Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Blaðsíða 30
Miðvikudagur 2. jÚLÍ 200830 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Mugison heldur tónleika á
agnarsmáa kaffihúsinu Patr-
onaat í Haarlem í Hollandi
18. júlí
næstkom-
andi. Villi
Ásgeirsson,
sem á nokk-
ur tónlistar-
myndbönd
að baki,
verður á
staðnum og
tekur tónleikana upp á tvær
myndavélar. Hann segir frá
því á heimasíðu sinni að ætl-
unin sé að hafa myndbandið
einfalt og stílhreint, enda
staðurinn og umfangið lítið.
Afraksturinn verður svo settur
á YouTube þar sem Íslend-
ingum og öðrum aðdáendum
Mugisons gefst tækifæri til að
berja Vestfirðinginn augum.
Frekari upplýsingar eru á
patronaat.nl fyrir þá sem tala
hollensku.
n Facebook heldur áfram að
vaxa og dafna og nú er söng-
konan Emilíana Torrini
komin með
síðu. Á síð-
unni henn-
ar kemur
fram að
aðdáend-
ur hennar
á Facebook
séu rúm-
lega átján
þúsund. Mikil eftirvænting rík-
ir meðal aðdáenda hennar um
hvenær von sé á nýju plötunni
hennar. Á aðdáendasíðunni
emiliana.nu er því haldið fram
að nýi diskurinn komi út í ág-
úst eða september og sé tals-
vert ólíkur Fisherman’s Wom-
an. Bæði lögin sjálf og hljómur
plötunnar.
n Kvikmyndin Skrapp út, sem
Sólveig Anspach leikstýrir,
verður frumsýnd 8. ágúst
næstkomandi. Frá þessu er
greint á heimasíðu Zik Zak
kvikmynda sem framleiðir
myndina. Myndin segir frá
ljóðskáldinu, uppvaskaran-
um og maríjúanadílernum
Önnu Hall-
grímsdótt-
ur sem býr
í Reykjavík
með tveim-
ur son-
um sínum.
Anna er
orðin þreytt
á lífinu og
kuldanum á Íslandi og langar
að sýna sonum sínum heim-
inn. Dag einn tekur hún til
sinna ráða. Í aðalhlutverkum
eru skáldkonan Didda, Joy
Doyle og Ingvar E. Sigurðs-
son.
Hver er maðurinn?
„Sigurbjörn Bárðarson, tamninga-
meistari, reiðkennari og hestaút-
flytjandi.“
Hvað drífur þig áfram?
„Mikill áhugi og metnaður. Eilíf
löngun í samveru við hestinn.“
Hver er þinn helsti hæfileiki?
„Ég er vinnusamur og metnaðarfull-
ur. Set mér markmið og vinn hart að
því að ná þeim. “
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú varst lítill?
„Ég horfði í að verða slökkviliðs-
maður og vörubílstjóri.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Ég spila ekki á hljóðfæri en hef
mjög gaman af því að syngja, það er
partur af hestamennskunni.“
Hvaða bók last þú síðast?
„Thorsarana. Ævisögu Thors Jensen,
stofnanda Kveldúlfs í Reykjavík.“
Ert þú pólitískur?
„Ekkert sérstaklega held ég.“
Hvað ætlar þú að gera í sumar-
fríinu?
„Það verður nú ekkert sumarfrí hjá
mér. Sumarið er vertíðartími hesta-
manna.“
Keppir þú mikið á Landsmót-
inu?
„Já, sjálfur keppi ég á tíu hrossum en
krakkarnir mínir keppa líka. Það er
öll fjölskyldan í þessu.“
Hvað er það skemmtilegasta við
Landsmót hestamanna?
„Fyrir mig sem keppanda er gaman
að ná góðum árangri. Auk þess fæ ég
mikið út úr því að fylgjast með gæð-
ingum og kynbótahrossum. Lands-
mótið er veisla fyrir mann eins og
mig.“
Hvaða eiginleikum reynir þú að
ná fram við ræktun á þínum
hrossum?
„Geðslagið er ofarlega, gangrými
og fegurð, að hann hafi þessa góðu
kosti.“
Hvar á landinu eru flottustu
hrossin?
„Ræktunin hefur færst í ríkum mæli
á Suðurland. En auðvitað eru glæsi-
hross úti um allt land.“
Er hestamennska hættulegt
áhugamál?
„Hún er eins og hver önnur atvinnu-
grein og áhugamál. Það leynast alls
staðar hættur, en hestamennska er
ekki hættulegri en annað sport.“
Er hestamennskan í sókn eða
vörn?
„Hún er í mikilli sókn. Það er sífellt
aukinn áhugi á íslenska hestinum
bæði hérlendis og erlendis. Hann
hefur mikil hugaráhrif á fólk, fjöl-
hæfni hans er mikil.“
Átt þú þér uppáhaldsstað á
Íslandi?
„Það mundi vera sveitasetur fjöl-
skyldunnar, Oddhóll á Rangárvöll-
um.“
Hvað er fram undan hjá þér?
„Fram undan er að klára Landsmót-
ið sem er út þessa viku. Síðan er það
bara að halda áfram að takast á við
lífið í fjölskyldufaðmi.“
Hver er draumurinn?
„Að fjölskyldunni vegni vel og að
öllum heilsist sem best.“
MAÐUR
DAGSINS
Landsmótið er
veisLa fyrir mig
Sigurbjörn Bárðarson
er einn ástsælasti hestamaður
Íslands. um þessar mundir fer
Landsmót hestamanna fram á
gaddstaðaflötum á Hellu. Sigurbjörn
er spenntur og keppir sjálfur á tíu
hestum á mótinu.
BókStAfleGA
„Það er vitað mál að
Frakkar eru
ógeðsleg-
ir. Þetta er
land trefl-
anna [...]
Þeir sitja á
kaffihúsum allan
daginn og éta snigla.“
n Egill Einarsson, betur þekktur sem
gillzenegger. Frá tískuvikunni í París
berast þær fréttir að hnakkatískan
sé að líða undir lok. – dv
„Svo hjálpar til að vera
með innfæddum. Þeir
geta sagt við mannætu
sem ætlar að
éta mig:
„Nei, ekki
éta“.“
n Sigurður
Eggertsson
handboltamaður
sem er á leið til keníu
á mánudaginn. Hann býst fastlega
við að rekast á mannætur þar. -
Fréttablaðið
„Fólk sem gerir sér daga-
mun í sumarfríinu með
því að fá sér í
glas áttar
sig kannski
ekki á því
hversu næm
börnin eru á
þetta.“
n valgerður rúnarsdóttir, læknir á
vogi. Sala á hvítvíni var rúmlega
50% meiri í júlí og ágúst í fyrra
heldur en í september og október. -
24 stundir
„Lögguna
vantar
nefnilega
ekki sérsveit.
Hún þarf menn
eins og Pólverjann. Eða
eins og Sæma rokk, sem
róaði brjálæðinga niður
með ljúfum hætti.“
n jónas kristjánsson um atvikið
þegar pólskur maður róaði
drykkjurút í grímsey um síðustu
helgi. - jonas.is
„Það var gott
að fá disk-
inn í hend-
urnar því
fæðingin er
búin að vera
löng og erfið, enda þurf-
um við að standa undir
miklum væntingum.“
n Einar Bárðarson um nýja diskinn
hans garðars Cortes sem kom út á
mánudaginn. - 24 stundir
„Nú er há-
skólanámið
málið.“
n Þór Sigurðsson
afplánar
fangelsisdóm fyrir
manndráp. Hann
stefndi á að læra lögfræði við
Háskólann í reykjavík í haust en
skólinn samþykkti það ekki. Hann
mun því stunda fjarnám við Bifröst. -
dv
„Stemning-
in er alveg
rosalega
góð. Það
eru all-
ir mjög
spenntir og
við ætlum að gera okkur
besta.“
n Benedikt Freyr jónsson í Blood-
group. Hljómsveitin spilar á
Hróarskeldu á morgun. - 24 stundir
Jurtir sem eru notaðar í náttúrulyfjum verða til sýnis í Grasagarðinum:
Náttúrulækningajurtir
„Það sem ég ætla að gera er að
kynna þær plöntur sem við ræktum
hér eða þær sem notaðar eru meðal
annars í lyf,“ segir Jóhanna Þormar,
garðyrkjufræðingur og hómópati.
Næstkomandi sunnudag mun Jó-
hanna halda sýningu í Grasagarð-
inum á þeim jurtum sem þau rækta
og ætlar hún að fjalla um þær og
notkun þeirra. „Þetta eru um þrjá-
tíu tegundir sem ég ætla að kynna.
Þær plöntur sem tilheyra lækninga-
jurtum eru afmarkaðar frá hinum
hér í garðinum,“ segir Jóhanna. „Við
erum með um fjögur þúsund sýn-
ishorn af jurtum og plöntum hér
í garðinum. Við reynum að dekka
það mesta af öllum mögulegum
plöntum.
Minnsti parturinn hjá okkur er
þær jurtir sem eru notaðar í lyfja-
iðnaðinum en þær jurtir sem ég
ætla að sýna eru algengar í náttúru-
lyfjum nú til dags,“ segir Jóhanna.
Jurtir hafa verið notaðar til að bæta
heilsu og lækna mein manna frá
örófi alda og enn í dag eru jurtir
notaðar í lyfjaiðnaði. Margir í heim-
inum í dag þurfa að reiða sig á nátt-
úrulyf. Grasagarðar voru oft tengd-
ir læknaskólum og spítölum áður
fyrr og flestir grasagarðar tileinka
lækningajurtum ákveðin svæði, líkt
og Grasagarðurinn í Laugardalnum
hefur gert.
Sýningin hefst klukkan ellefu og
er mæting við Laugatungu. Fræðsl-
an er opin fyrir alla og er öllum vel-
komið að koma og hlusta á Jóhönnu
fræða fólk um jurtirnar og sjá er-
lendar jurtir sem notaðar eru í lyf.
berglindb@dv.is
gRASAgARÐUR jóHanna ÞorMar ætLar
að kynna Fyrir FóLki Þær Lækningajurtir
SEM ræktaðar Eru Í graSagarðinuM.