Bæjarins besta - 26.01.2012, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012
MENNTA- OG MENNINGARMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir til vinnustaðanáms
eða starfsþjálfunar vorið 2012
Mennta- og menningarmálaráðuneytið aug-
lýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða
stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám.
Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða
stofnanir til þess að taka nemendum sem stunda
vinnustaðanám sem hluta af námi á framhalds-
skólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu
vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá fram-
haldsskóla.
Umsækjendur skulu uppfylla almenn skilyrði
gildandi reglugerðar um námssamninga og
starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nem-
endur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa
hæfum tilsjónaraðila með náminu og leggja
fram áætlun um vinnustaðanámið og fyrirsjá-
anlega framvindu þess.
Styrkir geta numið allt að 20 þús. kr. á viku
og eru veittir til 24 vikna að lágmarki. Styrkur
er greiddur eftir því sem námi vindur fram.
Umsóknum er skila á sérstöku eyðublaði sem
er að finna á vef ráðuneytisins. Umsókn skal
fylgja yfirlit um framvindu vinnustaðanáms eða
starfsþjálfunar.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Grétar Krist-
jánsson í síma 545 9500 eða í tölvupósti á net-
fangið olafur.g.kristjansson@mrn.is.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012.
Hafrannsóknarstofnun á Ísa-
firði heldur utan um kennslu á
vegum Sjávarútvegsskóla Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna.
Þremeningarnir Móses Okwakol
Eselu frá Uganda, Jeremiah
Kionplue Nah frá Líberíu og Ros-
ário Fernandes Jorge frá Mósam-
bík stunda nú þar nám í veiði-
tækni. Blaðamaður BB spjallaði
við þá um fisk, jól og myrkur.
„Byrjið snemma“
- Eru fiskveiðar stór atvinnu-
grein í heimalöndum ykkar?
Móses: „Sjávarútvegur er nokk-
uð stór í Uganda en okkar veiðar
fara aðallega fram í Viktoríu-
vatni. Ég starfa við veiðieftirlit
en hjálpa líka fiskimönnum að
komast af stað.“
Jeremiah: „Í Líberíu verða
fiskveiðar sífellt mikilvægari og
við erum stöðugt að reyna að
efla sjávarútveg okkar enn frekar.
Ég sinni eftirliti með veiðum og
held utan um þróunarverkefni.“
Rosário: „Strandlengja Mós-
ambík er löng og því mikið um
veiðar. Við stundum líka fersk-
vatnsveiðar. Rækjuveiðar eru
mikilvægastar og stór útflutn-
ingsgrein. Mitt starf er að hafa
umsjón með þróun veiða.“
Þremenningarnir segjast ánægð-
ir með námið á Íslandi en viður-
kenna að veturinn hér gæti ekki
verið ólíkari umhverfinu sem þeir
koma úr. Jólahaldið hlýtur líka
að hafa verið frábrugðið því sem
þeir eru vanir?
Jeremiah: „Við vissum að við
yrðum að heiman um jólin og
vorum ágætlega undirbúnir fyrir
það. Enda höfðum við það mjög
gott í öllum jólaboðunum hérna.“
Rosário: „Það var líka gaman
að upplifa muninn á jólahaldinu.
Til dæmis hvað þið byrjið snemma
hérna. Það var mjög skrítið fyrir
okkur að sjá jólaskraut í nóvem-
ber.“
Móses: „Já, þið byrjið að skreyta
snemma. En þið látið jólahaldið
ekki trufla vinnuna ykkar. Fólk
heldur sínu striki. Í Uganda er
jólafrí í skólum allan desember
og allan janúar.“
Jeremiah: „Annars er þetta
ekki það ólíkt. Stærstu dagarnir
hér virðast vera 24., 25. og 26.
desember eins og heima hjá
okkur. Fólk eyðir fullt af pen-
ingum í gjafir, skreytir jólatréð,
sest niður klukkan sex til að borða
og þessir trúaðri fara í kirkju.
Þannig er það líka í Líberíu.“
Rokið og myrkrið
Nám á vegum Sjávarútvegs-
skóla Háskóla Sameinuðu þjóð-
anna fer einnig fram á Hólum,
Akureyri og í Reykjavík. Sér-
námið í veiðitækni er aðeins
kennt á Ísafirði og tekur um 5
mánuði. Hvernig hefur þremenn-
ingunum líkað dvölin hér fyrir
vestan?
Móses: „Þetta er búið að vera
frábært. En það kom okkur auð-
vitað á óvart hvað dimmir snemma
hérna og birtir seint. Heima er
maður vanur að líta til sólar til að
átta sig á því hvað klukkan er.
Hér er hún í hvarfi. Á morgnana
lítur maður út um gluggann og
það er svartamyrkur. Heima er
alltaf 25 stiga hiti og fer hækk-
andi í desember. En svo er yfir-
leitt þurrkur hjá okkur í janúar.“
Jeremiah: „Við í Líberíu erum
reyndar á sama tíma og Ísland en
veðrið gæti sennilega ekki verið
ólíkara.“
Rosário: „Ég hafði aldrei upp-
lifað snjó áður en ég kom hingað.
Mér finnst hann ágætur en á
erfiðara með að venjast rokinu.“
Móses: „Já, þetta getur orðið
svolítið rosalegt þegar það er
snjókoma og mikið rok. Þá á ég
oft erfitt með að vera á ferðinni
því ég get ekki annað en starað
niður fyrir mig. Heima væri ör-
ugglega búið að keyra mig niður
en hér eiga gangandi vegfarendur
alltaf forgang.“
Heima og heiman
Víkingaskipið Vésteinn á
Þingeyri er eina skipið hér-
lendis sem skráð var sem vík-
ingaskip í aðalskipaskrá um
áramótin. Samkvæmt því hefur
ekkert víkingaskip bæst í flota
landsmanna undanfarið ár.
Víkingaskipið Valtýr, sem sjó-
sett var hjá Skipavík í Stykk-
ishólmi er skráð sem skemmti-
skip og víkingaskipið Íslend-
ingur, sem smíðað var á árun-
um 1994-1995 og hefur verið
til sýnis í Innri Njarðvík, hefur
verið afskráð.
Víkingaskipið Vésteinn er
13 brúttótonn, 12 metra langt
og 3ja metra breitt. Skipið var
smíðað á Þingeyri og sjósett í
lok júní 2008 en það tekur 18
farþega og tvo í áhöfn. Vé-
steinn fór sína lengstu för til
þessa síðastliðið sumar þegar
hjónin Valdimar Elíasson og
Sonja Elín Thompson sigldu
skipinu, ásamt Jakobi Her-
mannssyni, frá Þingeyri til
Húsavíkur og til baka.
Eina víkingaskip landsins