Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Blaðsíða 23
DV Ættfræði Miðvikudagur 2. jÚLÍ 2008 23 40 ára í dagTil hamingju með afmælið 30 ára afmæli n Wioletta Maria rymon Lipinska Strandgötu 69c, Eskifjörður n Carmen isabell Schmidt Hagamel 38, Reykjavík n david romulo roque Cavalinhos Laugarási, Egilsstaðir n Bernt Erik andreassen Rofabæ 47, Reykjavík n Heiða kristín kolbeinsdóttir Furulundi 1a, Akureyri n Hafrún Sigurðardóttir Kvistavöllum 33, Hafnarfjörður n Ágúst Örn grétarsson Kvíholti 1, Hafnarfjörður n Þuríður Hallgrímsdóttir Úthlíð 5, Reykjavík n kristín guðmundsdóttir Ljósuvík 21, Reykjavík n anna kristín Ólafsdóttir Lyngholti 2, Álftanes n guðríður Svana Bjarnadóttir Drápuhlíð 19, Reykjavík 40 ára afmæli n Nelsa C adarna Dvergabakka 6, Reykjavík n rajna Pavlica Móasíðu 9a, Akureyri n ingólfur gísli garðarsson Bakkaseli 5, Reykjavík n guðrún Eyhildur Árnadóttir Eyhildarholti, Sauðárkrók- ur n Benóný valur jakobsson Miklubraut 52, Reykjavík n Stefán ingvar guðmundsson Hábrekku 15, Ólafsvík n Pálmi Ólafur Árnason Dalbraut 13, Hnífsdalur n jóhanna Líndal jónsdóttir Lækjasmára 15, Kópavogur n guðríður Sæmundsdóttir Markholti 10, Mosfellsbær n Margrét jóna guðbergsdóttir Seilugranda 5, Reykjavík n Hulda Björg Einarsdóttir Dalaþing 2, Kópavogur n guðjón arnar Þórsteinsson Bárðartjörn, Akureyri n unnur Erla Haraldsdóttir Unufelli 25, Reykjavík 50 ára afmæli n Elínborg Chris argabrite Laufengi 142, Reykjavík n Hulda Hafsteinsdóttir Lambastaðabraut 5, Seltjarnarnes n ragnheiður Stefánsdóttir Karfavogi 54, Reykjavík n Hafdís Magnúsdóttir Brekkuhvarfi 1, Kópavogur n Bárður a Sveinbjörnsson Vesturvangi 34, Hafnarfjörður n Bryndís arngrímsdóttir Bjarkarlundi 1, Akureyri n guðmundur Heiðar jensson Raftahlíð 43, Sauðárkrók- ur n kristín María Ómarsdóttir Hlíðarhjalla 40, Kópavogur n Einar Harðarson Smiðjustíg 9, Flúðir n Óskar Helgi Helgason Borgarheiði 1h, Hveragerði n Soffía Friðriksdóttir Höfn 2, Akureyri n ingvar Hafsteinsson Tjaldhólum 30, Selfoss n jón Skúli Sigurgeirsson Melum, Akureyri n Hjálmar Þór kristjánsson Háarifi 85 Rifi, Hellissandur n Margrét a Frímannsdóttir Skarðsbraut 3, Akranes n júlíana S Hilmisdóttir Móvaði 49, Reykjavík 60 ára afmæli n auðbjörg Halld Hrafnkelsdóttir Vífilsstöðum, Egilsstaðir n Þórhallur Björnsson Engihjalla 25, Kópavogur n jóhanna jónsdóttir Vesturtúni 48, Álftanes n Magnús jónsson Logafold 81, Reykjavík n Íris ragnarsdóttir Torfufelli 23, Reykjavík n Hallgrímur Óskar guðmundsson Fornahvarfi 2, Kópavogur n kolbeinn Erlendsson Bólstaðarhlíð 2, Blönduós 70 ára afmæli n guðmundur S guðmundsson Skúlagötu 44, Reykjavík n Sólveig Óskarsdóttir Kjarrmóa 9, Njarðvík n Hulda jensdóttir Klapparhlíð 18, Mosfellsbær n María Hallgrímsdóttir Seljalandsvegi 87, Ísafjörður n guðjón L viggósson Hlíðasmára 5, Kópavogur n Ásgeir Ólafsson Kirkjubraut 6, Njarðvík n rudolf jens Ólafsson Grænumörk 1, Selfoss n Málhildur angantýsdóttir Kristnibraut 33, Reykjavík 75 ára afmæli n guðný Halldórsdóttir Kirkjuvegi 17, Ólafsfjörður n Pétur Sölvi Þorleifsson Gullengi 17, Reykjavík n ingibjörg Ólafsdóttir Hátúni, Dalvík n Sigríður Sigurðardóttir Tunguseli 10, Reykjavík n Esther Árnadóttir Strikinu 8, Garðabær 80 ára afmæli n Margrét H Sigurðardóttir Hörgshlíð 8, Reykjavík 85 ára afmæli n Svanfríður Símonardóttir Blesugróf 2, Reykjavík 90 ára ára afmæli n Margrét Pétursdóttir Hraunvangi 7, Hafnarfjörður n Margrét Ólafsdóttir Hjartar Bakkastöðum 159, Reykjavík n guðfinna Ólafsdóttir Arahólum 6, Reykjavík Níels HafsteiNssoN vEitiNgaMaður og FraMkvæMdaStjÓri Pétur sjómaður F. 2. jÚLÍ 1928, d. 15. dESEMBEr 1996 Kristín Guðmundsdóttir er þrítug í dag: Lætur dekra við sig „Ég er búin að hugsa svolítið um hvað það verður skrítið að vera ekki lengur tuttugu og eitthvað,“ segir Kristín Guðmundsdóttir sem er fædd og uppalin á Ísafirði en hefur búið í Reykjavík síðustu tíu árin. „Venjulega geri ég ekki mikið úr afmælinu mínu en núna ákvað ég að eyða deginum í dekur. Ég vinn á snyrti- stofunni Guinot á Grensásvegi og fer þang- að í andlitsmeðferð og litun um morguninn,“ segir Kristín. Seinna um daginn býður mað- urinn hennar Kristínar henni í nudd og ætlar að hitta hana í pottinum á eftir. Að því loknu ætlar Kristín í klippingu og litun: „Ég hlýt að vera fyrirmynd allra kvenna, þetta verður því- líkur dekurdagur,“ segir hún. Kvöldinu ætlar Kristín svo að verja með strákunum sínum tveimur og eiginmanni en þau eiga eins árs brúðkaupsafmæli 7. júlí. Í ágúst er svo komið að afmælisveislunni sjálfri: „Við erum að byggja pall og þegar hann verður tilbúinn ætlum við að verðlauna okkur með heitum potti og halda afmælis- veislu.“ Aðspurð hver draumaafmælisgjöfin sé segir Kristín: „Efst á óskalistanum er versl- unarferð til Köben og svo auðvitað að halda góðri heilsu.“ Níels fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og á Seltjarnarnesi. Hann var í Mýrarhúsa- skóla og Valhúsaskóla, lauk verslunarprófi frá VÍ 1986, stundaði nám við Hótel- og veit- ingaskólann og lauk þaðan prófum 1989. Níels hóf störf sem þjónn á Hótel Sögu 1986 og starfaði þar að meira og minna leyti, fyrst sem þjónn, þá veitingamaður og loks veitingastjóri til 2006. Hann starfrækti Rauða sófann með föður sínum 1989, starf- rækti Naustið 1992-95, var veitingamaður og veitingastjóri á Hótel Sögu 1995-2006, en varð þá framkvæmdastjóri Cafe Oliver, 22, Q-Bar, Hereford Steikhús og Yfirsala. Níels var formaður Barþjónaklúbbs Ís- lands 1996-2002 og hefur starfað mikið í KR. Hann varð Norðurlandameistari í fram- reiðslu 1990, Íslandsmeistari barþjóna 2002 og 2003 og hefur sigrað í fjölda barþjóna- keppna. FjölsKylda Kona Níelsar er Lára Gyða Bergsdóttir, f. 5.7. 1968, flugfreyja. Hún er dóttir Bergs Óskarssonar sem er látinn og Bjargar Hjálm- arsdóttur. Börn Níelsar og Láru Gyðu eru Hafsteinn Níelsson, f. 30.11. 1998; Kamilla Ása Níels- dóttir, f. 6.8. 2007. Bræður Níelsar eru Trausti Hafsteinsson, f. 5.11. 1973, kennari og fararstjóri; Hilmar Örn Hafsteinsson, f. 12.12. 1992, nemi. Foreldrar Níelsar eru Hafsteinn Egils- son, f. 6.12. 1950, veitingamaður í Reykjavík, og Ása Helga Ragnarsdóttir, f. 25.10. 1949, kennari og leikari í Reykjavík. Ætt Hafsteinn er bróðir Sigurjóns M. Egilsson- ar ritstjóra og Gunnars Smára framkvæmda- stjóra. Hafsteinn er sonur Egils Hansen bif- vélavirkja, sonar Hinriks Hansens, sjómanns í Hafnarfirði Andréssonar Hansens, b. á Brunnastöðum Péturssonar Hansens, beyk- is í Reykjavík Hinrikssonar Hansens, kaup- manns á Bátsöndum, langafa Soffíu, móð- ur Árna Thorsteinssonar tónskálds. Móðir Hinriks í Hafnarfirði var Þórunn Hallgríms- dóttir, pr. í Görðum Jónssonar, vígslubiskups á Staðastað, bróður Skúla landfógeta. Móð- ir Egils var Gíslína, systir Ólafíu, móður Eg- ils Ólafssonar, safnvarðar á Hnjóti. Gíslína var dóttir Egils, b. á Sjöundá Árnasonar, b. á Lambavatni Jónssonar. Móðir Árna var Guð- rún Jónsdótir, b. á Sjöundá Þorgrímsson- ar. Móðir Gíslínu var Jónína Gísladóttir, b. í Hærri-Rauðsdal Þorgeirssonar og Guðrúnar Ólafsdóttur. Móðir Hafsteins er Guðrún Rannveig, dóttir Karls, starfsmanns við Reykjavíkur- höfn Karlssonar. Móðir Guðrúnar var Guð- rún Ólafsdóttir, ökumanns í Reykjavík Þor- varðarsonar, b. á Geldingaá í Melasveit Þorsteinssonar. Móðir Guðrúnar var Hall- fríður, systir Jóns, langafa Karls Steinars Guðnasonar, fyrrv. alþm.og fyrrv. forstjóra Tryggingastofnunar. Hallfríður var dótt- ir Jóns, b. í Eyhól í Kjós Jónssonar og Guð- rúnar Halldórsdóttur, systur Þórhalls, lang- afa Gríms, föður Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. Móðir Guðrúnar var Guðríður Guð- mundsdóttir, systir Lofts, langafa Bjarna Jónssonar vígslubiskups. Bróðir Guðríðar var Þorsteinn, langafi Solveigar, móður Ein- ars Olgeirssonar alþm. Ása Helga er systir Sigurðar sálfræð- ings. Ása Helga er dóttir Ragnars, lækn- is í Reykjavík Sigurðssonar, pr. á Ljósavatni Guðmundssonar. Móðir Ragnars var Dorot- hea Proppé, systir Ólafs, forstjóra og alþm., föður Óttars forstjóra, föður Ólafs Proppé, rektors KHÍ. Annar bróðir Dorotheu var Jón Proppé, afi Vésteins Lúðvíkssonar rithöf- undar. Dorothea var dóttir Claus Eggerts Dietrich Proppé, bakarameistara í Hafnar- firði, sonar Carls Heinrich Proppé, gestgjafa í Neumunster í Holstein, og Helgu, systur Gests, langafa Péturs heitins Björnssonar, stjórnarformanns Vífilfells. Helga var dóttir Jóns, b. á Grjóteyri í Kjós Jónssonar yngra, b. á Skrauthólum Ögmundssonar, bróður Jóns eldra, langafa Einars Benediktssonar skálds. Móðir Ásu Helgu var Kristrún Níelsdóttir, útgerðarm. á Akranesi Kristmannssonar, og Margrétar Jónsdóttur. Kristín og maðurinn hennar Eiga eins árs brúðkaupsafmæli 7. júlí. „Pétur sjómaður“, eins og Pétur Sig- urðsson alþingismaður var yfirleitt kall- aður, fæddist í Keflavík. Hann lauk gagn- fræðaprófi í Reykjavík og fiskimanna- og farmannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík, var sjómaður á fiskibátum frá unga aldri, á togurum 1944-50 og á togur- um og verslunarskipum 1950-62, var þing- maður Reykvíkinga fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1959-78 og 1979-87. Pétur var auk þess forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði, ritari Sjómannafé- lags Reykjavíkur og Sjómannasambands Ís- lands og formaður Sjómannadagsráðs um langt árabil frá 1961. Hann sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins og í stjórn og vann öt- ullega að stofnun og framgangi SÁÁ. Bróðir Péturs var Guðjón Sverrir, nú nýlát- inn, formaður Iðju, félags verksmiðjufólks. Pétur var af gamalgrónum Reykjavíkurætt- um, m.a. af Engeyjarætt í föður- og móðurætt. Ingibjörg, amma hans í föðurætt, var systir Þórðar, afa Erlends Ó. Péturssonar, formanns KR, langafa Jóns Guðmundssonar á Reykj- um og langalangafa Láru Ragnarsdóttur, fyrrv. alþm. Ingibjörg var dóttir Jóns Péturssonar, skipasmiðs í Engey, bróður Guðrúnar, lang- ömmu Bjarna Benediktssonar forsætisráð- herra, föður Björns dómsmálaráðherra. Birna, móðir Péturs, var dóttir Hafliða, sjó- manns í Reykjavík, bróður Bjarna vígslubisk- ups, afa Guðrúnar Ágústsdóttur, fyrrv. forseta borgarstjórnar. Móðir Hafliða var Ólöf af Eng- eyjarætt, systir Guðnýjar, ömmu Jóhannesar Zoëga hitaveitustjóra. merkir íslendingar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.