Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Síða 6
Miðvikudagur 2. jÚLÍ 20086 Fréttir DV
Vélhjólaklúbburinn Fáfnir MC
er opinberlega orðinn hluti af al-
þjóðlegu glæpasamtökunum Hells
Angels. Þeir eru þó ekki fullgildir
meðlimir en mega nota nafnið Vít-
isengill. Greiningardeild ríkislög-
reglustjórans skilgreinir Fáfni sem
ógn við Ísland vegna tengslanna.
Þegar haft var samband við Jó-
hann R. Benediktsson, lögreglu-
stjóra á Suðurnesjum, sagði hann
fregnirnar óhugnanlegar. Hann
segir jafnframt regluna hjá Hells
Angels vera þá að ef menn vilja
klifra upp metorðastigann þurfi
þeir að fremja alvarlega glæpi.
Toppnum er náð með morði.
Þegar haft var samband við
forsvarsmenn Fáfnis á Íslandi var
blaðamanni bent á að hafa sam-
band við upplýsingafulltrúa þeirra
í Noregi sem er meðlimur Vítis-
englanna.
Sex ára barátta
Tilraunir Hells Angels til að
ná fótfestu hér á landi hafa ver-
ið þyrnum stráðar. Meðlimir Fáfn-
is hafa boðið þeim tvisvar í heim-
sókn, í bæði skiptin var meðlimum
Vítsenglanna vísað úr landi. Upp-
haflega var það árið 2002 en með-
al þeirra sem reyndu að koma til
lands þá voru menn sem höfðu
hlotið dóma fyrir morð, manndráp-
stilraunir, fíkniefnasmygl og hvers
konar ofbeldisbrot. Sama ár og
þeim var vísað úr landi barst starfs-
fólki íslenska sendiráðsins í Kaup-
mannahöfn líflátshótun frá sam-
tökum Vítisenglanna í Danmörku.
Sú hótun var tekin alvarlega, enda
höfðu ellefu manns fallið í gengj-
astríði á milli Vítisenglanna og
Banditos tíu árum áður.
Það var svo í fyrra sem Fáfnir
sóttist eftir bræðralagi englanna
en aftur snéri lögreglan á Suð-
urnesjum þeim heim. Þá var tilefn-
ið afmæli Fáfnis. Veislan varð því
aldrei með þeim hætti sem Fáfnis-
menn og Vítisenglar ætluðu sér.
Fjölmiðlafulltrúi
Vítisenglanna
„Ég hef ekki heimild til að tjá
mig neitt um þetta,“ sagði Sverr-
ir Þór Einarsson, einn af for-
sprökkum Fáfnis, en hann er
iðulega nefndur Sverrir tattú.
Hann vildi ekkert tjá sig við
blaðamann þegar hann var
spurður um skýrslu ríkislög-
reglustjórans og greiningar-
deildar sem var gerð opinber í
dag og flokkar Fáfni sem hættu-
leg samtök. Þegar blaðamað-
ur gekk á Sverri benti hann á
varaforseta Fáfnis sem
benti síðan áfram á
upplýsingafull-
trúa Vítis-
englanna
í Nor-
egi. Sá
mað-
ur
heitir Leif og er meðlimur Vítis-
englanna. Þrátt fyrir margítrekaðar
tilraunir náðist ekki í hann.
Þegar spurt var hvers vegna
Fáfnismenn mættu ekki tjá sig
um eigin málefni hér á landi
fengust engin svör hjá þeim
– slíkur er aginn og alvaran.
Jón í Noregi
Einn af þekktustu
glæpamönnum Fáfnis
er ofbeldismaðurinn Jón
Trausti Lúthersson. Hann
hefur tvisvar verið dæmdur
fyrir ofbeldisglæpi, núna síð-
ast í vor þar sem hann gekk í skrokk
á konu og manni á skemmtistað í
Keflavík. Hann afplánar fangelsi-
dóma fyrir tvö ofbeldisbrot þessa
dagana en áður var hann einmitt
búsettur í Noregi ásamt konu og
barni. Þar virðist hann hafa unnið
traust Vítisenglanna og nú er svo
komið að Fáfnismenn eru svokall-
aðir „supporters“ sem þýðir stuðn-
ingsaðili. Eftir að þeir hafa sýnt sig
og sannað fá þeir fulla aðild að Vít-
isenglunum.
Engin lömb
„Þetta staðfestir allt það sem
„Þetta er óhugnan-
legt, sérstaklega í ljósi
þess að þeir sem hafa
kynnt sér samtökin af
einhverri alvöru vita
að virðing í hópnum
eykst eftir því sem
glæpirnir eru alvar-
legri.“
Valur grEttiSSoN
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Þeir eru komnir!
Vélhjólaklúbburinn Fáfnir MC er orðinn opinber hluti af Hells Angels. Það sem meira er, hann er með norskan
fjölmiðlafulltrúa sem tilheyrir glæpaklíkunni alþjóðlegu. Jóhann r. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesj-
um, segir fregnirnar óhugnanlegar, sérstaklega í ljósi alvarlegra glæpa sem Vítisenglar hafa orðið uppvísir að.
Stuðningsmenn Fáfnir er orðinn
hluti af vítisenglunum en félagar
kallast stuðningsmenn vítisengla
núna. Þeir þurfa að vinna traust
vítisenglanna, helst með glæpum.
Jóhann r. Benediktsson Lögreglu-
stjórinn á Suðurnesjum hefur þrisvar
snúið vítisenglunum við í Leifsstöð.
Tilkynnt hefur verið um samein-
ingu Kaupþings og Spron. Samn-
ingaviðræður milli bankanna hófust í
apríl og hafa þær dregist nokkuð, því
tilkynningar um samrunann hefur
verið beðið síðan í maí. Mánuði eftir
að þær hófust tilkynnti Kaupþing um
að ákveðið hefði verið að framlengja
samningaviðræðurnar. Kaupþing
mun yfirtaka eignir og skuldir Spron
við samruna félaganna.
Sameining Kaupþings og Spron
er háð samþykki hluthafafundar
Spron, bankastjórnar Kaupþings,
Fjáramálaeftirlitsins og fleiri aðila
sem koma að félögunum. Við lok
viðskipta í Kauphöllinni á mánudag
var gengi bréfa í Spron 3,8 og kaupir
Kaupþing bréfin með fimmtán pró-
senta álagi. Markaðsvirði Spron er
um 19 milljarðar króna og fá hlut-
hafar í félaginu greitt með bréfum í
Kaupþingi og Exista.
Að mati stjórnar Kaupþings hefur
samruninn jákvæð áhrif á starfsemi
félaganna á Íslandi og sé til þess fall-
inn að bæta þjónustu og auka arð-
semi í rekstri og virði fyrir hluthafa,
samkvæmt tilkynningu Kaupþings til
Kauphallarinnar.
valgeir@dv.is
Kaupþing og Spron tilkynna loks um samruna fyrirtækjanna:
Borga með bréfum í Kaupþingi
Kaupþing
Yfirtekur allar
skuldir Spron.
GOLF & GAMAN
Golfvísur og gamanmál frá
Kristjáni Hreinssyni, eins
og honum einum er lagið.
„Frumleg, fyndin og
frábær skemmtun”
- Guðmundur Arnarsson,
ritstjóri Golfblaðsins
„Það mun sitthvað þessu líkt
um þjóðlíf hafa flogið
Hér er sjálfsagt eitthvað ýkt
en engu mun þó logið“
- Kristján Hreinsson
„Fyndin og frábær
lýsing á gleðinni sem
golfið geymir.”
- Jón Ásgeir Eyjólfsson,
forseti Golfsambands Íslands