Iðnaðarmál - 01.01.1955, Side 12
komulagi verða þó fljótt auðfundnir, þegar hlutfallið
framleiðsla/viðgerðir stækkar.
Viðgerðavinnu er jafnan þannig háttað, að hana
verður að framkvæma mjög fljótt, því að venjulega hefur
bilun að meira eða minna leyti stöðvun í för með sér.
Viðgerðavinna verður þvi skilyrðislaust að ganga fyrir
framleiðsluvinnu, sem e. t. v. enginn sérstakur biður
eftir. Niðurstaðan verður því alltaf sú, að framleiðslu-
vinna er stöðvuð vegna viðgerðavinnu og hafin aftur,
þegar tímigefst til. Aðsjálfsögðu faraallir verðútreikn-
ingar á slíkri framleiðslu út um þúfur, en segja má,
að það skipti ekki miklu máli, úr því að um "atvinnu-
bótavinnu" er að ræða.
Sé framleiðsluþátturinn aftur ámótiorðinnverulegur
hluti af heildarvinnunni og mikið fé liggi bundið 1 fram-
leiðslunni, verða langvarandi framleiðslutruflanir vegna
viðgerða óbærilegar.
Þegar þessu stigi hefur verið náð, er
óæskilegt að blanda saman viðgerða- og
framleiðsluvinnu, og nauðsynlegt er að
sundurgreina þessar tvær tegundir starf-
semi eins rækilega og kostur er.
Ljósust dæmi þessarar þróunar hérlendis er að
finna 1 vélsmiðjum og málmiðnaði yfirleitt.
Sambland af öllum þeim framleiðsluháttum, sem
hér hafa verið ræddir, eða nokkrum þeirra er viðhaft
jöfnum höndum innan eins og sama fyrirtækis. Stundum
er t.d. hluti framleiðslunnar síframleiðsla, annar hluti
hennar sambland af hóp- og stykkjaframleiðslu. Því
ólíkari sem framleiðsluhættirnir eru, sem beitt er,
þeim mun sveigjanlegra verður skipulagskerfið að vera
og þeim mun fleiri iðnlærða verkamenn þarf að jafnaði
við framleiðsluna.
Framleiðsluhættirnir geta orðið enn flóknari, ef
viðhöfð er reglan um sérhæfingu eftir fram-
leiðsluaðferð eða reglan um sérhæfingu
eftir framleiðsluvöru.
Með sérhæfingu eftir framleiðsluaðferð vinnur heilt
fyrirtæki aðeins með t.d. einni framleiðsluaðferð. Er
þá nauðsynlegt að flytja hráefnið úr einum stað í annan
til þess að vinna það til fulls.
Með sérhæfingueftir framleiðsluvörueruöll skilyrði
til þess að vinna hráefnið til fulls 1 einni og sömu verk-
smiðju. Til þess að slík starfsemi verði ekki allt of
flókin, eru vörutegundirnar hafðar eins fáar og unnt er.
Eðli og tegund skipulagsins mótast fyrst og fremst af
þessu tvennu. Hvert stig frekari sérhæfingar fram-
leiðsluaðferðar og vinnuafls krefst aukinnar samhæfingar
og fullkomnari stjórnunar, ef afköstin eiga að aukast að
sama skapi.
Sérhæfing, hvort sem hún er heldur f framleiðslu-
aðferð eða framleiðsluvöru, miðar að stækkun iðnaðar-
starfseminnar sem einingar. Auk þessara fyrirbrigða
getur stækkunin átt sér stað með þvf, sem kallast
lóðréttur eða láréttur samruni eða sam-
steypa f iðnaði.
Samruni iðnfyrirtækja.
Lóðréttur samruni er það nefnt, þegar leitazt er
við að sameina fyrirtæki, sem framleiðir ákveðnar
vörutegundir, — hálf- eða fullunnar með tilliti til neyt-
andans —, öðrum fyrirtækjum, sem vinna hráefnið eða
vöruna á undan eða eftir þvf sjálfu eða hvort tveggja.
Slfkur lóðréttur samruni getur verið mismunandi vfð-
tækur. Hann getur náð til auðlindanna, sem helztu
hráefnin eru fengin úr, og allra þeirra verksmiðja, sem
breyta hráefninu f fullunna markaðsvöru, eða aðeins til
einstakra hluta af þessu.
Dæmi:
Skipulag iðnaðarstarfsemi verður þvf flóknara, sem
lóðrétti samruninn er vfðtækari, m.a. vegna aukinnar
nauðsynjar á starfsliði með vfðtæka sérþekkingu.
Láréttur samruni er það nefnt, þegar leitazt er við
að sameina fyrirtæki, sem er sérhæft f ákveðnum fram-
leiðsluaðferðum, öðrum fyrirtækjum, sem eru sérhæfð
f skyldum framleiðsluaðferðum.
Dæmi um bræðslu og völsun á mörgum tegundum
málma og framleiðslu á alls konar málmblöndum er
sýnt f töflu hér að neðan.
Lóðréttur og láréttur samruni eða hvort tveggja eru
þær aðferðir, sem notaðar eru til þess að skapa risa-
fyrirtæki eða risasamsteypur. Iðulega eru slfk fyrirtæki
ekki takmörkuð við eitt ákveðið land, heldur geta þaunáð
til allra hugsanlegra þjóðlanda, þar sem ástæða þykir til
að tryggja sterka markaðsaðstöðu.
Slfkar samsteypur veita sterkari samkeppnisaðstöðu,
betri og öruggari heildaryfirsýn stjórnenda og nánari
kynni þeirra af þörfum neytenda á hverjum tíma.
Milliliðagróði fellur að nokkru eða öllu leyti niður.
Einokunaraðstaða skapast iðulega af þessari þróun,
og f mörgum löndum eru strangar skorður reistar við
ofþróun slfkrar starfsemi. Löggjafinn ákveður takmark-
anir f þessum efnum til verndunar hagsmunum almennings.
6
IÐNAÐARMAL