Iðnaðarmál - 01.05.1955, Síða 16

Iðnaðarmál - 01.05.1955, Síða 16
Nýtt tœkí tíl FITUVINNSLU í nokkrum límverksmiðjum í Eng- landi hefur verið tekið í noktun nýtt tæki, sem skilur fitu frá beinum, svo að unnt er að vinna úr þeim lím eða beinamjöl. Aður hefur alltaf orðið að skilja fitu eða olíu úr fiski, dýrum eða fræjum með suðu við mikinn hita, svo að eggjahvítuefnin hlaupi saman, ♦ s 1. mynd. ÞverskurSur af hamrakvörn, sem notuð er, þegar Chayen-aðferð er beitt. selluveggirnir rofni og fitan, sem þynnist við hitun, renni út, eða fitan hefur verið skilin frá með heitum upplausnarefnum. Þetta hefur haft ó- heppileg áhrif á lýsi, þar sem það er viðkvæmt fyrir hita. Með hinni nýju aðferð, sem nefn- ist CHAYEN-aðferð, er hvorki notað- ur hiti né upplausnarefni, heldur er fitan skilin frá með sterkum bylgjum í köldu vatni. Eru beinin flutt með straumi af köldu vatni í gegnum eins konar hamrakvörn. Hamrar eða steng- ur kvarnarinnar snúast á ási sínum með allt að 3000 snúninga hraða á mínútu og ummálshraða, sem nemur 3650 metrum á mínútu. Hamrarnir eða stengurnar slá á yfirborð vatnsins og ferðast í gegnum vatnsstrauminn með þessum mikla hraða, og myndast við það sterkar bylgjur eða titringur í vatninu. Hefur þá vatnið svipuð áhrif á selluveggi beinanna og fjöldi loftbora. Við það rofna selluveggirn- ir á augabragði, og fitan þvæst úr sellunum, en í staðinn fyllast þær af vatni. Út úr kvörninni kemur blanda af vatni, fitu og beinamylsnu, sem lát- in er renna í þró. í þrónni sezt fitan ofan á vatnið, en beinamylsnan fellur til botns. Síðan er fitan fleytt ofan af og beinin skilin frá vatninu. Hinn snögglegi skilnaður fitu frá beinurn veldur því, að fita og vatn mynda ekki stöðuga blöndu (emul- sion). Skilst því fitan mjög auðveld- lega frá vatninu á þann hátt, sem áður var lýst. Fita, framleidd með þessari aðferð, er mun ljósari en sú fita, sem fram- leidd er með hitunaraðferðum. Að- eins þrem mínútum eftir að beinunum er fleytt inn í hamrakvörnina, hefur fitan verið skilin frá og sett á lýsis- geymi, en beinamylsnan er tilbúin til þurrkunar eða límvinnslu fimm mín- útum síðar. Þar sem bilið milli hamra og kvarn- arhúss er tiltölulega stórt (10 cm), myljast beinin tiltölulega lítið, enda eru hamrarnir ávalir í endana. 1. mynd sýnir þetta. í kvörn þeirri, senr hér um ræðir, eru sex raðir fer- strendra hamra, sem eru 19 mm á hvern veg. Vélin þarf urn 90 hestafla orku og vinnur um 2 tonn af beinum á klukku- stund. Bylgjurnar, sem rjúfa sellu- veggina, hrífa allt af 5 cm dýpt inn í beinin. Áður en beinin fara í kvörnina, verður að brjóta þau hæfilega smátt, en vatnsmagnið, sem flytur þau, verð- ur að vera nægjanlegt til þess að hylja beinin, svo að bylgjurnar nái að hafa áhrif á þau. Tilraunir með vinnslu lýsis úr síld og fisklifur með þessari aðferð hafa gefizt mjög vel. Síldarlýsi hefur ekki aðeins reynzt ljósara en þegar notað- ar eru hitunaraðferðir, heldur og lykt- arminna. Auk þess er í lýsinu minna af lausum fitusýrum og mjölið fitu- rýrara. Úr þorskalifur, sem unnin hefur verið í hinu nýja tæki, hafa náðst 98 2. mynd. Innra lag svínshúðar, áður en fitan er skilin úr því (til vinstri) og eftir að fitan er skilin úr með Chayen-aðferð (til hœgri). Tvöföld stœkkun. 80 IÐNAÐARMAL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.