Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Page 12
Miðvikudagur 2. jÚLÍ 200812 Neytendur DV Lof&Last n Lofið fær N1 fyrir að bjóða viðskiptavinum sínum upp á 10 krónu afslátt á bensíni í gær. Boðið var upp á þetta kjarabensín vegna opnunar nýrrar þjónustu- stöðvar að Bíldshöfða. Óskandi væri að tilboðið héldi áfram, en ætli verðið hækki ekki bara í staðinn. n Lastið fær domino‘s. viðskipta- vinur fór á Hjarðar- haga seinasta laugardag til þess að sækja pítsu sem hafði verið pöntuð. Pítsan hafði verið send á Nýbýlaveg og þurfti viðskiptavinurinn að bíða mjög lengi eftir að fá pítsuna sína, því það þurfti að búa til nýja. Ekki örvænta þó að fjármálin séu í lamasessi: Sparaðu á Spara.iS Á þessum síðustu og verstu tím- um þurfa allir að hugsa vel um pen- ingana sína. Margir eru komnir í öngstræti með peningamálin og al- gengt er að fólk skuldi mikið á yfir- drætti. En það er ástæðulaust að ör- vænta því hægt er að snúa þessu ferli við. Á vefsíðunni spara.is er margt að finna um sparnað. Þar er hægt að nálgast frítt vikulegt fréttabréf um fjármál og fjárfestingar. Að auki er hægt að komast að því hvaða nám- skeið eru í boði um fjármál. Hægt er að fá upplýsingar og kaupa bókina Þú átt nóg af peningum. Hægt er að panta ráðgjöf sem borgað er fyrir á radgjof@spara.is. Í tölvupóstinum er skýrt frá í örfáum orðum hvað þarf að laga og að hverju þú vilt stefna í fjármálunum. Þá er sent excel-skjal til baka sem er fyllt út. Því næst hitt- irðu ráðgjafana, Guðrúnu Kr. Jóns- dóttur og Ingólf H. Ingólfsson. Á klukkutíma er farið yfir hentugustu leiðirnar að markmiðunum. Þó að ráðgjöfin sé ekki ókeyp- is er það örugglega þess virði fyrir fólk sem stendur illa með fjármál sín. Sæbraut 177,40 193,80 Bensín dísel Skúlagötu 175,70 192,20 Bensín dísel Suðurströnd 177,40 193,80 Bensín dísel Dalvegi 175,60 192,10 Bensín dísel Melabraut 175,70 192,20 Bensín dísel Salavegi 175,70 192,20 Bensín dísel Stórahjalla 175,90 192,30 Bensín díselel d sn ey t i Varast ber fjölmarga bankareikninga sem eru með lægri vexti en því sem verðbólgan nemur. Mesti hagnaðurinn er á verðtryggðum bankareikningum þar sem innistæðan hækkar í réttu hlutfalli við verðbólguna og þar að auki bætast vextirnir við. TÖPUM Á SPARNAÐI Vinningshafar vinningshafar dagsins 30. júní. Þeir hlutu í verðlaun tíu þúsund króna inneign í Bónus. dv óskar þeim innilega til hamingju. Guðrún H. Hermannsdóttir Hrafnhildur Einarsdóttir Jakob Jóhannsson P. Gunnlaugur Þórdís Marteinsdóttir Tugir þeirra reikninga sem bankarn- ir bjóða viðskiptavinum sínum upp á eru með svo lágum vöxtum að fólk tapar fé á viðskiptunum. Ástæðan er sú að vextir bankanna eru lægri en verðbólgan sem nú er komin í 12,7 prósent. Ef 100.000 krónur eru geymd- ar í ár á reikningi með 5,50 prósent vöxtum tapast 7.200 krónur eftir árið miðað við 12,7 prósent verðbólgu. Áhættuminnst er að leggja pening- ana inn á verðtryggða reikninga því þá er öruggt að verðbólgan éti ekki upp hluta af peningunum. Verð- tryggðir reikningar gefa örugga vexti og upphæðin skerðist ekki vegna verðbólgunnar. Hins vegar verða peningarnir að liggja óhreyfðir frá þremur árum inni á verðtryggðum reikningum. Raunvextir alltaf neikvæðir Ingólfur H. Ingólfsson fjármála- ráðgjafi bendir á að allir raunvext- ir á almennum bankabókum hafa verið neikvæðir svo lengi sem elstu menn muna. „Þetta er í rauninni ekkert nýtt fyrirbæri,“ segir Ingólfur. „Ef maður setur sig í spor almenns viðskiptavinar bankans opnar hann debetreikning og sparireikning. Þessi sparireikingur sem maður fær sjálfvirkt er almenn sparisjóðsbók. Bankarnir bjóða upp á alls konar sparnaðarform, en ef þú ætlar að fá eitthvað annað en þessa almennu sparisjóðsbók þarftu að biðja um það, þú þarft að biðja um hávaxta- reikning.“ Þarft að biðja um betra Ingólfur bendir einnig á að rann- sóknir úr hagfræðinni sýni að fólk taki helst það sem er sjálfvirkt. Flest- ir taka það sem þeir fá án þess að velta frekar vöngum yfir því. „Til að fá eitthvað betra þarftu að biðja um það og maður þarf alltaf að hafa eitt- hvað fyrir því að fá betri kjör. Það er nú bara almennt lögmál í við- skiptum, þú færð ekkert gott nema þú biðjir um það. En þó held ég að meirihluti almennings velti ekki sér- staklega vöngum yfir þessu,“ segir Ingólfur. TyRknEskT PoPPTyGGJó „vinkona mín lenti í því að fá tyrkneskan tyggjó- pakka í Maxi-popppoka sem var mjög spes,“ segir viktor Bjarki arnarsson, atvinnumaður í knatt- spyrnu. „Það var tyggjóbragð af poppinu. Þeir vilja meina að þeir hafi verið að gefa frítt tyggjó en það var hvergi auglýst og við höfum ekki fengið aftur tyggjó í Maxi-popppoka. Þegar vinkona mín spurði hvort það væri hægt að gera eitthvað fyrir hana var svarið: gáfum við þér ekki tyggjópakka?“neytendur@dv.is uMsjÓN: ásdÍs Björg jÓHaNNesdÓttir asdisbjorg@dv.is Neyten ur neytandinn ásTRún fRiðbJöRnsdóTTiR blaðamaður skrifar astrun@dv.is „Verðbólgan getur étið upp peningana þína.“ Glitnir n tékkareikningur: 6,95 prósent vextir n vild: 10,45 prósent vextir n gullvild: 11,70 prósent vextir n Námsvild: 6,35 prósent vextir n uppleið/grunnþrep: 12,10 prósent vextir n vaxtaþrep/grunnþrep: 11,17 til 11,70 prósent vextir kaupþing n debetkortareikningur: 6,30 prósent vextir n gullkjarareikningur: 10,65 prósent vextir n sérkjarareikningur: 11,65 prósent vextir n unglinga- og námsmannareikning- ar: 10,65 prósent vextir n Útgjaldareikningur:11,65 prósent vextir n sparisjóðsreikningur: 6,30 prósent vextir n gullbók: 10,65 til 11,65 prósent vextir n Metbók: 11,65 til 12,65 prósent vextir n kostabók/1. skref 0-3 mánuðir: 11,65 prósent vextir. n Markaðsþrep/1. þrep 0-250.000 krónur: 11,65 prósent vextir. byr n silfur tékkareikningur: 6,25 prósent vextir. n gull tékkareikningur með innistæðu að 500 þúsund: 8,85 prósent vextir n Þrepareikningur/grunnþrep: 8,25 prósent vextir n Þrepareikningur/6-12 mán til 30-36 mán: 9,30 prósent vextir til 12,55 prósent vextir n trompreikningur laus: 9,15 prósent vextir n trompreikningur 12 mán: 10,80 prósent vextir n trompreikningur 24 mán: 12,60 prósent vextir n almennir sparireikningar: 5,50 prósent vextir n almennir tékkareikningar: 6,00 prósent vextir n sÉr- tékkareikningar: 6,05 prósent vextir n greiðslujöfnunarreikningar: 9,20 prósent vextir n Námsmenn: 10,70 prósent vextir Landsbankinn n almennar sparisjóðsbækur: 5,50 prósent vextir n kjörbækur, 1. þrep: 12,65 prósent vextir n almennir tékkareikningar: 5,45 prósent vextir n einkareikningar: 5,50 prósent vextir n Námu- og klassareikningar: 10,75 prósent vextir n vörðureikningar, 1. þrep 0-250.000 krónur: 10,75 prósent vextir VaRasaMiR REikninGaR Glitnir n verðtryggðir sparireikningar frá 4,50 til 7,55 prósent vextir. kaupþing n verðtryggðir reikningar frá 4,50 til 7,55 prósent vextir. byr n verðtryggðir reikningar frá 6,95 til 7,65 prósent vextir. Landsbankinn n verðtryggðir reikningar frá 6,70 til 7,55 prósent vextir. öRuGGiR REikninGaR BYR - sparisjóð ur | Sími 575 4000 | www. byr.is MY PHOTOS Home The Tour Sign Up Explore Search View as slid eshow ( New windo w ) Sign In You aren’t s igned in Search Sigg i’s photos Siggi’s phot os Help Collections Sets T ags Map Archives Favorites Profile Þangað fer r uslið MITT! ÉG á hana! Útsýnið mað ur! Uploaded on Apr 15, 2007 1 comments All rights rese rved. c Uploaded on Apr 15, 2007 6 comments All rights rese rved. c Uploaded on Apr 15, 2007 15 comment s All rights rese rved. c Mín íbúð...m ín...mín...! Hér fer sófin n, tv og PS3! Hér grillum v ið strákar! Fínt og það v irkar! Ok...vantar s má hjálp:-0 Stutt í bæinn !!! Íbúðalán fyrir þig! Uploaded on Apr 15, 2007 7 comments All rights rese rved. c Uploaded on Apr 15, 2007 11 comment s All rights rese rved. c Uploaded on Apr 15, 2007 2 comments All rights rese rved. c Uploaded on Apr 15, 2007 0 comments All rights rese rved. c Uploaded on Apr 15, 2007 3 comments All rights rese rved. c Uplo ded on Apr 15, 2007 12 comment s All rights rese rved. c Hafðu samban d í síma 575 40 00 eða á byr.is og við hjálpum þér að eignast þína eigin íbúð *. Og það verður nýja íbúðin þín , bara þín! http://www.m yphotos.com /siggi dýrt spaug Byr og Landsbankinn bjóða báðir upp á 5,50 prósent vexti. Vextir Peningar geta fuðrað upp vegna óhagstæðra vaxta. ingólfur H. ingólfsson einn af ráðgjöfum spara.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.