Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.01.2014, Qupperneq 8

Bæjarins besta - 16.01.2014, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014 Nýtt ár – nýir siðir? Stakkur hefur ritað viku- lega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoð- anir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vak- ið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrif- um Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Stakkur skrifar Auglýsingasími Bæjarins besta og bb.is er 456 4560 Sigmundar G. Sigmundssonar frá Látrum í Ísafjarðardjúpi Hjartans þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra föðurs okkar, tengdaföðurs, afa og langafa Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Hvað færir nýtt ár okkur? Þetta er spurning sem margir vilja fá svarað. Þegar hálfur mánuður ársins 2014 er að baki er fremur lítið um svör. Hvað verður um nýgerða kjarasamninga og atkvæða- greiðslu um þá, ætli BHM, kennarar og BSRB setji nýgerða kjarasamninga í uppnám? Verða stjórnmálamenn linari fyrir það að kosið verður til sveitarstjórna í vor? Verður óbreytt ástand í Reykjavík, þar sem hringlað hefur verið með götur og bílum rutt burtu? Breytir einhverju að borgarstjóri sem nú situr, Jón Gunnar Kristinsson, hefur ákveðið að snúa sér að öðru, en borgarmálum, þótt margir telji að hann hafi aldrei komið að þeim í raun nema til að taka við laununum? Er mögulegt að svara þessum spurningum nú? Sennilega er það erfitt þótt margir telji sig þess umkomna. Lít- um aðeins við og veltum fyrir okkur hvort árið 2013 var svo slæmt. Það var Framsóknarmönnum gott, færði þeim velgengni, ríkis- stjórnarsetu og forsætisráðherra. Sjálfstæðismenn fengu nokkra upp-reisn, en fyrrverandi ríkisstjórnarflokkar, Samfylking og Vinstri grænir fengu herfilega útreið og bera sig illa. Við því var að búast. Vinstri grænir höfðu boðið fram undir loforði um að fara al- drei með Ísland í Evrópusambandið þvert á stefnu Samfylkingar- innar. Það loforð sviku Vinstri grænir fyrir sæti í ríkisstjórn sem náði ekki flugi þótt tækifærin væru mörg. Vinstri ríkisstjórnin vildi stofna til óheyrilega stórra skulda vegna Icesave og sýndi ekki viðbrögð við því að breska ríkisstjórinin setti Ísland á lista yfir hryðjuverkamenn. Sem betur fór tókst henni ekki að leiða skuldaklafa á komandi kynslóðir yfir þjóðina, þótt mjög væri reynt. Ríkisstjórn sigurvegaranna hefur ákveðið að lina skuldir þeirra sem enn hafa ekki fengið neina leiðréttingu á húsnæðisskuldum. Það hefði verið unnt að gera í tíð hinnar fyrri, en var ekki gert. Hvort þetta teljast nýir siðir, að standa við kosningaloforð skal ósagt látið, en margir telja að nú eigi að taka til baka aðildarumsókn að Evrópu- sambandinu, aðrir að ljúka eigi aðlögun svo Ísland fái aðild. Þetta kalla þeir viðræður sem leiða skuli í ljós hvort rétt séð að gerast aðili. Meira öfugmæli er ekki til. Engu að síður hamast Ríkisútvarpið við að blekkja þjóðina á kostnað skattgreiðenda. Kjósendur vissu hvað þeir kusu á fyrra ári og það var ekki aðild að Evrópusambandinu. Enda stendur eftir spurningin um það af hverju hafði fyrri ríkisstjórn ekki burði til að klára ferlið, skorti viljann og samstöðuna? Nýir siðir hljóta að vera að standa við gefin loforð. Spennandi verður að sjá hvernig til tekst á nýbyrjuðu ári. Engin áform eru um að hækka veginn um Þröskulda. Að mati starfsmanns Vegagerðarinnar á Hólmavík, liggur vegurinn of lágt á köflum. Magnús V. Jóhanns- son, svæðisstjóri vestursvæðis Vegagerðarinnar, segir að veg- urinn hafi verið hækkaður á löng- um köflum á verktímanum. „Vegurinn var hannaður í flýti en á verktímanum sáu menn að það voru staðir þar sem betra var að hækka veginn og var það gert,“ segir Magnús og bendir á að veg- urinn hafi farið langt fram úr kostnaðaráætlun vegna þessa. „Það hefur ekki verið tekið fyrir að fara í upphækkanir á þessum köflum. Það er hart í ári með peninga um þessar mundir og fjármunir sem færu í þetta yrðu teknir af öðrum verkefnum.“ Magnús segir að það hafi alltaf verið ljós að Þröskuldar væru mikið veðravíti í NA átt sem er ríkjandi átt á svæðinu. Vegstæði Þröskulda er langt frá eldri vegum og segir Magnús að þegar farið er um ónumið land sé erfitt að átta sig á aðstæðum. Gerðar voru veðurfarsrannsóknir á Þröskuld- um þó svo að þær hafi ekki verið eins og best verður á kostið að sögn Magnúsar. Hann segir að þær hefðu mátt vera ítarlegri en vegna reynslu Vegargerðar- manna á verktímanum, hafi verið farið í áðurnefndar upphækkanir. Magnús segir ennfremur að þegar vegur er kominn í lands- lagið hafi hann veðurfarsáhrif og geti breytt snjóalögum. Tekið sé tillit til þess við hönnun vega en það sé ekki endilega víst að upp- hækkun leysi vandamálin á Þröskuldum og tekur hann undir orð Jóns Harðar Elíassonar, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Hólmavík, að það sé blinda frekar en ófærð sem loki veginum í flest- um tilfellum. – smari@bb.is Upphækkun Þröskulda ekki á dagskrá Í óveðurskaflanum í byrjun ársins hefur margoft þurft að beina umferð um Strandir þar sem vegurinn um Þröskulda var ófær. Gerðist þetta á sama tíma og bílar komust yfir Steingríms- fjarðarheiði sem er hærri fjall- vegur. Jón Hörður Elíasson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Hólmavík, segir það sitt mat að vegurinn um Þröskulda liggi of lágt í landinu og þyrfti að vera meira uppbyggður. Þetta eigi sér- staklega við tvo staði, bæði Gauts- dals og Arnkötludalsmegin. Jón Hörður segir að ekki megi taka svo djúpt í árinni að segja að Steingrímsfjarðarheiðin hafi ávallt verið fær umrædda daga, mjög blint var á heiðinni og lentu minni bílar í vanda. En hann segir auðveldara að halda Steingríms- fjarðarheiði opinni en Þröskuld- um vegna legu veganna. Veglína Þröskulda er nánast öll í norð- austur/suðvestur, samsíða norð- austanáttinni sem er ríkjandi óveðursátt og því eru ökumenn með kófið í augunum alla leiðina. Á Steingrímsfjarðarheiði kemur norðaustanáttin þvert á veginn á löngum köflum og verður skyggn- ið ekki eins slæmt. Tekur Jón Hörður þar undir mat Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings en hann hefur áður bent á að stefna vegsins samsíða ríkjandi átt geri ökumönnum erfitt fyrir. Þá velti hann því fyrir sér hvort aðstæður í landslaginu þar sem Arnkötludalur og Gauts- dalur koma saman efst á heiðinni valdi svokölluðum trektaráhrif- um sem gerir það að verkum að vindurinn magnast enn frekar efst uppi með tilheyrandi kófi en tók fram að hann hafi ekki skoðað það mál náið. – smari@bb.is Þröskuldar: Vegurinn liggur of lágt Vegurinn yfir Þröskulda.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.