Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.09.2010, Blaðsíða 6

Bæjarins besta - 09.09.2010, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2010 Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564. Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is. Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is, Kristján Einarsson, símar 456 4560 og 848 3403, kristjan@bb.is. Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson. Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. ISSN 1670 - 021X Spurningin Ertu sátt(ur) við hag þinn og þinna nánustu? Alls svöruðu 379. Já sögðu 160 eða 42% Nei sögðu 219 eða 58% Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Ritstjórnargrein Draumur borgarbarnsins Þegar deilur um aðildina að EES stóðu sem hæst þóttust margir stjórnmálamenn þess umkomnir að spá fyrir um örlög íslenskra sveita, ef svo ólukkulega vildi til að við gerðumst aðilar að samtökun- um. Útlendingar myndu ásælast bújarðir með veiðirétti í laxveiðiám í stórum stíl og aðrar kosta jarðir jafnt sem afdalakot yrðu ekki und- anskilin. Landráð og stjórnarskrárbrot voru meðal orða sem féllu í hita leiksins. Ekki eru allir spámenn í sínu föðurlandi. Lítið hefur borið á ásókn útlendinga í íslenska mold. Aftur á móti er því svo farið að býsna margir er áður mögluðu hvað mest vildu nú EES-lilj- una kveðið hafa. Spámennirnir höfðu þó að nokkru leyti rétt fyrir sér, en þeir flösk- uðu á þjóðerninu. Á útrásarárunum runnu sveitabýlin út, hvert á fætur öðru, eins og heitar lummur. Gósenjarðir skiptu um eigendur og háar fjárhæðir fengust fyrir afdalakot, sem árum saman höfðu verið baggar arfs á fólki komið á mölina. Mjólkurkvótinn rann til einkahlutafélaga, í eigu íslenskra gróssera, í þúsundum lítra. Sumir töldu þetta býsna vænlegt, nýir straumar með nýju fólki væri það sem sveitirnar þyrftu á að halda. Á annarra augum var þetta afturhvarf til tíma leiguliða í íslenskum landbúnaði. Stjórnvöld margra landa hafa glímt við að viðhalda byggð í fá- mennum og afskekktum byggðalögum. Frændur okkar Norðmenn þekkja þetta vel. Í gegnum árin hafa íslensk stjórnvöld hafa gripið til ýmissa ráða, án lausnar svo nokkru nemi. Sitthvað hefur mönnum komið til hugar. Skattaívilun var ein af fyrri tíma hugdettum. (Gott ef Norðmenn hafa ekki gripið til þessa í einhverri mynd.) Ef rétt er munað féll hugmyndin í grýttan jarðveg, var fundið flest til foráttu. Þeir sem vildu búa í dreifbýli yrðu sjálfir að súpa seiðið af því. Nýverið reit Pétur Blöndal, blaðamaður, grein í Morgunblaðið: ,,Húsin í sveitunum.“ Þar sagði m.a.: Fólkið á malbikinu horfir til sveitarinnar og hver vill ekki hvíla sig frá erli borgarlífsins með því að dvelja vikutíma út á landi með fjölskyldu sinni við vægu verði.“ (Og til að svo megi verða.) ,,Ég velti því fyrir mér, hvort ekki sé sniðugt að stjórnvöld veiti styrki til að gera upp gömlu húsin, sem annars verða veðri og vindum að bráð. Þetta mætti gera með beinum styrkjum eða í gegnum skattkerfið. (Og síðar) Húsin yrðu svo leigð út til fjölskyldna, sem fengju tækifæri til að upplifa tilveruna í sveitinni, smakka afurðir úr héraðinu, fylgjast með bústörfum, um- gangast dýrin og blanda geði við fólkið sem plægir akurinn.“ Eflaust hlýnar mörgum dreifbýlingum við tilhugsunina um skattalækkun. Hvort tilgangurinn, sem þarna er lagður til grundvallar, helgar meðalið skal satt best að segja dregið í efa. Borgarbarnið fær fulla samúð yfir í öllu ysinu og þysinu, sem á það er lagt. – s.h. Hlutastarf Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum óskar eftir að ráða starfsmann í hlutastarf á skrifstofu félagsins. Launakjör eru skv. kjara- samningi FOS-Vest. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Skriflegar umsóknir sendist til skrifstofu fé- lagsins eigi síðar en 15. september nk., að Aðalstræti 24 á Ísafirði. Helgarveðrið Horfur á fimmtudag: Austan 8-13 m/s við suð- urströndina og á annesj- um norðan til en annars hægari: Horfur á föstu- dag: Norðaustlæg átt og vætu-samt, en skýjað og úr-komulítið á Suður- og Vesturlandi. Hiti 10-15 stig. Horfur á laugar- dag: Breytileg átt og vætusamt. Heldur kólnandi veður. Horfur á sunnudag: Breytileg átt og vætusamt. Heldur kólnandi veður. Árgangur 1936 frá Ísafirði hitt- ist á ný um helgina. „Við byrjuð- um á því að hittast í Tjöruhúsinu á föstudagskvöld og borðuðum þar saman. Síðan röltum við í Edinborgarhúsið og spjölluðum þar saman langt fram á kvöld. Á laugardag hittumst við aftur og var þá Safnahúsið skoðað hátt og lágt. Veðrið var svo gott að fólk vildi ekki fara í neinar bíla- ferðir þannig að menn tvístruðust um bæinn og fóru að skoða göm- ul heimkynni og þær breytingar sem hafa orðið á bænum. Við hittumst síðan í kaffi í Faktors- húsinu í Hæstakaupstað áður en við héldum á Hótel Ísafjörð þar sem við borðuðum saman kvöld- verð og sátum fram á miðnætti,“ segir Sigurður Ólafsson sem var einn úr hópnum. Aðspurður segir hann að þátt- takan hefði mátt vera betri. „Við hefðum gjarnan viljað fá fleiri en það er ekki sjálfgefið þegar fólk býr annars staðar. En þetta lánaðist mjög vel og ég held að allir hafi verið ánægðir. Þar spil- aði veðrið stórt hlutverk en það var algjör blíða þessa daga, þegar við komum út af hótelinu á mið- nætti var hitinn 19 stig.“ Árgangur ´36 hitt- ist í blíðskaparveðri Árgangur 1936 frá Ísafirði hittist um helgina. Hér er hópurinn ásamt mökum á Silfurtorgi. Frumsýning á söguslóðum Kómedíuleikhúsið frum- sýnir nýtt leikrit föstudaginn 17. september. Verkið ber heit- ið Bjarni á Fönix og er byggt á sönnum atburðum úr vestfirsk- um sögnum. Verður það frum- sýnt á söguslóðum í hlöðunni á Alviðru í Dýrafirði. Um er að ræða eins manns verk þar sem Ársæll Níelsson verður á sviði og Elfar Logi Hannesson leikstýrir en þeir skrifuðu báðir handritið. Marsibil Kristjáns- dóttir hannaði leikmyndina. Um er að ræða sögusýningu og næsta sýning fer fram á Talisman á Suðureyri auk þess sem hún verður sýnd á Ísafirði í október. Síðan verður hún sýnd víðar. Verkið fjallar um skipherrann Bjarna Þórlaugar- son en ekki var vitað hver faðir hans var. Hann var skip- herra á bát sem hét Fönix.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.