Bæjarins besta - 16.12.2010, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2010
Mikið fall í læsi á stærðfræði
meðal nemenda á Vestfjörðum
Samkvæmt niðurstöðum nýrr-
ar PISA rannsóknar hefur orðið
mikið fall í læsi á stærfræði og
náttúrufræði í grunnskólum á
Vestfjörðum á árunum 2006 til
2009. Árið 2003 þegar mælingar
hófust voru vestfirskir nemendur
með 522 PISA stig í mælingum í
læsi á stærðfræði en síðan hefur
þeim hrakað jafnt og þétt og voru
nú með 487 stig. Þróunin er áber-
andi verst á Vestfjörðum í saman-
burði við aðra landshluta. Læsi
nemenda á náttúrufræði hefur
sömuleiðis hrakað og hér skera
Vestfirðir sig úr ásamt Norður-
landi eystra því á sama tíma hefur
þróun verið jákvæð eða stöðug í
öðrum landshlutum. Enginn
marktækur munur er á lesskiln-
ingi vestfirskra nemenda á tíma-
bilinu frá 2000 til 2009.
OECD-PISA rannsóknin er
gerð í 68 löndum og tekur rann-
sóknin til lesskilnings og læsis á
stærðfræði og náttúrufræði á með-
al 15 ára nemenda. Þetta er í
fjórða sinn sem Ísland tekur þátt
og eru helstu niðurstöður þær að
lesskilningur íslenskra nemenda
hefur loksins snúist við en les-
skilningi hafði hrakað í hvert sinn
sem mælingin var gerð. Einungis
10 af 68 löndum sem tóku þátt í
rannsókninni sýna betri frammi-
stöðu en Ísland. Frammistaða ís-
lenskra nemenda í stærfræði og
náttúrufræði er hins vegar talsvert
undir meðaltali OECD landanna.
Frekari kynning á frammistöðu
nemenda í ólíkum landshlutum
verður gerð nánari skil síðar eða
því er segir í tilkynningu. Þar er
einnig tekið fram að breytingar í
fámennum svæðum megi rekja
til náttúrulegs breytileika frá ein-
um árgangi til annars. Þó beri að
taka eftir svæðum þar sem tilhneig-
ingin sé sú sama frá einu tímabili
til annars. Slíkt sé varla tilvijun.
Flundra kom-
in til Vestfjarða
Flundra er nýr landnemi á Ís-
landi og að sögn Sigurðar Más
Einarssonar, forstöðumanns
Veiðimálastofnunar, hefur teg-
undin náð fótfestu á Vestfjörð-
um. „Sjálfur veiddi ég flundru
við ósa Gufudalsár fyrir fáein-
um árum. Við höfum ekki enn
kortlagt útbreiðslusvæðið ná-
kvæmlega en við höfum fengið
margar tilkynningar um flund-
ru á Vestfjörðum síðastliðið
ár,“ segir Sigurður. Flundra er
flatfiskur af kolaætt sem veidd-
ist fyrst á við Ísland árið 1999
en nú virðist tegundin farin að
hrygna víða um landið.
„Landnámið er í fullu gangi
og nær alveg frá suðurfjörðum
Austfjarða og suður meðfram
strandlengjunni til Vestfjarða.
Þannig nú er einungis Norður-
landið eftir og þá er hún komin
hringinn,“ segir Sigurður. Flundra
líkist skarkola og sandkola í útliti
en þekkist frá þessum tegundum
á því að meðfram bak- og raufar-
ugga eru smá beinkörtur. Hún
lifir í sjó við botn frá fjöruborði
niður á um 100 metra dýpi, sækir
í salt og ferskt vatn og getur geng-
ið upp í ár og læki.
Flundra er nytjafiskur erlendis
og segir Sigurður hana vera eftir-
sóttasta flatfiskinn í Evrópu. Dan-
ir veiða í kringum 4.000 tonn af
flundru árlega. En flundra er
skæður ránfiskur sem gæti raskað
jafnvægi fisktegunda sem fyrir
eru og þá sérstaklega bleikju og
silung. „Þetta er ósakoli og eftir
hrygninu þá fara seiðin upp í
fersk vatn og eru þar í nokkur ár.
Þar lendir hún inná búsvæðum
sem laxfiskar nýta og þá er
sérstaklega hætt við að hún lendi
í samkeppni við sjóbirting og
sjóbleikju. Þannig þetta er ákveð-
ið áhyggjuefni því þessir kolar
eru grimmir og stunda afrán á
bleikju og laxi,“ segir Sigurður.
Óttast er að landnám flundr-
unnar sé á bak við hrun bleikju-
stofnsins á Vatnasvæði Hvítár
í Borgarfirði. Þar var ársveiðin
fyrir örfáum árum um fjögur
þúsund belikjur en hefur nú
hrapað niður í aðeins fjögur
hundruð fiska.
– kte@bb.is
Flundra er nýr landnemi á Vestfjörðum.
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
keypti íbúðabréf ríkissjóðs
Lífeyrissjóður Vestfirðinga var
einn þeirra 26 íslensku lífeyris-
sjóða sem keyptu þau íbúðabréf
sem ríkissjóður hafði eignast
vegna samkomulags Seðlabank-
ans við Seðlabankann í Lúxem-
borg um kaup á skuldabréfum
Avens B.V., sem voru í eigu Lands-
bankans í Lúxemborg. Hlutdeild
Lífeyrissjóðs Vestfirðinga í kaup-
unum sem námu alls 87,6 millj-
örðum kr. var 1,71%. Þetta kemur
fram í svari fjármálaráðherra við
fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur
þingmanns á Alþingi. Aðspurður
hvort lífeyrissjóðirnir hafi stofn-
að félag um kaupin sagði ráðherra
að hver lífeyrissjóður hafi séð
um kaupin fyrir sig.
Mest keypti LSR og Lífeyris-
sjóður hjúkrunarfræðinga eða
21,80%. því næst komu Lífeyris-
sjóður verzlunarmanna 18,80%,
Gildi lífeyrissjóður með 14,36%,
Stapi lífeyrissjóður með 6,05%,
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 6,24%,
Almenni lífeyrissjóðurinn með
5,37%, Stafir – lífeyrissjóður með
4,83%, Frjálsi lífeyrissjóðurinn
með 4,50%, Söfnunarsjóður líf-
eyrisréttinda með 3,42%, Festa
– lífeyrissjóður með 3,09%, Líf-
eyrissjóður starfsmanna sveitar-
félaga með 2,05%, Lífeyrissjóður
verkfræðinga með 1,71%, Ís-
lenski lífeyrissjóðurinn með 1,17%
og Lífeyrissjóður Vestmanna-
eyja með 1,78%.
Þeir lífeyrissjóðir sem voru
með lægra hlutfall en Lífeyris-
sjóður Vestfirðinga voru Lífeyr-
issjóður bænda, Lífeyrissjóður
starfsmanna Búnaðarbanka Ís-
lands, Eftirlaunasjóður FÍA,
Kjölur – lífeyrissjóður, Lífeyris-
sjóður Rangæinga, Eftirlauna-
sjóður Reykjanesbæjar, Lífeyris-
sjóður starfsmanna Kópavogs-
kaup, Lífeyrissjóður Tannlækna-
félags Íslands, Eftirlaunasjóður
starfsmanna Hafnarfjarðar, Líf-
eyrissjóður Akraneskaupstaðar
og Lífeyrissjóður Neskaupstaðar.
Þessir lífeyrissjóðir voru ekki
með í kaupunum Eftirlaunasjóð-
ur Sláturfélags Suðurlands (hefur
nú sameinast Söfnunarsjóði líf-
eyrisréttinda), Eftirlaunasjóður
starfsmanna Glitnis (hefur nú
sameinast Söfnunarsjóði lífeyris-
réttinda), Eftirlaunasjóður starfs-
manna Útvegsbanka Íslands, Líf-
eyrissjóður bankamanna, Lífeyr-
issjóðurinn Skjöldur (hefur nú
sameinast Söfnunarsjóði lífeyris-
réttinda), Lífeyrissjóður starfs-
manna Akureyrarbæjar, Lífeyris-
sjóður starfsmanna Húsavíkur-
kaupstaðar. Lífeyrissjóður starfs-
manna Reykjavíkurborgar og
Lífeyrissjóður starfsmanna Vest-
mannaeyjabæjar.
26 lífeyrissjóðir á Íslandi
keyptu íbúðabréf sem rík-
issjóður hafði eignast vegna
samkomulags Seðlabank-
ans við Seðlabankann í
Lúxemborg um kaup á
skuldabréfum Avens B.,
þar af keypti Lífeyrissjóð-
ur Vestfirðinga 1,17%.