Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Qupperneq 18
miðvikudagur 2. júlí 200818 sumartíska DV Vertu flott fyrir litla peninga Ert þú á leiðinni í brúðkaup, kokkteil eða annan gleðskap þetta sumarið og vantar þig föt fyrir tilefnið? dv skrapp á útsölur og fann nokkra fallega kjóla á góðu verði sem gætu hentað í hinar ýmsu veislur. kjólarnir voru valdir með það í huga að þeir myndu endast lengur en út sumarið. marga þeirra er hægt að klæða niður með grófum sokkabuxum, jakka og stíg- vélum þegar vetra tekur en núna yfir sumartímann þýðir lítið annað en að skarta fótleggjum og berum handleggjum. Coast Kvenlegur og klassískur Þessi kvenlegi og klassíski kjóll er úr versluninni Coast. kjóllinn gæti einnig komið sér vel á haust- dögum við þykkar sokkabuxur, stígvél með háum hælum og grófa peysu. Fullt verð 15.900 krónur Útsöluverð 7.950 krónur Zara Kvenleg með belti í mittinu Ef þú vilt vera kvenleg er þessi glæsilegi kjóll sem er tekinn saman í mittið með þykku belti og útvíðu síðu pilsi án efa málið. Fullt verð 9.995 krónur Útsöluverð 5.995 krónur top shop Doppótt og dúlló sætur og skemmtilegur kjóll með doppum og einum hlýra. Fullt verð 7.490 krónur Útsöluverð 3.750 krónur Zara Skvísukjóll Þessi skvísukjóll er flottur við sokkabux- ur og hæla. Þegar þú ert búin að skvísast og djamma svolítið í honum er hann tilvalinn í vinnuna við síða peysu og lágbotna stígvél. Fullt verð 5.495 krónur Útsöluverð 3.595 krónur oasis Flottur í brúðkaup Það myndi hvaða kona sem er sóma sér vel í þessum rómantíska hlýralausa kjól með blómahafi á pilsinu. hann hentar einskaklega vel í brúðkaupsveisluna. Fullt verð 14.900 krónur Útsöluverð 8.940 krónur oasis Fullkominn kokkteilkjóll Þessi geggjaði kokkteilkjóll minnir hvað helst á vinkonur okkar í sex and the City. Án efa hinn fullkomni kokkteilkjóll. Fullt verð 16.990 krónur Útsöluverð 10.194 krónur Zara Dömulegur og smart Flottur hlýralaus kjóll með skemmti- legu undirpilsi. dömulegur og smart. Fullt verð 6.995 krónur Útsöluverð 5.995 krónur Zara Nauðsynlegur í fataskápinn vintage-kjóll sem gott er að eiga í fataskápnum. hægt er að nota kjólinn við hin ýmsu tækifæri. Fullt verð 6.495 krónur Útsöluverð 5.995 krónur UmSjóN - kolbrún pálína helgadóttir FyrirSæta - rakel Ósk Þorsteinsdóttir myNDir karl peterson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.