Bæjarins besta - 16.12.2010, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2010 27
Sælkeri vikunnar er Daníel Jakobsson á Ísafirði
Japanskur kjúklingaréttur
„Ég verð nú að viðurkenna
það að ég er afar slappur kokk-
ur og elda lítið upp úr uppskrift-
arbókum. Sjálfur hef ég ein-
faldan smekk og eru pylsur og
pasta með tómatsósu í miklu
uppáhaldi hjá mér en það þarf
nú ekki mikla hæfileika í eld-
húsinu til að koma því saman.
Vala konan mín er hinsvegar
sleipari hún eldar stundum jap-
anskan kjúklingarétt sem að
mér finnst mjög góður og læt
ég fylgja með uppskrift að hon-
um hér.“
Japanskur kjúklingaréttur.
Dugir fyrir átta venju-
lega en fjóra skíðamenn
6-7 kjúklingabringur
Olía til steikingar
Sweet chili sósa eftir smekk
(ca. ¾ dl)
1 bolli ólívuolía
½ bolli balsamic ediik
4 msk sykur
4 msk sojasósa
1 rauðlaukur, smátt saxaður
2 pk. súpunúðlur (instant)
1 poki furuhnetur
4 msk. sesamfræ
Blandað salat, t.d. klettasalat,
eikarlauf og lambasalat eða spín-
at og klettasalat.
½ askja kirsuberjatómatar
1 mangó
Bringurnar eru skornar í strimla
og snöggsteiktar á pönnu. Sweet
chili sósunni er síðan hellt yfir
og látið malla í smástund.
Ólívuolía, balamic edik, lauk-
urinn, sykur og sojasósa sett í lít-
inn pott og suðan látin koma upp,
slökkt undir og hrært í annað
slagið meðan sósan kólnar svo
að hún skilji sig ekki.
Núðlurnar brotnar í litla bita
og ristaðar á pönnu ( gott að strá
örlitlu af kryddinu sem fylgir
þeim yfir). Furuhnetur og sesam-
fræ einnig ristuð á pönnu og þetta
síðan sett til hliðar og látið kólna.
Salat sett á stórt fat, kjúklingur,
tómatar og mangó sett ofan á,
því næst ristuðum núðlum,
furuhnetum og sesamfræjum,
sósunni dreypt yfir.
Með kaffinu er svo hægt að
bjóða upp á Döðluköku Svövu
hlaupara sem ekki þarf að baka.
500 g döðlur
50-60 g kókosolía
50-100 g suðusúkkulaði
(brytjað)
1 bolli haframjöl
2 bananar
Döðlur hitaðar í potti og mauk-
aðar. Maukuðum banönum bætt
við ásamt haframjölinu og kókos-
olíunni. Sett í 1 stórt form og
klæst í smá tíma. Kókosflögur,
fersk jarðaber og brytjaða
súkkulaðið sett yfir. Borin
fram með rjóma eða ís.
Þannig var það, gjörið þið svo
vel.
Ég skora svo á Ingu Karls-
dóttur bankastjóra á Ísafirði
að bjóða okkur í jólamat.
Fagna 100 milljóna króna afla
Kristján Andri Guðjónsson út-
gerðarmaður á Ísafirði fagnaði
ásamt samstarfsfélögum og vin-
um þeim áfanga að bátur hans
Björg Hauks ÍS hefur aflað fyrir
meira 100 milljónir króna á árinu.
Björg Hauks er í flokki smábáta
undir 10 brúttótonnum og rær
alfarið með línu, en þess má geta
að Björg Hauks var aflahæsti bát-
urinn í sínum flokki í nóvember
þegar hún kom með rúm 56 tonn
að landi eftir 16 róðra. „Þetta er í
fyrsta sinn sem við náum þessum
áfanga og okkur fannst þetta til-
valið tækifæri til þess að gera
okkur glaðan dag,“ segir Kristján
sem þakkar háu fiskverði á mörk-
uðum og góðum gæftum árang-
urinn. „Og svo er þetta auðvitað
ekki hægt nema með fyrsta flokks
mannskap bæði í áhöfn og í
landi,“ bætir Kristján við, en skip-
stjóri er Kristján Guðmundsson.
Kristján segir kvótaleysið vera
farið að segja til sín. Sér í lagi sé
farið að draga úr ýsukvótanum
sem var skorinn mikið niður á
þessu fiskveiðiári. „Þó að maður
vildi leigja til sín kvóta, þá er
hann ekki í boði. Það væri ósk-
andi að sjávarútvegsráðherra
myndi auka við kvótann og setja
í þetta aukinn kraft. En við bregð-
umst við þessum meðal annars
með því að taka gott jólafrí. Ætli
við stoppum ekki þann 17. eða
18. desember og svo förum við
ekki af stað fyrr en eftir áramót,“
segir Kristján Andri.
Þegar líða fer að vori fer Krist-
ján svo að hugsa sér til hreyfings.
Hann á annan bát og hefur róðið
honum á grásleppu frá Norður-
firði. „Ég og pabbi höfum byggt
okkur lítið sumarhús í Norður-
firði og ég hyggst dvelja þar frá
lokum apríl og fram á sumar,
enda góður staður til að vera á.
Vonandi verður svo vertíðin jafn
skemmtileg og síðastliðið vor en
þá var ljómandi fiskirí og gott
verð fékkst fyrir hrognkelsið,“
segir Kristján Andri.
Kristján Andri (t.h.) ásamt Inga Magnfreðssyni er áfanganum var fagnað.
True Viking aftur á markað
Á næstu dögum mun vest-
firski herrailmurinn og rak-
spírinn True Viking koma á
markað að nýju eftir nokkurt
hlé. Smávægilegar breytingar
hafa verið gerðar á ytri um-
búðum en flaskan er óbreytt.
Framleiðandi og söluaðili
vörunnar er fyrirtækið True
Viking ehf. sem er í eigu Hug-
rúnar Kristinsdóttur og
Gunnars G. Magnússonar.
Fyrirtækið stefnir að því að
auka vöruúrval í snyrtivörum
og fylgihlutum fyrir karlmenn
til að byrja með. True Viking
rakspírinn og ilmurinn var
upphaflega settur á markað
árið 2001 af fyrirtækinu Koss
ehf. Markaðurinn tók vel á
móti þessari vöru og var hún
meðal annars seld í Fríhöfn-
inni í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, í Saga Boutique um
borð í flugvélum Icelandair, Í
Bláa lóninu í Svartsengi og í
snyrtivöruverslunum um allt
land. Árið 2006 hætti Koss ehf.
framleiðslu og sölu á True
Viking vegna þess að framleið-
andi glerflaskna hætti fram-
leiðslu. „Nú hefur fyrirtækinu
True Viking ehf. tekist að
reisa upp flagg vestfirska
víkingsins að nýju og mun nú
ráðast á markaðinn með sverð
á lofti,“ segir í tilkynningu.
True Viking herra ilmurinn og
rakspírinn verða til sölu hjá
versluninni Konur og Menn á
Ísafirði, í snyrtivöruversl-
uninni Hygea í Kringlunni og
Smáralind, í öllum verslunum
ITA (Iceland Travel Assis-
tance) og væntanlega víðar.
Einnig verður hægt að
kaupa vörurnar í netverslun
fyrirtækisins á slóðinni
www.trueviking.is sem mun
verða opnuð á sama tíma og
varan kemur á markað.