Iðnaðarmál - 01.01.1955, Síða 17
(NO), sem síðan er sýrður frekar með súrefni og látinn
ganga í samband við vatn. Myndast þá saltpéturssýra,
semhaldiðer f 60% styrkleika. Við bruna ammónfaksins
losnar mikill varmi, sem notaður er til gufuframleiðslu
meðþvf aðkæla gasið frá brennaranum. Fæstmeð þessu
mikill hluti þeirrar gufu, er verksmiðjan öll notar.
Mestöll tæki, geymar og pfpur í þessarideild verksmiðj-
unnar eru úr ryðtraustu stáli vegna hinna tærandi áhrifa
saltpétur s sýr unnar.
Að lokum er komið að framleiðslu ammónfum-
saltpétursins. Hann er framleiddur með þvf að fella út
saltpéturskristalla úr yfirmettaðri upplausn af ammón-
fum-saltpétri. Ammóníak og saltpéturssýra eru leidd
saman f svonefndum styrki og ganga þá í samband hvort
við annað og mynda ammóníum-saltpétur f upplausn.
Mikill varmi losnar við þessa efnabreytingu, og er hann
notaður til að eima burt vatn, er kemur inn með sýrunni
(60% sýra), og fánærri mettaðaupplausn af saltpétrinum.
Þessari upplausn er dælt inn f kristallara, þar sem hún
er yfirmettuð með kælingu og eimingu meira vatns úr
henni. Þá myndast örsmáir kristallar af saltpétri, og
eldrikristallar, erfyrireru, vaxa. Kristöllunum ásamt
upplausn er sfðandælt til skilvindu, er aðskilur kristallana
og upplausnina. Upplausninfer aftur til styrkisins, en
kristallarnir eru þurrkaðir og síðan húðaðir með um 4%
af kfsilleir til varnar gegn rakafsogi og látnir f poka, og
er þá áburðurinn tilbúinn. Eins og f saltpéturssýruverk-
smiðjunnieru ölltæki og pípur fþessari deild verksmiðj-
unnar, er innihalda saltpétursupplausn, úr ryðtraustu
stáli. Afkastageca verksmiðjunnar er miðuð við, að unnt
sé að framleiða 7.400 tonn af hreinu köfnunarefni á ári,
og samsvarar það um 22.000 tonnum á ári af ammóníum-
saltpétri. Er þá miðað við full afköst allt árið.
Við verksmiðjunastarfa alls um lOOmanns. Af þeim
eruum 70 mannsá vöktum. Unniðer f þrfskiptum 8 tfma
vöktum allan ársins hring. A hverri vakt eru tveir vél-
stjórar, er hafa á hendi verkstjórn, og auk þeirra er á
hverri vakt einn rafvirki til viðgerða. Að öðru leyti hafa
engir vélgæzlumannanna sérmenntun, en hafa verið
þjálfaðir sérstaklega til hinna ýmsu starfa f verksmiðj-
unni. Verksmiðjan hefur eigin verkstæði til véla-,
rafmagns- og mælitækjaviðgerða og nýsmfði, og eru þar
framkvæmdar viðgerðir allar, er þarf að framkvæma.
Dagleg stjórn fyrirtækisins er f höndum framkvæmda-
stjóra, en stjórn á rekstri verksmiðjunnar f höndum
verksmiðjustjóra, sem er verkfræðingur að menntun.
Auk hans starfa við fyrirtækið þrfr verkfræðingar með
menntun hver á sfnu sviði, og annast þ'eir ásamt verk-
smiðjustjóranum daglegt eftirlit með rekstrinum. Um
rekstrarfyrirkomulagið er annars það að segja, að
vikulega eru haldnir fundir með verksmiðjustjóranum,
verkfræðingum og verkstjórum og þá rædd vandamál, er
reksturinn varða, og teknar um þau ákvarðanir. Verður
þetta til þess, að allir vita um vandamál, er upp koma,
og sannast hér líka hið fornkveðna, að betur sjá augu en
auga.
Auk köfnunarefnisáburðarins til bænda hefur
Aburðarverksmiðjan látið frystihúsum f landinu f té
töluvert magn af ammóníaki á stálflöskum, og má búast
við, aðinnflutningurþessleggistalvegniðurfframtfðinni.
Einnig hafa saltpéturssýrunotendur (svo sem mjólkurbú)
fengið saltpéturssýru til sinna nota.
Eins og áður er sagt, er nú í dag framleiddur f
Aburðarverksmiðjunni áburður, er eingöngu inniheldur
köfnunarefni, og er framleiðslugeta verksmiðjunnar
nægileg til að fullnægja innanlandsmarkaðnum af þess
konar áburði fyrst um sinn. Aðrar áburðartegundir, þ.e.
bæði fosfór og kalfáburð, þarf þvf að flytja inn eftir sem
áður. Stjórnendur Aburðarverksmiðjunnar munu hafa
fullan hug á að auka fjölbreytni f framleiðslu verksmiðj-
unnar, eftir því sem hagkvæmast er álitið, svo sem
framkom fsamþykkt sfðastaaðalfundar fyrirtækisins um
byggingu fosfat- og kalk-áburðarverksmiðju.
/
ELDMALUN — (Framh. af 2. bls.)
A 2. mynd sést, hvernig nota má byssuna til þess
að mála raka fleti. Flöturinn var bleyttur og málaður
rétt á eftir. Nokkur hluti flatarins var fyrst hitaður með
loganum án þess að nota málningu. Sfðan var allur flöt-
urinn úðaður án þess önnur upphitun væri nauðsynleg en
sú, er leiddi af eldúðuninni. A myndinni sést ljós rönd
umhverfis staðinn, sem verið er að mála, og sýnir hún,
hvernig yfirborðið þorrnar út frá þeim stað.
Nokkrir þýzkir kafbátar voru málaðir með aðferð
Pahls fyrir heimsstyrjöldina og jafnvel einnig, meðan
á hennistóð. Eftir uppgjöf Þjóðverja lentieinnaf þessum
kafbátum í vörzlu Svfa. Málningin á honum var með
ágætum.
Þvf er haldið fram, að málning Pahls jafngildi bæði
grunnmálningu og gróðurvarnarmálningu á skipum.
Tiltölulega lftill gróður vex á málningu Pahls, ekki þó af
þvf, að f henni séu nein eiturefni, heldur sennilega vegna
þess, hve yfirborð hennar er slétt og vaxborið, svo að
gróðri veitist erfitt að festast á þvf.
Nauðsynlegt er að búa yfirborð þess, er mála skal,
vel undir málningu. Ekki má mála yfir ryð frekar en
þegaraðrar málningaraðferðir erunotaðar. Beztreynist,
að yfirborðið sé sandblásið eða hreinsað vel með stál-
burstum og leifar af eldhúð séu engar.
A 3. mynd er bent á pfpuhluta, þar sem eldhúðin er
laus og sprungin og vatn hefur komizt inn f sprungurnar.
A 4. mynd sést sami hluti, eftir að hann hefur verið
úðaður. Rakinn undir eldhúðinni hefur gufað upp og
sprengt hana frekar, svo að járnið undir er orðið bert.
(AJOUR-SNI, Aktuelle nyheter, okt. 1954.) H. B.
ERLEND TíEKNITÍMARIT
OG BEKUR
Aður en langt um líður, mun Iðnaðarmálastofnun
fslands geta boðið mönnum til afnota nokkurt safn bóka
og tímarita um tæknileg efni. Hins vegar mun talsverður
tími lfða, þar til er stofnuninni hefur vaxið svo fiskur
um hrygg, að hún hafi yfir að ráða tæknibókasafni, sem
talizt geti fullnægjandi. Viljum vér þvf bjóða þeim, sem
vildu sjálfir gerast áskrifendur erlendra tæknitfmarita
eða kaupa tæknilegar fræðibækur, aðgang að bóka- og
tímaritaskrám IMSI. S. B.
IÐNAÐARMAL
11