Iðnaðarmál - 01.05.1955, Síða 6

Iðnaðarmál - 01.05.1955, Síða 6
Hollustuhættir geislahitunar. HeilsufræSingar eru eindregið þeirrar skoðunar, að líkamanum sé hollara og eðlilegra að gefa frá sér hita við leiðslu en við geislun. Hætta á sjúkdómssmitun minnkar og veru- lega, ef hitastig andrúmsloftsins lækk- ar. Geislahitun veldur mun minna loft- streymi í herbergjum en önnur hitun, þar sem veggir verða heitastir að ofan og kólna eftir því, sem neðar dregur. Rykþyrlun verður þess vegna minni. Einnig verður þá komizt hjá hinu „þurra lofti“, sem ætíð vill fylgja loft- og ofnahitun, en það orsakast af rykögnum, sem komizt hafa i snert- ingu við hið heita yfirborð ofnsins. þornað þar eða orðið fyrir þurraeim- ingu og borizt með straumnum út í loftið. Slíkt ryk ertir mjög slímhimn- ur öndunarfæranna. Við geislahitun verður rakastig loftsins hærra en með annarri hitun, þótt rakamagn þess sé óbreytt, og staf- ar það af hinu lága hitastigi andrúms- loftsins. Línurítið sýnir breytileika hitastigs frá gólfi til lofts í leikfimisal, sem liitaSur er ein- göngu meS útgeislun frá loftfleti. LínurítiS á jafnt viS um hitastigiS viS útveggi sem í miSjum sal. Eswa-rafgeislahitunarkerfi. Aðalhlutar Eswa-rafgeislahitunar- kerfis eru plötur, sem eru samsett- ar af þilplötum úr hörðu og gljúpu trjátrefjaefni, 8,5 og 12,5 mm þvkk- um (trétexi og masóníti). Milli þeirra er sílagður svo sem þumlungs breið- ur, örþunnur alúminíumborði sem bitagjafi. Plötunum er komið fyrir á innflötum herbergja, sem hita skal, venjulega í loftið, þannig að harða platan viti inn í herbergið. Þegar raf- straum er hleypt á alúminíumborð- ann, hitnar hann upp í 30—35°C. Gljúpa platan er góður einangrari og varnar — ásamt einangrun loftsins sjálfs — hitanum að komast þá leið. Harða platan verður aftur á móti fljótlega gegnheit og geislar útrauð- um hitageislum. Straumurinn í plötunuin takmark- ast annaðhvort af mótstöðu leiðarans í plötunum eins og í venjulegum raf- ofnum eða með því, að spennan er felld með til þess gerðum einvefju- spenni, ef svo fáar plötur eru á grein- inni, að nægileg mótstaða fæst ekki fyrir 220 volta spennu. Slíka temprun verður að nota í flestum litlum íbúð- arherbergjum, og eru þrjú temprun- arstig þá notuð. Sjálfstæð grein er venjulega lögð í hvert herbergi um sig með tilheyrandi vörum, stillirofa og sjálfvirku hita- stilli. Þannig fæst sjálfstæð og sjálf- virk hitastilling fyrir hvert herbergi og sjálfstæð mæling eyðslu, sé þess óskað. Eswa-plötur eru framleiddar í „standard“-stærðum, sem eru hinar sömu og á venjulegum þilplötum. En auk þess er hægt að fá þær gerðar eft- ir máli. Mjög er misjafnt, hve stóran hluta loftflatarins þarf að þekja með hit- unarplötum hverju sinni. Reikna verður hitaþörf hvers herbergis og leggja síðan hitaplötur í samræmi við það, en álagið, sem notað er á hverja flatareiningu, er frá 150 w/m2 í íbúð- ar- og skrifstofuherbergjum og upp í 200 eða jafnvel 250 w/m2 í iðnaðar- og samkomusölum. Venjulega er milli 50 og 100% loftflatarins þakið hita- plötum. En sá hluti loftsins, sem hita- plötur eru ekki settar á, er þá þakinn þilplötum, sem eru eins að ytri gerð, svo að heildaráferð raskast ekki. Plöt- urnar eru negldar á lista, sem festir eru neðan á stein- eða bitaloft, en beint á klædd timburloft. Á bitaloft og sperrur geta plöturnar komið í stað klæðningar. Ekki verður hjá því komizt, að samskeyti platnanna sjáist á loftun- um, en við frágang þeirra er um margar leiðir að velja, og geta sam- skeytin farið vel og myndað falleg mynztur. Mála má plöturnar eins og hverjar aðrar þilplötur. Auk hinna venjulegu platna eru til margar fleiri gerðir Eswa-platna, sem ætlaðar eru til notkunar við misrnun- andi skilyrði. Má t. d. nefna hljóð- deyfandi plötur, þar sem harða platan er þéttsett smágötum. Slíkar plötur deyfa hljóð auk þess að vera hitaplöt- ur. Kirkjubekkjaplötur eru sérstak- lega ætlaðar til hitunar í kirkjum. Þær eru festar aftan á bök og undir setur bekkjanna og geisla hitanum beint á kirkjugesti án þess að hita hið mikla loftrúm og hina köldu veggi kirkjunn- ar, svo að neinu nemi. Eiginleikar Eswa-rafgeislahitunarkeria. Um eiginleika rafgeislahitunar- kerfa má vísa til þess, sem að framan var sagt um 'geislahitun ahnennt. Þó er rafgeislahitun að ýmsu leyti frá- brugðin þeirri geislahitun, sem hér er algeng, þar sem vatn er notað sem hitamiðlari. Vatn geymir alltaf mik- inn hita, og temprun vatnskerfa hlýtur því alltaf að verða nokkuð treg. Sömuleiðis verður varla komið fyrir á slíkum kerfum sjálfvirkri temprun fyrir hvert herbergi nema þá með óhóflegum tilkostnaði. Flutningur hita úr einu efni í annað hefur og ávallt í för með sér nokkurt orkutap. Eswa-plötur geyma aftur á móti til- tölulega lítinn hita. Temprun verður þess vegna ör og auðveld. Herbergi er orðið notalega heitt, um það bil 10— 20 mín. eftir að straumur er settur á. Hinar sjálfstæðu lagnir að hverju 70 IÐNAÐARM A I.

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.