Iðnaðarmál - 01.01.1955, Síða 8
ELDMALUN . ANTROPAHL-AÐFERÐIN
Margar aðferðir eru kunnar við
úðun málningar eða annarra lífrænna
efna á yfirborð hluta til að verja þá
veðrun og tæringu. Byssur þær, sem
úðað er með, eru venjulegast knúnar
þrýstilofti, sjaldnar með yfirhitaðri
gufu eða vökvaþrýstingi. Til eru
byssur, sem úða málningu með raf-
segulsveiflum. En kunnugt er einnig
um eldhúðun. Bræðanlegum
plastefnum, t. d. polyetylen, má úða
með gasloga, og brætt asfalt er auð-
veltaðberaáhlutimeð þessum hætti.
I september s.l. efndi Studiesel-
skapet for Norsk Industri til kynn-
ingar á sérstakri málningaraðferð.
Var hún sýnd nokkrum áhugamönnum
og virtist harla vænleg. Kynningin
var í þvi fólgin, að H. Boldemann,
forstjóri sænska fyrirtækisins A.B.
Antros, sem á sinn þátt f þróun
aðferðarinnar, hélt erindi, og sýnt
var, hvernig málningu var úðað á
kranabygginguáSjurseyju. Otdráttur
úr erindi H. Boldemanns fer hér á
eftir.
Seint á þriðja tug þessarar aldar
hugkvæmdist Þjóðverjanum August
Pahl að blása málningu gegnum loga
og smfða byssu f samræmi við það.
A þann hátt gat hann notað málningu,
sem var óblönduð þynni, en fræðilega
séð ætti þvf að fylgja sá kostur, að
málningarhúðin yrði talsvert þéttari,
þar sem uppgufun þynnis veldur holu-
myndun f málningarhúðinni. Þá mátti
í einni umferð bera jafnþykkt lag á
og fæst eftir 3 eða 4 umferðir með
venjulegum hætti.
Pahl bjó málninguna til úr gervi-
harpix, standolíu, vaxi og litadufti,
og var hún þvf fast efni, sem móta
mátti f stykki, sem féllu f málning-
argeymi byssunnar. Málningin er
brædd með rafmagnshitara og látin
renna fram í byssuhlaupið, þar sem
henni er blásið gegnum própan- eða
acetylen-loga. Al. mynd séstbyssan
og hvernig hún er notuð.
Gerð byssunnar hefur verið bætt
allverulega, sfðan höfundur hennar
dó fyrir rúmum 10 árum. Að meðal-
tali eru afköst byssunnar nú um 7-9m^
á klst., en áður um 4 m^ á klst. A
þetta við um sams konar málningu og
Pahl bjó til. Þegar byssan er notuð
t. d. til að úða asfalti, eru afköstin
mun meiri.
Pahl framkvæmdi mörg verk í
Þýzkalandi fyrir sfðustu heimsstyrj-
öld. Hann málaði nokkrar brýr fyrir
þýzku ríkisjárnbrautirnar. Sumar
þeirra eru í Vestur-Þýzkalandi og
hafa verið skoðaðar fyrir skömmu.
Reyndust brýrnarenn f góðu ástandi,
þótt þær hafi ekki verið málaðar,
sfðan Pahl gerði það upphaflegafyrir
13 - 19 árum. Málningin var enn
gljáandi og sem ný væri. Aðeins
neðan á bitumog slíkum stöðumvoru
nokkrir ryðblettir, en þeir virtust
ekki vera að breiðast út.
f Solvay-verksmiðjunum f Bern-
burg var aðferð Pahls reyndumskeið
og gafst svovel, að horfið varalger-
lega að henni. f sömu verksmiðjum
reyndist hún einnig vel til að mála
rakar stálplötur. Astæðan til þess
ersú, að plöturnar hitnavið úðunina,
svo að rakinn hverfur og málningin
festist vel við þurran og heitan flöt
þeirra. Þetta gerir aðferðina nothæfa ,
þótt veðrátta sé erfið eða skilyrði
slfk, að málun með venjulegum hætti
sé óframkvæmanleg.
(Framh. á 11. bls.)
og forsjálni væri gætt f hvfvetna. Iðnrekandinn má
aldrei gleyma þvf, að háleitasti tilgangur starfsemi
hans er þjónusta við þjóðfélagið, og þvf betur sem
hún er f té látin, þeim mun betur vegnar honum og
öllum, sem starfa á hans vegum.
Þótt iðnrekandinn og fulltrúar hans hafi forystu um
rekstur fyrirtækis, hafa allir starfsmenn þess eigi að
sfður aðstöðu til þess að gefa veigamiklar bendingar um
margt, sem betur mætti fara, og þannig lagt drjúgan
skerf til aukinnar framleiðni. Skilyrði þess, að
framleiðnihugsjónin nái fram að ganga, er, að fyrirtækin
séu skipulögð með þeim hætti, að hæfileikar og kunnátta
allra nýtist sem bezt. Framleiðnihugsjónin gerir ráð
fyrir, að lækkaður framleiðslukostnaður komi öllum að
gagni, jafntþeim, sem að framleiðslunni vinna, og hinum,
sem hennar njóta. Aukin framleiðni skapar fyrirtæki
öruggari afkomu, starfsmönnum þess hærri laun og
neytendum lægra vöruverð.
Iðnrekendur, byrjið strax f dag að hugleiða, hverju
sé áfátt f starfsemi yðar og hvar sé endurbóta þörf. Bætt
vinnubrögð, betri lýsing, breytt fyrirkomulag véla og
endurbætur á þeim, einfaldari rás framleiðslunnar innan
verksmiðjunnar o. s. frv. geta bætt afkomu fyrirtækis
yðar og borgað margfaldlega þann kostnað, sem slfkar
endurbætur hafa f för með sér.
B. 01.
2
IÐNAÐARMAL