Iðnaðarmál - 01.05.1955, Qupperneq 4
Mr. Peter K. Daniells, fulltrúi Tækniaðstoðar Bandaríkjastjómar hér á
landi, fæddist 13. ágúst 1924. Faðir hans er bandarískur, en móðir háns
ensk. Mr. Daniells er að nokkru alinn upp í Englandi, en háskólamennt-
un sína hlaut hann við Háskóla Kaliforníu. Hann réðst í þjónustu Banda-
ríkjastjórnar árið 1949 að undangenginni þriggja ára herþjónustu. Mr.
Daniells er kvæntur danskri konu, frú Karen, f. Fenger.
Fulltrúi
lækniaðstoðar Bandaríkjastjúrnar
kveðnr island
Mr. Peter K. Daniells.
Fyrir réttu ári kom hingað til lands
sem fulltrúi Tækniaðstoðar Banda-
ríkjastjórnar mr. Peter K. Daniells.
Hann kom hingað beint frá Kaup-
mannahöfn, þar sem hann hafði starf-
að í 4% ár í nánum tengslum við
dönsku iðnaðarmálastofnunina.
Því er ekki að leyna, að koma þessa
ágæta drengs var mikið happ, því að
fyrir ári voru tímamót í þróunarferli
Iðnaðarmálastofnunar íslands. Stofn-
unin hafði starfað í tæpt ár, og þá ný-
verið hafði mér gefizt tækifæri til að
kynnast lítillega, hvernig starfsemi
iðnaðarmálastofnana nokkurra ann-
arra Evrópulanda væri háttað. Af
þessum kynnum mínum — og kynn-
um mínum af starfsemi Framleiðni-
ráðs Evrópu í París — varð mér ljóst,
að starfsgrundvöllur Iðnaðarmála-
stofnunar íslands hlyti að verða tals-
vert annar og meiri en lauslega hafði
verið fyrirhugað í upphafi, ef hún
ætti að gegna svipuðu hlutverki í voru
landi og hliðstæðar stofnanir í öðr-
um Evrópulöndum. Enn fremur varð
augljóst, að veigamikill hluti starf-
sviðs hennar og stefnu hlyti að mótast
að miklu leyti af starfsviði og stefnu
Framleiðniráðs, sem er eins konar
höfuðmiðstöð iðnaðarmálastofnana
allra aðildarríkjanna, eins og kunnugt
er.
Við komu mr. Daniells eignaðist
Iðnaðarmálastofnunin traustan og
góðan samstarfsmann, sem var ávallt
reiðubúinn til að ræða af skilningi öll
vandamál, sem snertu starfsemi stofn-
unarinnar, og leggja henni allt það
lið, sem hann mátti. Þá stuðlaði hann
að því, að stofnunin gæti hagnýtt sér
aðstoð Framleiðniráðs og Tækniað-
stoðar Bandaríkjastjórnar, m. a. með
því að lijálpa til við að skipuleggja og
afla styrks til þess að koma á laggirn-
ar heildaráætlun Iðnaðarmálastofn-
unarinnar um tæknilega fræðslu, sem
nú er hafin.
Nú, þegar mr. Daniells hverfur
héðan af landi brott, eru enn tímamót
í þróunarferli Iðnaðarmálastofnunar
íslands. Framundan er framkvæmd
áðurgreindrar heildaráætlunar, sem
verður prófsteinn á þá háttu, sem nú
er fylgt um stefnu og starfsgrundvöll
stofnunarinnar.
Héðan fer mr. Daniells til Spánar
til þess að starfa þar á vegum Tækni-
aðstoðar Bandaríkjastjórnar að svip-
uðum málum og hann hefur starfað
að hér, en Spánverjar eru nú að koma
á fót iðnaðarmálastofnun hjá sér.
Um leið og vér óskum mr. Peter
Daniells gæfu og gengis í hinu nýja
starfi, þökkum vér honum fyrir störf
hans hér á landi í þágu Iðnðarmála-
stofnunar íslands og þann hlýhug og
vinarþel í garð íslands, sem sífellt
hefur einkennt öll viðskipti hans við
oss.
Mr. Daniells hefur eignazt marga
vini hér á landi, og veit ég, að þeír
munu fleiri en vér, sem sakna hans.
Bragi Ólajsson. |
68
IÐNAÐARM AL