Iðnaðarmál - 01.01.1955, Blaðsíða 19

Iðnaðarmál - 01.01.1955, Blaðsíða 19
4Skæri þau, sem myndin sýnir, eru ítölsk að upp- runa og ætluð til að klippa tvinna og annan fingerðan þráð. Ef til vill mætti kalla skærin lófa- skæri, enda er til þess ætlazt, að hafa megi þau 1 lófanum til taks, en nota þó höndina jafn- framt við vinnuna að öðru leyti. (Target, marz 1952.) S.B. L É T I I R S T Ö R F I N 2A myndinni er sýnd aðferð til að merkja tunnur á ein- faldan hátt. Aðferðin, sem var fundin upp í enskri málningar- verksmiðju, er þannig, að tunnum er velt yfir leturborð, sem f eru felldir stafir, steyptir úr "gelatíni". Prentlitur er borinn á með kefli, og má merkja sex tunnur án þess að bæta lit á staf- ina. Ending stafanna er allgóð, en bræða má þá upp og steypa úr þeim stafi á nýjan leik. (Target, júnf 1951.) S.B. 3 1 verksmiðjum þarf oft að hella f smáskömmtum úr stórum tunnum. Getur það verið allerfitt og seinlegt verk, ef ekki er kostur hjálpartækja. Myndin sýnir, hvernig skammta má á auðveldan hátt. Er myndin tekin í enskri skóverksmiðju, en starfsbróðir konunnar, semerað nota tækið, átti hugmyndina. (Target, febr. 1952.) S.B. IÐNAÐARMAL ■ff

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.