Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.06.2007, Side 2

Bæjarins besta - 21.06.2007, Side 2
FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 20072 Þennan dag árið1986 var íþróttamiðstöðin í Laugardal tekin í notkun og þennan dag árið 1991 var Perlan, útsýn- ishús Hitaveitu Reykjavíkur, formlega tekin í notkun. Bygg- ingarkostnaður var á annað milljarð króna. Dagurinn í dag 21. júní 2007 – 172. dagur ársins Tekjur Ísafjarðarhafnar af komum skemmtiferðaskipa í sumar gætu numið um 13,5 milljónum króna, ef fer sem horfir. Á síðasta ári voru tekj- urnar um 11 milljónir, og höfðu þá aukist töluvert frá fyrri árum. Alls er von á 26 skemmtiferðaskipum til Ísa- fjarðar í sumar. „Skemmti- ferðaskipin eru að verða stærri og stærri þáttur í starfsemi okkar,“ segir hafnarstjórinn Guðmundur M. Kristjánsson, „og það munar verulega fyrir tekjur hafnarinnar, sérstaklega þar sem hefur verið samdráttur í löndun afla síðasta ár.“ Um er að ræða fastan kostn- að skipanna samkvæmt gjald- skrá hafnarinnar, en ofan á þessar tekjur bætast síðan þjónustugjöld fyrir sorpeyð- ingu, vatn og rafmagn. Í fjár- hagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2007 er gert ráð fyrir töluverðri tekjuaukningu hafna bæjarins. Tekjurnar aukast að mestu vegna síaukinna vin- sælda Ísafjarðarhafnar sem viðkomustaðar skemmtiferða- skipa. Samanlögð stærð skipanna sem koma í sumar er 529.972 brúttótonn og farþegarnir eru 16.984 talsins. – tinna@bb.is Tekjur Ísafjarðar- hafnar aukast enn Skemmtiferðaskip eru að verða stærri þáttur í starfsemi Ísafjarðarhafnar. Áslaug Sigríður Alfreðs- dóttir, hótelstjóri á Ísafirði, var sæmd heiðursmerki hinnar ís- lensku fálkaorðu við athöfn á Bessastöðum á sunnudag. Áslaug fékk riddarakross fyrir störf að ferðaþjónustu lands- byggðar. „Þetta er mikill heið- ur fyrir mig og alla þá sem ég hef verið að vinna með, fjöl- skyldu og aðra í ferðaþjónustu á svæðinu. Þetta er mikil við- urkenning fyrir okkur öll sem erum að vinna í grasrót ferða- þjónustunnar. Þetta er að sjálf- sögðu ekki eins manns verk“, segir Áslaug. Aðspurð segir hún að sér hefði aldrei dottið í hug viðurkenning sem þessi þegar hún byrjaði í bransanum fyrir fjórum áratugum síðan. Áslaug byrjaði að vinna á hóteli árið 1967, en segja má að hún sé borin og barnfædd inn í flugið og ferðaþjónust- una. Síðar hóf hún nám við Strathclyde hótelskólann í Glasgow í Skotlandi þaðan sem hún útskrifaðist árið 1974. Síðan þá hefur hún m.a. afrekað að standa að hótel- rekstri og opnun upplýsinga- miðstöðvar í Reykjavík. Ás- laug kom vestur árið 1989 og hefur unnið að ferðaþjónustu á Vestfjörðum síðan þá ásamt eiginmanni sínum Ólafi Erni Ólafssyni. – halfdan@bb.is Áslaug sæmd heið- ursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Áslaug ásamt manni sínum Ólafi við afhendinguna á Bessastöðum. Mynd: Gylfi Ólafsson. Nefnd skipuð til að undirbúa 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar Skipuð hefur verið nefnd sem á að undirbúa með hvaða hætti eigi að minnast þess að 200 ár verða liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar þann 17. júní 2011. Þetta kom fram í þjóðhátíðarávarpi forsætis- ráðherra, Geirs H. Haarde. „Það er skylda okkar að halda í heiðri um ókomin ár minningu Jóns Sigurðssonar. Eftir fjögur ár verða tvær aldir liðnar frá fæðingu hans og þess vegna ríkt tilefni til há- tíðarhalda. Ég hef fyrr í dag gefið út skipunarbréf nefndar sem falið er að undirbúa 200 ára afmæli Jóns í samræmi við samhljóða ályktun Al- þingis frá því í vor um það efni.“ Nefndinni er ætlað að gera fyrstu tillögur eigi síðar en í árslok 2008 en vinna síðan að undirbúningi hátíðarhalda á árinu 2011. Nefndin leiti enn fremur eftir tillögum frá stofn- unum og samtökum sem tengj- ast minningu Jóns Sigurðs- sonar forseta. Formaður nefnd- arinnar verður Sólveig Péturs- dóttir fv. forseti Alþingis. Aðrir nefndarmenn eru Anna Agnarsdóttir sagnfræðingur, Sigurður Pétursson sagnfræð- ingur, Gunnlaugur Haralds- son þjóðháttafræðingur, Sig- rún Magnúsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi, Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður, Karl M. Kristjánsson aðstoð- arskrifstofustjóri Alþingis og Eiríkur Finnur Greipsson for- maður Hrafnseyrarnefndar. Með nefndinni starfar Hall- dór Árnason skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu. – tinna@bb.is Byggðakvóti Súðavíkur auglýstur Byggðakvóti Súðavíkurhreppur hefur verið auglýstur til umsókna. Sjávarútvegsráðuneytið hefur samþykkt sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í sveitarfélaginu. Almenn skilyrði um- sækjenda eru að þeir hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni, bátar séu skráðir með heimahöfn í Súðavíkurhrepp 1. maí 2007. Sótt er um til Fiskistofu og er umsóknarfresturinn 2. júlí næstkomandi. 204 þorskígildistonn komu í hlut hreppsins á yfirstandandi fiskveiðiári.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.