunnar fram annars staðar í bænum.
Nýbyggingin, sem áætlað er að taka í notkun haustið
1990, er nokkru stærri, tæpir 1,390 fermetrar. Samkvæmt
grófri kostnaðaráætlun sem miðuð er við byggingarvísitölu
í apríl sl. er kostnaður ráðgerður um 52 milljónir króna.
Þar er gert ráð fyrir 4 almennum kennslustofum, serkenn-
slustofu og tónmenntastofu, skólabókasafni og setustofu
nemenda auk stjórnunaraðstöðu og vinnuaðstöðu kennara.
Umferðalagabrotum fjölgar milli ára
Mun fleiri umferðarlagabrot voru framin í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði í apríl samanborið
við síðustu tvö ár. Alls voru framin 66 umferðalagabrot í apríl 2007, 40 í fyrra og 49 árið
2005. Hegningarlagabrot standa nokkurn veginn í stað milli ára og sömuleiðis fíkniefnabrot.
Þetta kemur fram í mánaðarskýrslum ríkislögreglustjóra, en þar eru birtar upplýsingar um skráð
brot hjá öllum lögregluembættum á landinu í ár, auk þess sem tölur síðustu tveggja ára fylgja
með. Í skýrslunni eru birtar upplýsingar um stöðu brota eins og þau voru í málaskrá lögreglu
þann 14. maí 2007. Það er tekið fram að tölur fyrir árin 2006 og 2007 eru bráðabirgðatölur.
Torfhildur 103 ára
Torfhildur Torfadóttir, íbúi á Hlíf íbúðum aldraðra á Ísafirði var 103
ára á fimmtudag í síðustu viku. Torfhildur er elst Vestfirðinga og fjórði
elsti Íslendingurinn. Hún hefur að sögn alla tíð verið heilsuhraust og
hefur meðal annars vakið athygli fyrir þátttöku sína í kvennahlaupinu
árvissa. Torfhildur er fædd í Asparvík á Ströndum og var yngst átta
barna Önnu Bjarnveigar Bjarnadóttur og Torfa Björnssonar. Að auki átti
Torfhildur þrjú hálfsystkini. Nokkur systkina Torfhildar náðu háum aldri.
Karlmaður var á dögunum
sakfelldur í Héraðsdómi Vest-
fjarða fyrir líkamsárás, sem
átti sér stað á Þingeyri aðfara-
nótt 1. janúar 2005. Mannin-
um var gefið að sög að hafa á
veitingastaðnum Tóka munki,
skallað annan mann fyrirvara-
laust í andlitið með þeim af-
leiðingum að hann hlaut
skekkju á nefi, fleiður á nef-
bryggju, bólgur á nefi og
skemmdir á húðtaugum. Ákærði
neitaði sök, en vitnum bar
saman um að ákærða og brota-
þola hafi lent saman og ákærði
hafi skallað manninn í andlit-
ið, svo hann féll í gólfið.
Ákærði hefur ekki sætt refs-
ingum áður, samkvæmt saka-
skrá, en við uppkvaðningu
dómsins var litið til þess árás
hans var án afsakanlegs eða
réttlætanlegs tilefnis og al-
mennt er talið alvarleg atlaga
að skalla mann í andlit. Ákær-
ði var því dæmdur í 30 daga
fangelsi, en fresta skal fulln-
ustu refsingarinnar og hún
falla niður að liðnu einu ári
frá uppsögu dómsins haldi
ákærði almennt skilorð. Þá
skal ákærði greiða brotaþola
78.862 krónur, með dráttar-
vöxtum frá 21. júlí 2005 til
greiðsludags. Ákærði greiði
191.292 krónur í sakarkostn-
að, þ.m.t. málsvarnarlaun
skipaðs verjanda síns.
– tinna@bb.is
Dæmdur fyrir líkamsárás
Vegleg hátíðahöld verða í
boði á sjóarahátíðinni í Bol-
ungarvík umhelgina. Dagskrá
hátíðarinnar mun spanna tvo
daga eins og undanfarin ár og
hefst á laugardag kl. 10 með
skemmtisiglingu með stærri
sem smærri bátum. Klukkan
14 hefst skemmtidagskrá við
höfnina þar sem m.a. verður
boðið upp á kappróður, belg-
jaslag, flekahlaup og keppni í
sjómann. Á sjómannadaginn
sjálfan verður boðið upp á
skrúðgöngu frá Brimbrjóts-
sundi, messu í Hólskirkju,
heiðrun sjómanna, minning-
arathöfn í kirkjugarði og að
lokum kaffiveitingar í húsi
björgunarsveitarinnar Ernis í
Bolungarvík.
Þá verður einnig boðið til
hátíðarkvöldverðar í Víkurbæ
á laugardeginum þar sem m.a.
hinn bráðfyndni uppistandari
Brynja Valdís mun skemmta.
Regína Ósk, Friðrik Ómar og
Grétar Örvarsson munu syngja
og leika tónlist af sinni al-
kunnu snilld. Hrólfur Vagns-
son mun sjá um tónlist yfir
borðhaldi. Veislustjórn verður
í höndum Benedikts Sigurðs-
sonar og fram kemur í tilkynn-
ingu að hann taki líka nokkur
lög og stjórni fjöldasöng við
undirleik Hrólfs Vagnssonar.
Að dagskrá tæmdri mun
Eurobandið með Regínu Ósk,
Friðrik Ómari og Grétari Örv-
ars í broddi fylkingar sjá um
að halda uppi fjöri, m.a. með
því að leika þekktustu Euro-
vision lög allra tíma.
Vegleg hátíðahöld um sjó-
mannadagshelgi í Bolungarvík