Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Qupperneq 7
DV Fréttir Miðvikudagur 2. jÚLÍ 2008 7
Þeir eru komnir!
við höfum sagt um samtökin,“ segir
Jóhann R. Benediktsson, lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum, en hann hef-
ur barist ötullega gegn landnámi
Vítisenglanna. Sennilega er Jóhann
með mesta reynslu í þeim málum en
hann hefur rekið þá heim alls fjórum
sinnum.
Hann segir þróun mála alvarlega
og undirstrikar hættuna sem staf-
ar af Vítisenglunum – þeir eru eng-
in lömb að leika sér við. Hann segir
baráttuna hafa harðnað við skipu-
lögð glæpasamtök og hann segir
málið óhugnanlegt.
Óhugnanlegt
„Þetta er óhugnanlegt, sérstak-
lega í ljósi þess að þeir sem hafa
kynnt sér samtökin af einhverri al-
vöru vita að virðing í hópnum eykst
eftir því sem glæpirnir eru alvar-
legri,“ segir Jóhann sem óttast það
sem hugsanlega getur orðið. Hann
segir það alvarlegar fréttir ef slík
samtök eru að skjóta varanlegum
rótum hér á landi.
„Þetta er skýrt dæmi um að við
verðum að herða okkur í baráttunni
gegn skipulögðum glæpasamtök-
um,“ segir Jóhann en tengsl Fáfn-
is við Vítisenglana eru fyrstu skýru
teiknin um að hér þrífist alþjóðlegur
glæpahringur.
Tilgangur samtakanna
Samkvæmt þeim heimildar-
mönnum sem rætt var við er
tilgangur slíkrar glæpastarfsemi að
sölsa undir sig fíkniefnamarkaði í
því landi sem klíkan hefur aðset-
ur. Vítisenglar í Evrópu hafi orðið
uppvísir að vopnasmygli, morðum
og fleiri brotum. Samkvæmt skand-
inavískum miðlum eru þeir einnig
stórtækir á fíkniefnamarkaðnum í
Evrópu og þá aðallega í tengslum við
hassinnflutning.
Enn er nokkuð í það að Fáfn-
ir hljóti fulla aðild að Vít-
isenglunum en svo
virðist sem ekk-
ert muni
koma í veg
fyrir að það
verði að
veruleika.
Jón Trausti Lúthersson
Einn af forsprökkum Fáfnis,
núna vítisenglanna.
Fjör í Fáfnisvirki Nokkrir
Fáfnismenn fá sér bjór eftir
langan vélhjóladag. jón
Trausti Lúthersson er við
enda myndarinnar.