Bæjarins besta - 21.06.2007, Síða 1
– Harðfiskverkandinn Finnbogi Jónasson er
í opnuviðtali þar sem hann upplýsir m.a. að lítil
kúnst sé að verka harðfisk og greinir frá skoð-
unum sínum á mönnum, málefnum og góðu sam-
bandi við himnafaðirinn
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
Fimmtudagur 21. júní 2007 · 25. tbl. · 24. árg.
Nóg að borða
einvörðungu
harðfisk
Sturla gagnrýnir kvótakerfið
Sturla Böðvarsson, forseti
Alþingis og 1. þingmaður Norð-
vesturkjördæmis, gagnrýndi
kvótakerfið harkalega í hátíð-
arræðu sinni á 17. júní hátíðar-
höldunum á Ísafirði. Sturla
sagði að kvótakerfið sem tæki
til að byggja upp fiskistofnana
hafi brugðist. Lagði hann til
að farið yrði í allsherjar upp-
stokkun á fiskveiðastjórnun-
arkerfinu að því gefnu að nið-
urstöður Hafrannsóknastofn-
unar séu réttar.
Sturla lagði ríka áherslu á
að úthlutun byggðakvóta væri
ekki laus á vanda í byggða-
málum og sagði aldrei ríkja
sátt um þá úthlutun. Það er
ekki á hverjum degi að æðstu
valdamenn innan Sjálfstæð-
isflokksins gagnrýna kvóta-
kerfið og því verður afstaða
Sturlu að teljast talsverð tíð-
indi. Sturla talaði einnig um
frjálst framsal aflaheimilda,
taldi það ógna byggðalögum
á Vestfjörðum og sagði ekki
búið við það ástand. Olíuhreins-
unarstöð er kostur sem er for-
seta Alþingis hugnanlegur og
sagði hann að það mætti ekki
minna vera en að stjórnvöld
leggi til fjármuni til að láta
meta staðarvalskosti á Vest-
fjörðum.
Einar Oddur Kristjánsson,
þingmaður í Norðvesturkjör-
dæmi og flokksbróðir Sturlu,
tók undir gagnrýni forseta Al-
þingis í Morgunblaðinu. Einar
sagði að hver einasti maður
sem er ekki blindur og heyrn-
arlaus, sæi að fiskveiðistjórn-
unarkerfið og uppbygging
fiskistofnanna hafi mistekist.
Sjá hátíðarræðu Sturlu í
heild á blaðsíðu 3.
Sturla Böðvarsson, fyrsti þingmaður Vestfirðinga flytur hátíðarræðuna á Ísafirði.