Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Blaðsíða 20
miðvikudagur 2. júlí 200820 sumartíska DV
Reyni að samtvinna
þægindi og lúkkið
xxxxxxxx
xxxxxxxxx
Í hverju finnst þér þægilegast að ferðast?
„Mér finnst þægilegast að leggja í hann í
léttum buxum, strigaskóm og peysu.“
Velur þú þægindi fram yfir lúkkið?
„Ég reyni að samtvinna þetta hvort tveggja
með fötum frá 66°Norður og Cintamani en
ef ég þyrfti að velja væri það hiklaust þæg-
indi. Að vera „posh“ í útilegu er ekki alveg að
gera sig.“
Hvað er ómissandi í ferðalagið?
„Góðir vinir og tónlist þótt maður neyðist
stundum til að framkalla hana sjálfur.“
Tjald eða tjaldvagn?
„Ég var alltaf í tjaldi enda mesta útilegu-
stemningin í því en ég bý svo vel að hafa
aðgang að hjólhýsi núna og það skaðar
ekki.“
Besti ferðamaturinn?
„Ég kaupi undantekningarlaust lambakótel-
ettur, kartöflusalat og hvítlaukssósu á grillið í
kvöldmat. Það klikkar ekki.“
Hvað er það besta við að ferðast innan-
lands?
„Náttúran, ekki spurning. Ég veit fátt betra
en að fara í göngu um fallega staði. Eitt það
skemmtilegasta sem ég hef gert er ganga
sem ég fór í að Systrastapa á Kirkjubæjar-
klaustri í hellidembu. Annars mun ég ferð-
ast um Danmörku og Kóreu í sumar og það
verður án efa skemmtilegt að skoða um-
hverfið og staðina þar.“
Thelma Hafþórsdóttir, söngkona
og starfsmaður í versluninni gull í grjóti
Það besta sem fjöl-
skyldan gerir saman
Í hverju finnst þér þægilegast að ferð-
ast?
„Fer alltaf í kvartbuxurnar mínar, sama
hvernig viðrar, smelli mér svo í 66°Norður
undirflíspeysuna, set á mig „army“-grænu
derhúfuna mína og þá er ég klár.“
Velurðu þægindi fram yfir lúkkið?
„Neeeh, þetta þarf að haldast í hendur.“
Hvað er ómissandi í ferðalagið?
„Konan og einn ískaldur á áfangastað.“
Tjald eða tjaldvagn?
„Tjaldvagn á hálendinu en annars fellihýsið
þegar maður fer í þessa dæmigerðu gras-
lautartúra, sem maður fer oftast í.“
Besti ferðamaturinn?
„Forsteikt nautahakk sem er hitað við komu
á áfangastað, soðin hrísgrjón með og því
skolað niður með góðum svaladrykk. Það
er bara eitthvað við þetta, skil ekki hvað, en
það er eitthvað.“
Hvað er það besta við að ferðast innan-
lands?
„Landið, það er svo mikið af ótrúlegum
stöðum að skoða og mikið af skemmtilegu
fólki sem maður hittir. Svo er þetta bara það
besta sem við fjölskyldan gerum saman.
Það bíða alltaf allir spenntir eftir sumrinu.“
Sigvaldi Kaldalóns, útvarpsmaður á Fm
Kassagítarinn
ómissandi
Í hverju finnst þér þægilegast að ferð-
ast?
„Mér finnst þægilegast að ferðast í svona
afapeysu og góðum bol úr búðinni minni,
Guess-gallabuxunum mínum og gúmmí-
túttunum sem ég fékk í Hagkaup.“
Velur þú þægindi fram yfir lúkkið?
„Já, ég verð eiginlega að segja það, er ekki
öllum sama hvernig þeir líta út í útilegum?“
Hvað er ómissandi í ferðalagið?
„Góða skapið, skemmtilegur félagsskapur
og kassagítarinn.“
Tjald eða tjaldvagn?
„Verð að viðurkenna að ég hef bara aldrei
prófað að sofa í tjaldvagni, en vinur minn
var að fá sér einn og ég og kærastan mín
ætlum að sjálfsögðu að reyna að slást í för
með honum í sumar. Þannig að ég verð að
segja tjald.“
Besti ferðamaturinn?
„Auðvitað lifrarpylsan og svo eitthvað gott
á grillið.“
Hvað er það besta við að ferðast innan-
lands?
„Það jafnast auðvitað ekkert á við að
hoppa upp í bíl og keyra um landið og sjá
allar þessar frábæru náttúruperlur sem við
eigum. Þó svo að maður eigi á hættu að
verða étinn af ísbirni og ef maður sleppur
frá því er aleigan farin eftir að hafa sett smá
bensín á bílinn.“
Henrý Þór Reynisson, bakari
og eigandi verslunarinnar moods of Norway
Náttbuxur og Villi Vill
Í hverju finnst þér þægilegt að ferðast?
„Mér finnst best að ferðast í náttbuxum og
stórri, þykkri peysu.“
Velur þú þægindi fram yfir lúkkið?
„Augljóslega, já.“
Hvað er ómissandi í ferðalagið?
„Það eru spilin og Villi Vill.“
Besti ferðamaturinn?
„Það toppar ekkert hangikjötssamloku og
kókómjólk.“
Hvað er það besta við að ferðast innan-
lands?
„Hvað allt er fallegt. Sama hvort það er
rigning eða sól, nú eða snjór.“
Elfa Antonsdóttir, lærir lögfræði í Hr
og vinnur hjá vodafone