Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Blaðsíða 18
miðvikudagur 2. júlí 200818 sumartíska DV
Vertu flott
fyrir litla peninga
Ert þú á leiðinni í brúðkaup, kokkteil eða annan gleðskap þetta sumarið og vantar þig föt fyrir tilefnið? dv skrapp á útsölur
og fann nokkra fallega kjóla á góðu verði sem gætu hentað í hinar ýmsu veislur. kjólarnir voru valdir með það í huga að
þeir myndu endast lengur en út sumarið. marga þeirra er hægt að klæða niður með grófum sokkabuxum, jakka og stíg-
vélum þegar vetra tekur en núna yfir sumartímann þýðir lítið annað en að skarta fótleggjum og berum handleggjum.
Coast
Kvenlegur og klassískur
Þessi kvenlegi og klassíski kjóll er úr versluninni
Coast. kjóllinn gæti einnig komið sér vel á haust-
dögum við þykkar sokkabuxur, stígvél með
háum hælum og grófa peysu.
Fullt verð 15.900 krónur
Útsöluverð 7.950 krónur
Zara
Kvenleg með belti í mittinu
Ef þú vilt vera kvenleg er þessi glæsilegi kjóll
sem er tekinn saman í mittið með þykku belti og
útvíðu síðu pilsi án efa málið.
Fullt verð 9.995 krónur
Útsöluverð 5.995 krónur
top shop
Doppótt og dúlló
sætur og skemmtilegur kjóll með
doppum og einum hlýra.
Fullt verð 7.490 krónur
Útsöluverð 3.750 krónur
Zara
Skvísukjóll
Þessi skvísukjóll er flottur við sokkabux-
ur og hæla. Þegar þú ert búin að
skvísast og djamma svolítið í honum er
hann tilvalinn í vinnuna við síða peysu
og lágbotna stígvél.
Fullt verð 5.495 krónur
Útsöluverð 3.595 krónur
oasis
Flottur í brúðkaup
Það myndi hvaða kona sem er sóma sér vel í
þessum rómantíska hlýralausa kjól með
blómahafi á pilsinu. hann hentar einskaklega vel
í brúðkaupsveisluna.
Fullt verð 14.900 krónur
Útsöluverð 8.940 krónur
oasis
Fullkominn kokkteilkjóll
Þessi geggjaði kokkteilkjóll minnir hvað
helst á vinkonur okkar í sex and the
City. Án efa hinn fullkomni kokkteilkjóll.
Fullt verð 16.990 krónur
Útsöluverð 10.194 krónur
Zara
Dömulegur og smart
Flottur hlýralaus kjóll með skemmti-
legu undirpilsi. dömulegur og smart.
Fullt verð 6.995 krónur
Útsöluverð 5.995 krónur
Zara
Nauðsynlegur í fataskápinn
vintage-kjóll sem gott er að eiga í
fataskápnum. hægt er að nota kjólinn
við hin ýmsu tækifæri.
Fullt verð 6.495 krónur
Útsöluverð 5.995 krónur
UmSjóN - kolbrún pálína helgadóttir FyrirSæta - rakel Ósk Þorsteinsdóttir myNDir karl peterson