Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Síða 21
Marko Pavlov er 20 ára íslenskur ungl-
ingalandsliðsmaður af makedónsk-
um uppruna. Hann fluttist til Íslands
þegar hann var tíu ára með foreldrum
sínum en faðir hans, Dragi Pavlov, er
þekktur knattspyrnumaður í heima-
landinu og hefur starfað við þjálfun á
Íslandi síðan hann kom. Marko leik-
ur nú með varaliði Real Betis á Spáni.
Samkvæmt fréttum frá Makedóníu er
Marko við það að komast í aðallið-
ið hjá þessu fornfræga Andalúsíu-fé-
lagi. Marko var vægast sagt atvinnu-
mannslegur þegar DV spurði hann út
í málið í gær. „Við erum í því að semja
um framlengingu á samningnum en
meira segi ég ekki og vísa öllu á um-
boðsmanninn minn,“ sagði Marko við
DV í gærdag en ekki náðist í blessað-
an umboðsmanninn
Marko hóf sinn feril með Stjörn-
unni í Garðabæ en fór þaðan til
franska 2. deildar liðsins Caen árið
2005. eftir eitt ár þar hafði hann vista-
skipti til Spánar, nánar til tekið Real
Mallorca þar sem hann gerði ungl-
ingasamning og lék með U18 ára liði
félagsins. Þegar Mallorca vildi svo
lána hann til 3. deildar liðs ákvað
hann að stökkva á tækifærið að
leika með varaliði Real Betis
með það í huga að brjótast inn
í aðalliðið. Makedónar fylgjast
vel með framgangi Markos og
vona að hann ákveði að leika með
landsliði þeirra en ekki Íslands en
hann hefur þann möguleika. Þeir
segja spænska útsendara kalla
hann hinn næsta Xabi Alonso sem
leikur með Liverpool á Eng-
landi.
Ekki fengið
tækifæri með U21
Þegar DV hafði
samband við föður Markos, Dragi
Pavlov, fór hann ekki í grafgötur með
það að einhver óánægja væri hjá
Marko og fjölskyldunni vegna fárra
tækifæra með U21 árs landsliði
Íslands en Marko á að baki 11
leiki með U19 ára landslið-
inu. Marko sjálfur vildi ekk-
ert ræða um það þegar DV
spurði hann út í málið og
vísaði áfram öllu
til umboðs-
manns síns.
„Það er
einfaldlega
mikil sam-
keppni í liðinu,“ sagði þjálfari U21árs
landsliðsins, Luka Kostic, við DV í
gær spurður um málið. „Ég sé hann
heldur aldrei með sínu liði og upplýs-
ingaflæðið frá Betis er ekki gott. Ég hef
haft samband við félagið og beðið um
upplýsingar um leiki og fleira en þau
tala nú ekkert bestu ensku í heimi og
hafa ekkert sent mér,“ sagði Luka og
ítrekaði hversu mikil samkeppni væri
í liðinu.
„Það sést hversu öflugir leikmenn
eru í U21 árs liðinu því við erum að
skila mörgum upp í A-landsliðið.
Marko hefur til dæmis ekki tekið jafn-
stór skref hjá sínu liði eins og Birkir
Bjarnason, Theódór Elmar Bjarnason
og Rúrik Gíslason svo einhverjir séu
nefndir. Þeir eru allir orðnir lykilmenn
hjá sínum liðum,“ sagði Luka. „Marko
er ungur og óþolinmóður enda metn-
aðargjarn strákur,“ sagði Luka kátur
og tók skýrt fram að því færi fjarri að
Marko ætti ekki möguleika á að kom-
ast í U21 landsliðið.
Með þrefalt vegabréf
Eins og áður segir fylgjast Make-
dónar grannt með framvindu mála
hjá Marko Pavlov og vonast til þess að
hann ákveði að leika með A-landsliði
þeirra. Makedónskir miðlar vilja ekki
að annað mál komi upp eins og
með annan leikmann
að nafni Goran
Slavkovksi sem
er sænskætt-
aður Make-
dóni og er
mikið
stríð
á
milli Makedón-
íu, Króatíu og
Svíþjóðar um
hvaða lands-
liði hann
muni leika
með.
Þegar
DV spurði
Mar-
ko beint
hvort
hann
væri
svekkt-
ur út í
Luka og
U21 árs
lands-
liðið
yfir því
að vera
aldrei val-
inn sagði
hann: „Ég
er með þre-
falt vegabréf
þannig að
ég er í nokkuð
góðum málum
hvað varðar fram-
tíðina,“ og benti á
endanum aftur á um-
boðsmann sinn.
miðvikudagur 2. júlí 2008 21DV Sport
Sport LaMpard tiL intEr „Ég er hundrað prósent viss um að Frank lampard verði leikmaður inter á næsta ári,“ segir jose mourinho, knattspyrnustjóri inter, um sinn fyrrverandi læri-svein. Portúgalinn er alveg viss um að lampard muni koma til sín en býst ekki við að það verði fyrir komandi tímabil. „lampard á eftir eitt ár af samningnum sínum þannig að það verður auðveldara fyrir hann að koma næsta sumar. Fyrir tímabilið 2009/2010 verður Frank lampard orðinn leikmaður inter. Það er ég alveg viss um,“ segir mourinho.
ÚRSLIT
landsbankadeild kvk
Fjölnir - KR 0-5
0-1 Hólmfríður Magnúsdóttir
0-2 Hrefna Huld Jóhannesdóttir
0-3 Olga Færseth
0-4 Hrefna Huld Jóhannesdóttir
0-5 Hrefna Huld Jóhannesdóttir
Afturelding - Keflavík 1-0
1-0 Elín Svavarsdóttir
HK/Víkingur - Breiðablik 2-5
0-1 Gréta Mjöll Samúelsdóttir
0-2 Fanndís Friðriksdóttir
0-3 Harpa Þorsteinsdóttir
0-4 Fanndís Friðriksdóttir
1-4 Berglind Bjarnadóttir
2-4 Lidija Stojkanovic
2-5 Sigríður Björk Þorláksdóttir
Valur - Fylkir 4-1
1-0 Katrín Jónsdóttir
1-1 Lizzy Karoly
2-1 Dóra María Lárusdóttir
3-1 Dóra María Lárusdóttir
4-1 Helga Sjöfn Jóhannesdóttir
Staðan
Lið L U J t M St
1. valur 8 8 0 0 33:5 24
2. kr 8 7 0 1 25:6 21
3. Stjarnan 7 4 2 1 15:6 14
4. umFa 8 3 2 3 5:6 11
5. keflavík 7 2 2 3 10:20 8
6. Breiðabl. 8 3 1 4 16:13 10
7. Þór/ka 7 2 1 4 10:14 7
8. Fylkir 8 2 0 6 1:21 6
9. Hk/vík. 8 1 2 5 7:17 5
10. Fjölnir 8 1 2 5 5:23 5
MOLAR
BatE aftUr tiL ÍSLandS
valsmenn voru óheppnir þegar dregið
var í forkeppni meistaradeildar Evrópu
í gærdag. íslandsmeistararnir drógust
gegn liðinu BaTE
Borisov frá Hvíta-
rússlandi en
það kom einnig
hingað til lands
í fyrra. Þá léku
Hvít-rússarnir
við þáverandi ís-
landsmeistara FH
og fóru létt með
Hafnfirðingana.
BaTE vann 3-1 í kaplakrika sem var helst
til of lítill sigur en FH-ingar gerðu vel úti
og náðu 1-1 jafntefli. Það voru mörg önn-
ur lið í drættinum sem hefðu verið betri
kostur fyrir val en heppnin var ekki með
Hlíðarendapiltum.
City Ekki tiL LandSinS
ía mætir ekki manchester City í fyrstu
umferð Evrópukeppni félagsliða en
möguleiki var á því. ía mætir Honka frá
Finnlandi en FH
mætir liði frá lúx-
emborg.
FH var fyrst úr
hattinum og
dróst gegn liðinu
grevenmacher
frá lúxemborg.
Skemmst er frá
því að segja að
ekki er mikið vit-
að um liðið. Það hefur einu sinni unnið
deildina í heimalandinu, árið 2003, og
sjö sinnum verið í öðru sæti. ía mætir
finnska liðinu Honka sem komst í fyrsta
skiptið upp í finnsku úrvalsdeildina árið
2005 og eru allir leikmenn á mála félags-
ins frá Finnlandi. manchester City dróst
gegn færeyska liðinu EB/Streymur og
Sigurður jónsson og félagar í djurgarden
mæta Flora frá Eistlandi.
HaUkar fEngU CyprUS CoLLagE
Það vantaði ekki drættina úti um allan
heim í gær en ásamt knattspyrnunni var
einnig dregið í forkeppni meistaradeild-
ar Evrópu í handbolta. íslandsmeistarar
Hauka voru í pottinum og það í efri styrk-
leikaflokki. Haukamenn drógust gegn
kýpverska liðinu Cyprus Collage sem ekki
er mikið vitað um. Fyrri leikurinn verður
ytra 6. eða 7. september og og sá síðari
að Ásvöllum 13. eða 14. september.
VIÐ DYRNAR
HJÁ AÐALLIÐI
REAL BETIS
Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Marko pavlov er í samningaviðræðum við Real
Betis á Spáni um framlengingu á samningi hans. Hann hefur leikið með varaliðinu síð-
asta árið. Hann á að baki 11 leiki með U19 ára landsliðið Íslands og fleiri með enn yngri
landsliðum en hefur ekki fengið tækifæri með U21 árs landsliðinu.
tÓMaS ÞÓr ÞÓrðarSon
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
aron Einar gUnnarSSon Er
einn af u21 árs landsliðsmönnunum
sem brotist hafa inn í a-landsliðið.
Marko pavLov
vísar öllu á umboðs-
manninn sinn.
LUka koStiC Segir marko
vel eiga möguleika á að
komast í u21 árs landsliðið.
mynd úr EinkaSaFni
mynd HaFliði BrEiðFjörð