Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.01.2012, Síða 6

Bæjarins besta - 26.01.2012, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012 Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564. Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is. Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is. · Ásta María Sverrisdóttir, sími 824 0644, asta@bb.is · Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson. Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. ISSN 1670 - 021X Spurningin Fylgist þú með leikjum íslenska landsliðsins á EM í handbolta? Helgarveðrið Horfur á föstudag: Suðaustanátt með slyddu eða rigningu, en úrkomu-lítið NA-til. Hlýnar um land allt. Horfur á laugardag: Suðlæg átt og úrkoma, einkum sunnantil. Hiti 0-7 stig. Horfur á sunnudag: Suðvestanátt og éljagangur og kólnandi veður. Ritstjórnargrein Að þreyja Þorrann Margrét Gunnarsdóttir er bæj- arlistamaður Ísafjarðarbæjar Margrét Gunnarsdóttir, píanó- leikari á Ísafirði, var útnefnd bæj- arlistamaður Ísafjarðarbæjar við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu á Ísafirði á föstudag. Var það ein- róma niðurstaða bæjarráðs að Margrét yrði fyrir valinu en nokkr- ar ábendingar bárust til ráðsins eftir að óskað var eftir tilnefning- um í þetta virðingarstarf. Meðal atriða sem tilnefning bæjarráðs byggir á má nefna að Margrét hefur unnið að listum og menn- ingu í Ísafjarðarbæ í yfir 20 ár. Hún hefur annast kórstjórn og undirleik fyrir fjölda kóra í bæn- um. Margrét hefur einnig kennt fjölda ungs fólks á píanó. Hún á stóran þátt í endubyggingu Edin- borgarhússins sem er menningar- miðstöð í Ísafjarðarbæ. Margrét hefur rekið listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar af mikl- um metnaði og alúð. „Ekki er ofsögum sagt þó henni sé þakkað að hér í bæ sé kenndur ballettdans svo eitthvað sé nefnt. Það er því fullkomlega ljóst þó ekki sé lengri upptalning á afrekur lista- konunnar Margrétar Gunnars- dóttur að hún er vel að því komin að hljóta útnefningu sem lista- maður Ísafjarðarbæjar árið 2012,“ sagði Albertína F. Elíasdóttir, forseti bæjarstjórnar, við útnefn- ingu bæjarlistamannsins. Margrét Gunnarsdóttir fæddist á Ísafirði 16. mars árið 1954, og er dóttir hjónanna Gunnars Jóns- sonar og Jónínu Einarsdóttur. Hún útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 1974 en fluttist þá til Reykjavík- ur. Það átti fyrir Margréti að liggja að nema klassískan píanóleik vestan hafs og austan. Árið 1977 fékk hún styrk til náms við Ohio- háskóla í Bandaríkjunum, en haustið 1978 flutti hún sig til Evrópu og lærði við Sweelinck Conservatorium í Amsterdam í Hollandi. Hún lauk því námi árið 1984 ásamt kennsluréttinum í píanóleik. Sama ár flutti hún aftur í heimahagana og hóf kennslu við Tónlistarskóla Ísafjarðar. Ár- ið 1993 urðu svo vatnaskil í ferli Margrétar er hún stofnaði Lista- skóla Rögnvaldar Ólafssonar. Margrét er sú ellefta sem hlýtur nafnbótina „Bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar“. Fyrri bæjar- listamenn hafa verið Marsibil Kristjánsdóttir, myndlista- og fjöllistarkona, Sigríður Ragnars- dóttir, skólastjóri og tónlistar- maður, Reynir Torfason, mynd- listarmaður, Jón Sigurpálsson, myndlistarmaður og safnvörður, Harpa Jónsdóttir, rithöfundur og kennari, Vilberg Vilbergsson, rak- ari og tónlistarmaður, Jónas Tómasson tónskáld, Elfar Logi Hannesson leikari, Pétur Tryggvi Hjálmarsson silfursmiður og Bald- ur Geirmundsson, tónlistarmaður. Albertína og Margrét við útnefningu bæjarlistamannsins. Árstíminn sem nú er uppi var fyrri alda Íslendingum jafnan kvíðvæn- legur. Hverjar voru líkurnar á að þreyja mætti Þorrann og Góuna, öllu jafnan veðrasamasta tíma ársins og við þær aðstæður sem þá voru al- mennt uppi hvað húsakost og annað er daglegt líf varðaði. Hvað sem líður amstri og bölmóði mörlandans í dag, komumst við aldrei nær þeirri harðneskju sem forfeðurnir máttu í einu og öllu þola, en það sem lesa má um í gömlum skræðum. Yfir vangaveltum um veðurfar á Þorra til lands og sjávar verður ekki horft fram hjá pólitískum sviftivindum, átökum og uppreisnum, sem nú ganga yfir líkt og lægðir á færiböndum veðurfræðinga, vítt og breitt um heim. Svo djúpt hefur verið í árinni tekið að verði ekkert aðhafst komi óhjákvæmilega til átaka milli þess stóra hóps fólks, um allan heim, sem ekkert á, og hins fámenna hluta, sem allt á. ,,Fátæka fólkið er að sækja fram og krefst réttlætis. Ef ríka fólkið, þ.e. við Vesturlandabúar fyrst og fremst, föllumst ekki á að láta eitthvað af okkar hlut verður bylting á heimsvísu í sama anda og afdrifaríkasta þjóðfélagsbylting síðari tíma í París fyrir rúmum 200 árum,“ segir Styrmir Gunnarsson, fyrrum rit- stjóri Morgunblaðsins, í Morgunblaðinu á sunnudag og hann segir líka ójöfnuð ríkja innan borgarhliða hinna ríku Vesturlanda. ,,Við sjáum á Íslandi í örmynd þjóðfélagsátökin úti í hinum stóra heimi. Hér eins og annars staðar snúast þau um að jafna kjörin og að hinir ríku láti eitthvað af hendi,“ segir Styrmir og spyr: ,,Er eðlilegt að Mitt Romney, sem get- ur orðið forsetaefni repúblikana borgi 15% skatt af sínum tekjum, þeg- ar launþegi í bílaverksmiðju í Detroit borgar 35%. Sama kerfi er í gildi hér.“ Fyrr í skrifum sínum hafði Styrmir vitnað til greinar í bandarísku tímariti þar sem sú kenning var uppi að ,,óskráður þjóðfélagssáttmáli, sem í gildi hafi verið í Bandaríkjunum, hafi verið brotinn. Og peningarnir tekið völdin. Eða öllu heldur hafi skipulagt peningavald tekið stjórn mála í sínar hendur og staðið fyrir gífurlegri eignatilfærslu til hinna auðugustu.“ Hljómar þetta eitthvað kunnuglega í eyrum? Eflaust eru margir sem erfitt eiga með að sjá fram á hvernig þeir þreyi Þorrann og Góuna. Ástæðurnar fyrir því eru þó allt aðrar en for- feður okkar áttu við að etja; langt frá því að vera einfalt og auðleyst mál. Svo er um fleiri samfélagsleg vandamál, sem ekki veður ráðin bót á nema til komi samstaða í stað sundrungar. Það vantar ekki fjölbreytnina í Þorradagskrána. Í USA sólunda menn milljörðum dollara í baráttuna um forsetastólinn; handhafi stólsins á Bessastöðum kýs að hafa kápun á öxlum sér líkt og Sæmundur forð- um; í Bretlandi kom ráðherra til hugar að leysa fjármálakreppuna með þvi að gefa drottingunni nýja glæsisnekkju; til hvers upplausnin á ís- lenska stjórnarheimilinu kann að leiða skal engu spáð. Eitt er víst: Tíð- arfarið á Þorranum og Góunni er ekki stóra vandamálið í dag. s.h. Alls svöruðu 565. Já sögðu 394 eða 70% Nei sögðu 171 eða 30% Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.