Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.06.2007, Page 4

Bæjarins besta - 21.06.2007, Page 4
FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 20074 Þessi vel klæddi, ungi herramaður sómdi sér vel við burstabæinn. Ljósmyndir: Páll Önundarson. Afmælisdegi Jóns Sigurðs- sonar fagnað á Hrafnseyri Þorsteinn Pálsson flutti hátíðarræðu dagsins. Fjölmenni sótti þjóð- veldishátíð á Hrafnseyri við Arnarfjörð þann 17. júní til að fagna því að 196 ár eru liðin frá því að frelsishetjan Jón Sigurðs- son fæddist þar. Hátíðar- dagskrá hófst með guðs- þjónustu í minningar- kapellu Jóns Sigurðssonar þar sem séra Valdimar Hreiðarsson, sóknarprest- ur á Suðureyri, þjónaði til altaris. Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins og fyrrv. forsætisráðherra, flutti hátíðarræðu og Eiríkur Finnur Greipsson, formaður Hrafnseyrar- nefndar, flutti ávarp. Söngkonan Sólveig Sam- úelsdóttir flutti nokkur lög við undirleik Margrétar Gunnarsdóttur. Vaskir glímukappar frá íþróttafé- laginu Herði sýndu glímu. Að auki var opnuð sýning á verkum eftir Snjólaugu Guðmundsdóttur í bursta- bænum en hún stundar listvefnað úr ull. Að loknum hátíðar- höldum bauð Hrafns- eyrarnefnd öllum gestum í þjóðhátíðarkaffi. – thelma@bb.is Fjölmenni sótti hátíðarhöldin.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.