Bæjarins besta - 26.01.2012, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012
Thelma Rut kjörin íþrótta-
maður Ísafjarðarbæjar 2011
árangur á árinu 2011. Það voru
þeir Anton Helgi Guðjónsson hjá
Golfklúbbi Ísafjarðar, Elena Dís
Víðisdóttir hjá Sundfélaginu
Thelma Rut Jóhannsdóttir hjá
Skíðafélagi Ísfirðinga er íþrótta-
maður Ísafjarðarbæjar fyrir árið
2011. Thelma Rut hefur æft skíði
hjá Skíðafélagi Ísfirðinga í tíu
ár. Hún náði snemma mjög góð-
um tökum á íþróttinni og hefur
alla tíð verið í fremstu röð í sínum
aldursflokki. Árangur hennar á
síðastliðnu ári var mjög góður.
Hún var fjölmörgum sinnum á
verðlaunapalli í sínum aldurs-
flokki en einnig í fullorðinsflokki
kvenna. Á árinu 2010 var hún
valin í unglingalandslið Skíða-
sambands Íslands og hefur síðan
tekið þátt í bæði æfingum og
keppni í alþjóðlegum mótum á
þess vegum. Þá varð hún bikar-
meistari SKÍ í flokki 15-16 ára á
síðasta ári.
Viðurkenning fyrir útnefning-
una og farandbikar var afhentur
við hátíðlega athöfn í Stjórn-
sýsluhúsinu á Ísafirði á sunnu-
dag. „Thelma Rut er hæfileikarík
skíðakona og metnaðarfull,“
segir í umsögn um Thelmu sem
lesið var upp við athöfnina.
„Thelma er sterkur íþróttamaður,
skemmtilegur æfingafélagi og
metnaðarfull keppnismanneskja.
Auk þess að vera sterkur skíða-
maður er Thelma ein af öflugustu
knattspyrnukonum bæjarins.“
Auk Thelmu hlutu átta íþrótta-
menn viðurkenningu fyrir góðan
Vestra, Eva Margrét Kristjáns-
dóttir hjá Körfuknattleiksfélagi
Ísafjarðar, Hafrún Lilja Jakobs-
dóttir hjá Hestamannafélaginu
Hendingu, Hafþór Atli Agnars-
son, hjá Boltafélagi Ísafjarðar,
Kristín Þorsteinsdóttir hjá Íþrótta-
félaginu Ívari, Sigurður Óli Rún-
arsson hjá Herði og Valur Richter
hjá Skotíþróttafélagi Ísafjarðar-
bæjar.
– thelma@bb.is
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir færði fyrir hönd Ísafjarðarbæjar Thelmu Rut viðurkenningu og farandbikar við formlega athöfn.
Níu íþróttamenn fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur á árinu 2011. Fjölmenni mætti til hófsins í Stjórnsýsluhúsinu.
Sautján missa vinnuna við gjaldþrot KNH
Sautján einstaklingar missa vinn-
una við gjaldþrot verktakafyrir-
tækisins KNH ehf., en þeim hafði
verið sagt upp í hópuppsögn í
október á síðasta ári. Forsvars-
menn Verkalýðsfélags Vestfirð-
inga hafa átt óformlegan fund
með nokkrum fyrrverandi starfs-
mönnum fyrirtækisins þar sem
farið var yfir réttarstöðu þeirra í
gjaldþrotaferlinu. Fyrirhugaður
er sameiginlegur fundur Verka-
lýðsfélagsins og Vinnumála-
stofnunar þar sem farið verður
betur yfir það ferli sem við tekur.
„Ljóst er að VerkVest mun
reyna að hlaupa undir bagga með
félagsmönnum sem ekki hafa
fengið greidd laun síðan 1. des-
ember. Félagið hefur að sjálf-
sögðu boðist til að sjá um launa-
kröfur fyrir hönd sinna félags-
manna,“ segir á vef félagsins.
Eins og greint hefur verið frá
hefur Héraðsdómur Vestfjarða
úrskurðað að félagið verði tekið
til gjaldþrotaskipta.
Fyrirtækið hafði verið í greið-
lustöðvun frá apríl 2011 og í fram-
haldinu leitað nauðasamninga, en
heimild til nauðasamninga var
felld úr gildi fyrir stuttu. Grímur
Sigurðsson hrl., hjá Landslögum
hefur verið skipaður skiptastjóri.