Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Síða 26
Síðastliðin helgi var viðburðarík í lífi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, fyrr- verandi borgarstjóra. Á laugardegin- um ákvað hann að setjast ekki í stól borgarstjóra á næsta ári. Daginn eftir gekk hann svo upp að altarinu í Grafarvogskirkju með sinni heittelskuðu, Guðrúnu Kristjáns- dóttur kennara. Prestur brúðhjón- anna var séra Vigfús Árnason, sjálf- um sér líkur, brosmildur og kankvís. Viðstödd athöfnina voru einung- is fjölskyldur brúðhjónanna, nán- ustu vinir, Raggi Bjarna og Karlakór Reykjavíkur sem Villi hefur ætíð dáð og stutt, enda lét kórinn ekki sitt eftir liggja að gera brúðhjónunum daginn ógleymanlegan. Þegar brúðhjónin gengu inn kirkjugólfið söng Karlakórinn Ísland, Ísland eg vil syngja. Raggi Bjarna söng eigið lag, Barn, við ljóð Steins Steinars, og með óskeikulli millirödd Ragga söng Villi til Guðrúnar lagið Játningu eftir Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson – eitt af uppá- haldslögum Villa sem þeir Raggi hafa svo oft sungið saman á dvalarheim- ilum aldraðra í borginni síðastliðin tvö ár. Eins og alsiða er við hjónavígslur las presturinn úr Óðinum til kærleik- ans úr fyrsta Korintubréfi Páls postula þar sem minnt er á að kærleikurinn falli aldrei úr gildi. Eftir hjónavígsl- una tóku svo kirkjugestir undir með kórnum og Ragga Bjarna – og Vor- kvöld í Reykjavík ómaði út í sólbjart- an sunnudagseftirmiðdaginn. Þetta gamla Reykjavíkurlag minnti á að Villi hafði daginn áður gefið frá sér borg- arstjóraembættið. Treginn blandaðist því á áhrifaríkan hátt inn í þessa lát- lausu athöfn sem engu að síður var full af gleði og söng. Viðburðir helgarinnar hafa því skilið eftir blendnar tilfinningar í brjósti þessa gamalreynda borgar- fulltrúa sem hefur marga fjöruna sopið í borgarpólitíkinni, allt frá 1982. Hann náði því að verða einn af vinsælustu borgarstjórum Reykjavík- ur, en hefur einnig verið gagnrýndur í fjölmiðlum, meira en nokkur annar borgarstjóri. Vilhjálmur var svo vinsamleg- ur að eyða nokkrum mínútum með blaðamanni DV áður en þau hjón- in héldu til Færeyja eftir hádegi á mánudag. Hann ræddi um þessa rússíbanahelgi, um borgarpólitíkina, aðallega þó um fjölmiðlana en einn- ig um sjálfan sig og ástina. Ákvörðun Vilhjálms Vilhjálmur! Var þetta þín ákvörð- un eða var búið að stilla þér upp við vegg? „Já! Þetta var hvort tveggja mín ákvörðun: Að verða ekki borgarstjóri á næsta ári og ganga upp að altarinu með Guðrúnu,“ segir Vilhjálmur og brosir. Ég átti nú við pólitíkina – ekki einkalífið. „Já! Það var alfarið mín ákvörðun sem ég tók með mínum nánustu.“ Ræddir þú málið við fleiri aðila? „Að sjálfsögðu hef ég rætt þessi mál í þaula við borgarfulltrúana, borgar- stjórann, formann Varðar, stuðnings- menn mína og stjórn fulltrúaráðsins.“ Hvað með þingmenn flokksins? Hefurðu á tilfinningunni að þeir hafi verið að þrýsta á þig? „Já, hvað með þá og hvaða þing- menn? Ef þú átt við gæsalappa- „fréttir“ fjölmiðla sem hafðar eru eft- ir ónafngreindum þingmönnum, þá eru þær í sjálfu sér ekkert til að byggja á og ekki svara verðar. Auðvitað hafa ýmsir sjálfstæðismenn gagnrýnt mig og viljað að ég tæki þessa ákvörðun fyrr og það má vel vera að einhverj- ir slíkir sitji á Alþingi. En er það ekki bara eðlilegt í jafnstórum flokki og eft- ir allt sem á undan er gengið?“ Björn Ingi og vinstri græn Þessi niðurstaða hlýtur samt að valda þér vonbrigðum. „Já, vissulega. En ég er ekki kalinn á hjarta. Þvert á móti er ég ástfang- inn!“ Í hverju eru vonbrigði þín helst fólgin? „Mér urðu á mistök og í kjölfar- ið misstum við meirihlutann. Þeg- ar við náðum svo aftur meirihluta með samningi við Ólaf F. Magnús- son gerði ég mér vonir um að okkur tækist að endurheimta fyrra traust með mig sem oddvita. Það hefur ekki gengið eftir og það urðu mér einnig vonbrigði, vegna þess að flokkssystk- ini mín í borgarstjórn og í ráðum og nefndum borgarinnar hafa staðið sig afar vel. Við höfum svo sannarlega látið hendur standa fram úr ermum á mörgum sviðum, hvort tveggja fyrir og eftir hundrað daga meirihlutann. Slíkt telur hins vegar ekki í skoðana- könnunum á meðan fjölmiðlar fjalla sáralítið um helstu hagsmunamál borgarbúa.“ Kennirðu fjölmiðlum um þessa ákvörðun þína? „Nei! Fyrst og fremst sjálfum mér því ég bar ábyrgðina. En það væri mikil einföldun á þessari atburðarás allri, að halda því fram að ég hafi einn gert mistök. Það voru til dæmis mis- tök af hálfu Björns Inga að hlaupast undan merkjum í stað þess að treysta okkur og taka slaginn með okkur og leysa málin. Hafi verið erfitt fyrir hann að leysa REI-málið með okkur – þá var það ógerningur fyrir hann með vinstri grænum í hundrað daga meirihlut- anum. Sá meirihluti var meðal ann- ars byggður á þessari ósættanlegu mótsögn. Það er því engin tilviljun að þau stungu stefnumótun í þessu máli undir stól og fjölmiðlar misstu um leið áhuga á málinu.“ Borgarmálin vanmetin En þú ert greinilega ekki sáttur við fjölmiðla í þessari atburðarás? „Nei! Reyndar hef ég lengi verið þeirrar skoðunar að fjölmiðlar van- meti mikilvægi borgarmálefna og því sé ekki fjallað um þau sem skyldi. Með REI-málinu urðu þáttaskil í umfjöllun fjölmiðla um borgarpólitík. Það, eitt út af fyrir sig var eðlilegt og jákvætt. En þróun þessarar umfjöll- unar er svo annað mál. Og hún hefur að ýmsu leyti verið neikvæð að mín- um dómi.“ Er það ekki vegna þess að fjölmiðl- ar hafa vegið að þér? „Nei! Auðvitað er enginn sáttur við það að vegið sé að honum í fjöl- miðlum. En þessi afstaða mín er ekki dæmigert „fjölmiðlavæl“. Ég held ég sé ekkert svekktur út í fjölmiðla. Á endanum snýst þetta ekki um per- sónur því það kemur maður í manns stað. Ástæðan er einungis sú að þessi umfjöllun hefur of oft verið óvönd- uð. Hún hefur of oft verið röng, ómál- efnaleg, perónubundin, hlutdræg og jafnvel siðlaus í einstaka tilfellum.“ Þetta eru stór orð. „Já, en ég held að ef gerð yrði ítar- leg úttekt á fréttaflutningi og annarri fjölmiðlaumfjöllun um borgarmál síðastliðna átta mánuði, yrði nið- urstaðan einmitt þessi. Umfjöllun- in ber merki þeirra umbrota sem átt hafa sér stað í borgarpólitíkinni und- anfarna mánuði. Hún tekur að mín- um dómi of mikið mið af persónum, upphrópunum og sleggjudómum, í stað þess að fjölmiðlar meti yfirvegað stöðu mikilvægra borgarmálefna og afstöðu borgarfulltrúa til þeirra.“ Hlutdrægar fréttir Þú nefndir hlutdrægni. „Ég gæti nefnt fjölda dæma um það hvernig ég og aðrir borgarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins höfum ver- ið borin röngum sökum í fjölmiðlum síðastliðna átta mánuði, á sama tíma föstudagur 13. júní 200826 Helgarblað DV Í blíðu og stríðu Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson gerir upp við fjölmiðla og fjallar um borgarpólitík, sjálf- an sig og ástina í viðtali við Kjartan Gunnar Kjartansson. „Það er ekkert athugavert við það að ritstjórar og pistlahöfundar setji fram skoðanir sínar á borg- arfulltrúum og borgarmálefnum, en fjölmiðlar eiga ekki að reka pólitískan áróður með brenglaðri fréttamennsku. Það er einfald- lega ómerkilegt.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.