Bæjarins besta - 16.12.2010, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2010
Fram á nýjan veg
Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum
hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt.
Stakkur skrifar Ísland og Íslendingar hafa
átt við mörg vandamál að etja síð-
ustu tvö árin og í skugga þeirra hefur öll ræða um framtíð lands-
byggðarinnar horfið. Vestfirðir búa við mikla sérstöðu. Samgöngur
verða ávallt nokkuð snúnar vegna veðurfars og vegalengda. En
margt hefur gengið okkur í hag undanfarin ár. Bankahrunið hefur
haft sín áhrif hér eins og annars staðar. Bolungarvík tengjast djarf-
ir fjármálamenn sem verða til rækilegrar skoðunar hjá sérstökum
saksóknara. Ekki er víst að þáttur þeirra auki veg Vestfirðinga.
Öðru fremur sýnir þessi staðreynd okkur að alls staðar á okkar
ágæta landi eru til menn sem af gróðafíkn skirrast ekki við að fara
á svig við reglur og jafnvel lög, að minnsta kosti láta gott siðferði
víkja fyrir peningasjónarmiðum. En nóg um það. Samgöngur hafa
batnað mjög við nýja brú yfir Mjóafjörð, aðra yfir Reykjarfjörð,
nýjan veg Gilsfjarðar og Steingrímsfjarðar og loks göng milli
Bolungarvíkur og Hnífsdals. Draumar margra hafa ræst. En nú
finnum við fyrir afleiðingum samdráttar af bankahruninu. Það
vantar atvinnu.
Flateyri sér fram á erfiðleika. Það vantar kvóta og vinnu. Það
fækkar störfum í verktakageiranum og síðast en ekki síst er enn
óljóst um framtíð heilbrigðisþjónustu á Vestfjörðum. Sá þáttur
mun skýrast á næstu dögum. En allsstaðar eru störf í húfi. Mjög
mæðir á ríkisstjórn og Alþingi varðandi uppbyggingu efnahags á
Íslandi í framhaldi hruns og kreppu því samfara. Sannast sagna
vantar framtíðarsýn. Of mikið ber á lausnum til styttri tíma. Okkur
vantar að sjá ljósið við enda ganganna svo notað sé líkingarmál.
Við viljum sjá, ekki bara að eitthvað sé framundan heldur líka að
hverju skuli stefnt. Hlutverk ríkisstjórnarinnar er erfitt og því
miður hefur borið um of á því að sett séu fram málefni sem ekkert
hafa með það að gera að koma ,,landinu á lappirnar”. Mörg
málanna bera of mikinn keim af því að umræðu sé drepið á dreif.
Það á við um dýrt Stjórnlagaþing, sem hefur ekkert umboð og
kostar allt of mikið fé sem betur hefði verið varið til að byggja upp.
Breytingar vegna Stjórnlagaþings ef einhverjar verða koma til um-
fjöllunar að loknu kjörtímabili, sem ætlað er að standa til 2013.
Af hverju er enn ekki til nein áætlun um það hvað Íslendingar
hyggjast fyrir um dreifingu byggðar í landinu? Hvernig viljum
við sjá ríkisfjármál eftir 5 eða 10 ár? Hvert ætlum við yfirleitt?
Samþykkt hefur verið að sækja um inngöngu í Evrópusambandið
en ekki er nein samstaða um það mál, engin vitræn umræða og
óeining í ríkisstjórn. Þegar svo er komið, að ekki er hægt að fylgja
eftir málum sem ríkisstjórn er mynduð um hverjar eru þá vonir
um framtíðarsýn? Hver verður staða Vestfjarða í Evrópusamband-
inu? Mun minna verða hugsað um þá sem hér búa? Breytist
eitthvað til batnaðar eða breytist ekki neitt? Átti Stjórnlagaþing
að draga athyglina frá vandræðagangi um Evrópusambandið?
Hvenær hefst raunverulegt skuldauppgjör og hvernær getum við
farið að sjá fram á veginn? Enn eru engin svör. Vestfirðingar gef-
ast aldrei upp, en eiga litla möguleika í kjördæmi, eins og í stórum
heimi sem hefur aðrar áherslur en okkar. Nýjan veg vantar.
Stórt skref var stigið við
virkjun Mjólkár 3 í Arnar-
firði fyrir stuttu þegar hleypt
var vatni á pípuna og vélin
látin snúast. Seinnipartinn á
sunnudag fyrir viku var afl-
rofinn settur inn og fyrstu
kwh framleiddar. Mjólká er
í raun tvær virkjanir, eitt og
tvö, en nú hefur þriðju virkj-
uninni verið bætt við með
sér stöðvarhúsi hátt uppi í
fjalli. „Þó að þessi virkjun sé
ekki stór er hún gott innlegg
í orkuvinnslu á Vestfjörð-
um,“ segir í tilkynningu á
vef Orkubús Vestfjarða.
Eins og fram hefur komið
hafa miklar framkvæmdir
staðið yfir í Mjólkárvirkjun.
Byggt var nýtt stöðvarhús,
lögð pípa og sett upp nýtt
inntaksmannvirki. Á næsta
ári verður svo Mjólká tvö
stækkuð. Áætlað er að verkið
kosti um einn milljarð króna
og Orkubúið tekur engin lán.
Mjólká 3
gangsett
Frá Mjólká 3. Mynd: ov.is.
Vestfirðingar voru í upphafi árs
7362 talsins og þar af voru um
709 íbúar með erlent ríkisfang
eða sem nemur 9,6% af heildar
íbúafjölda í fjórðungnum. Hlut-
fallið hefur hækkað lítillega síð-
astliðin þrjú ár en árið 2008 var
það 8,2% og 9,5% á síðasta ári.
Pólverjar eru langflestir þeirra
erlendu ríkisborgara sem búa á
Vestfjörðum eða 436 talsins eða
um 60%. Hæst er hlutfallið í
Tálknafjarðarhreppi þar sem yfir
fimmtungur íbúanna er með
erlent ríkisfang eða 64 af 299
íbúum sveitarfélagsins. Hlutfall-
ið hefur hækkað nokkuð á Tálkna-
firði en árið 2008 voru rúm 16%
íbúanna með erlent ríkisfang.
Næst hæst er hlutfallið í Bolung-
arvík eða 17,1% og þar hefur hlut-
fallið sömuleiðis farið hækkandi;
árið 2008 voru tæp 12% með
erlent ríkisfang og tæp 16% árið
2009.
Í Árneshreppi er enginn íbúi
með erlent ríkisfang og aðeins
fimm erlendir ríkisborgarar eru í
Kaldrananes- og Bæjarhreppi.
Hlutfallið er sömuleiðis lágt í
Strandabyggð þar sem fimm ein-
staklingar af 499 íbúum sveitar-
félagsins eru með erlent ríkis-
fang. Erlendir ríkisborgar búsettir
í Ísafjarðabæ er 337 talsins eða
8,6% íbúanna og þar af eru lang-
flestir frá Póllandi eða 189. Er-
lendum ríkisborgurum fækkaði
nokkuð frá árinu 2009 þegar þeir
voru 361 talsins og 9,1% íbú-
anna. Hlutfall kynja er nokkuð
jafnt í Ísafjarðarbæ, en erlendir
karlmenn eru 175 og konur 162.
– kte@bb.is
Tæplega 10% íbúa á Vest-
fjörðum með erlent ríkisfang
Hlutfall erlendra ríkisborgara sem búsettir eru á Vestfjörðum hefur aukist undanfarin ár.
smáar
Til sölu er notuð Blomberg
uppþvottavél og tvískiptur
Vestfrost ísskápur. Upplýs-
ingar í síma 844 0242.
Til sölu er Suzuki Vitara árg.
2005, ekinn 55 þús. km. Upp-
hækkaður. Ný nagladekk fylgja.
Verð 2,1 millj. kr. Á sama stað
eru til sölu fjögur nagladekk
13" 175/70 á kr. 20.000. Uppl.
í síma 698 1850.
Til leigu er 3ja herb. íbúð neð-
arlega í Fjarðarstrætinu á Ísa-
firði. Uppl. í síma 863 9932.
Uppsetningu
lokið í febrúar
Eftir að dýpkun lýkur við
Ísafjarðarhöfn verður dýpið
þar orðið 9 metrar. Verkið
var boðið út í síðustu viku.
Dýpkunarefnið verður nýtt
sem efniviður í uppfyllingu
norðan Mávagarðs.
„Í fyllingu tímans verður
nýja spildan nýtt sem aðstaða
fyrir olíubirgðastöð steinsnar
frá nýju bryggjunni, sem er
mikil framför frá því sem
var,“ segir í frétt á vef Sigl-
ingastofnunar.