Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.12.2010, Side 25

Bæjarins besta - 16.12.2010, Side 25
FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2010 25 Útbreiðsla lúpínu misjöfn eftir svæðum Útbreiðsla lúpínu og kerfils er mjög misjöfn á milli svæða í Ísafjarðarbæ. Útbreiðsla þessara tegunda er til dæmis frekar lítil í Súgandafirði samanborðið við Skutulsfjörð og Dýrafjörð. „Því ætti að vera hægt að stefna að því að eyða þessum tegundum strax algjörlega á Suðureyri áður en útbreiðslan eykst á meðan vert er að huga vel að því hvaða svæð- um væri betra að byrja á hinum stöðunum,“ segir í skýrslu með kortlagningu Náttúrustofu Vest- fjarða af útbreiðslu Alaskalúpínu og kerfils á fyrirfram ákveðnum svæðum í kring um bæi innan Ísafjarðarbæjar. Þegar kortin eru skoðuð sést að ærið verkefni er fyrir höndum og segir NAVE því mikilvægt að vinna skipulega að hvaða svæðum skuli byrja á. Í skýrslunni segir að Hnífsdal- ur, Dýrafjörður, Önundarfjörður og í kringum Ísafjörð séu þau svæði sem setja þarf í forgang er kemur að fyrsta áfanga útrýming- ar á kerfli og lúpínu. Í Hnífsdal skal fínkemba vel svæðin með stökum plöntum, bæði kerfils og lúpínu, og litlum blettum og fjarlægja þær svo þær nái ekki að dreifa úr sér. Bent er á að lúpína er í gamalli námu í hlíðinni rétt áður en komið er inn í Hnífsdal. Einnig eru lúpínu- blettir, fyrir aftan blokkirnar þeg- ar komið er inn í bæinn, enn frekar litlir svo þá væri gott að taka með. Hvað Ísafjörð varðar eru það helst fjallshlíðar ofan bæjarins sem ætti að huga að þar sem þeir blettir geta dreift mjög hratt úr sér. Einnig skal huga að minni blettum og stökum plöntum til dæmis í Dagverðardal innan Holtahverfis í kring um námu og Vegagerðina, leiðinni upp að göngum, meðfram Skutulsfjarð- arbraut og aðrir litlir blettir. Í Tunguskógi væri æskilegt að tryggja að þessar plöntur nái ekki að yfirtaka svæðið upp með ánni sem liggur frá tjaldsvæðinu og upp á Seljalandsdal það svæði hefur mikla tegundafjölbreytni og er mikið notað til útiveru af bæjarbúum og ferðamönnum. Auk þess ætti að líta til helstu berja- tínslusvæðanna. Stóru svæðin í Tungudal ætti hins vegar ekki að setja í forgang þau eru stór og afmörkuð. Í Önundarfirði er lagt að sett verði í forgang svæðið frá gangna- munna og þverunin yfir fjörðinn auk einstaka plantna meðfram veginum í átt að Flateyri blettir innan Flateyrar. Hátt í fjallshlíð- inni ofan Breiðadals er blettur sem gæti breitt úr sér. Hann virð- ist þó á svæði sem erfitt gæti verið að nálgast. Nálægt Garð/ Hól er blettur og einnig nálægt Tröð. Snjóflóðavarnargarðurinn ætti ekki að vera forgangsverk- efni í fyrsta áfanga. Í Dýrafirði er það helst eyrin á Þingeyri þar sem enn eru litlir blettir t.d. við víkingasvæðið og stakar plöntur. Bletturinn við flugvöllinn er nokkuð afskekktur og gæti auðveldlega dreift úr sér í nærliggjandi svæði svo gott væri að leggja áherslu á hann. Aðrir minni blettir í firðinum eins og þegar komið er niður af Gemlu- fallsheiðinni. Þá eru blettir hátt í hlíðum fyrir ofan Þingeyri og blett- ur í skógi í suðurhlíð Sandafells. Enn er ekki mikil útbreiðsla kerfils og lúpínu í Súgandafirði. Stefna ætti strax að allsherjar út- rýmingu á svæðinu áður en vandamálið verður stærra og flóknara. Þá er lagt til að ef tími vinnst að byrja á minni og af- skekktari blettum og reyna að einangra útbreiðsluna við færri svæði. Einnig er bent á í skýrslunni að lúpína geti dreift sér hratt niður gil og skorninga þar sem leysing- arvatn geti borið fræin með sér. „Því ætti að leggja áherslu á bletti eins og til dæmis í bröttum fjalls- hlíðum þar sem möguleiki er að koma því við. Mikilvægt að gleyma ekki að viðhalda þarf ár- angri af fyrri áföngum samhliða því að byrjað verði verður á síðari áföngum. Í því sambandi má nefna lúpína getur myndað tals- verðan fræforða í jarðvegi og kerfill getur verið snúinn viður- eignar þótt fræ hans lifi ekki eins lengi. Því gæti þurft að vakta sömu svæðin í nokkur ár eftir fyrsta átak þótt vinna við útrým- ingu á þeim verði sífellt minni.“

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.