Frjáls verslun - 01.04.2008, Qupperneq 22
22 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 8
Hann sagði aðdragandann
ekki hafa verið langan. „Það var
stjórnarfundur í SPRON í dag
og inn á fundinn barst bréf frá
Kaupþingi þar sem þeir óska
eftir því að hafnar verði við-
ræður,“ sagði Guðmundur við
Vísi.
Kauphöll Íslands.
2. maí
Fjórða afskráningin
í Kauphöllinni
Vindar blása um hlutabréfmark-
aðinn. Sagt var frá því að
afskráning FL Group yrði sú
fjórða á árinu. Hin fyrirtækin
eru Vinnslustöðin, Icelandair
Group og Skipti sem öll verða
afskráð fyrir árslok. Raunar má
reikna með að afskráningarnar
verði fimm fari svo að SPRON
og Kaupþing sameinist.
6. maí
„Þolum þetta
ekki lengi“
jón Steinar Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins, sagði í samtali við
Fréttablaðið að margir verktakar
hefðu þurft að stöðva fram-
kvæmdir vegna lánsfjárskorts
og að það styttist í að eitthvað
láti undan með sama framhaldi.
„Við þolum ekki svona ástand
D A G B Ó K I N
TExTI: JóN G. HaUkSSoN • MyNDIR: GEir óLaFSSoN o.fl.
27. apríl
BjörgólFur Thor 29. ríKasTi í BreTlandi
Björgólfur Thor Björgólfsson
heldur sínu striki á lista
Sunday Times yfir ríkustu
menn sem búa í Bretlandi.
Hann er í 29. sæti listans en
var í fyrra í 23. sæti. Blaðið
metur eignir hans á 2,07
milljarða punda eða um 300
milljarða króna.
Þeir bræður í
Bakkavör, Lýður og Ágúst
Guðmundssynir, falla hins
vegar niður listann. Þeir eru í
213. sæti að þessu sinni en
voru í fyrra í 53. sæti. Eignir
þeirra núna eru metnar á
tæpa 60 milljarða króna.
Björgólfur Guðmundsson.
25. apríl
Björgólfur
vill þjóðarsjóð
Það vakti mikla athygli þegar
Björgólfur Guðmundsson, stjórn-
arformaður Landsbankans, sagði
í ræðu sinni að Íslendingar ættu
að koma sér upp þjóðarsjóði.
Hann sagði að slíkur sjóður ætti
að verja efnahagslífið og hag-
stjórn fyrir svipuðum áföllum
og dunið hefðu yfir undanfarna
mánuði þar sem mjög hefði
reynt á krónuna sem gjaldmiðil.
„Ég er þeirrar skoðunar
að ef við Íslendingar viljum
halda áfram á þeirri braut að
taka fullan þátt í viðskiptum á
alþjóðamarkaði, halda áfram að
auka tekjur okkur af viðskiptum
við útlönd, halda sjálfstæðri
efnahagsstjórn og eiga kost á
eigin gjaldmiðli, þá sé okkur
nauðsynlegt að koma okkur upp
mjög öflugum varasjóði,“ sagði
Björgólfur í ræðu sinni.
Hann minntist á íslenska líf-
eyrissjóðakerfið þar sem hver og
einn hefði lagt fyrir en bætti því
við að þjóðin sem slík ætti að
sýna sömu fyrirhyggju.
Þá sagði Björgólfur að jafnvel
þótt við yrðum hluti af stærra
peningakerfi og tækjum upp
stöðugri mynt þá væri hann ekki
frá því að bjartsýni, ákafi og
áhættusækni Íslendinga myndi
eftir sem áður skapa þrýsting
á efnahagskerfi okkar. „Þá yrði
ekki síður mikilvægt að eiga
varasjóð til að vinna gegn skað-
legum sveiflum í búskap okkar.“
30. apríl
Kaupþing og sPron
Þennan dag var tilkynnt að
viðræður um sameiningu
Kaupþings og SPRON væru
hafnar. Haft var eftir Guðmundi
Haukssyni, forstjóra SPRON, á
Vísi að frumkvæðið að samein-
ingaviðræðunum hefðu komið
frá Kaupþingi.
23. apríl
guðjón forstjóri hamley´s
Úr matvöru í leikföng. En þennan dag var sagt frá því að
Guðjón Karl Reynisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
10-11, hefði verið ráðinn forstjóri bresku leikfangakeðjunnar
Hamley´s og tæki við starfinu af Nick Mather í byrjun maí.
Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group, sagði í viðtali
við Morgunblaðið um reynsluleysi Guðjóns á leikfangamark-
aðnum að það kæmi ekki að sök þar sem öflugt og ferskt
lið, sem þekkti geirann inn og út, væri hjá Hamley´s. Guðjón
hefði hins vegar verið ráðinn vegna reynslu hans af rekstri,
ferskleika og dugnaðar – og þeir eiginleikar kæmu sér vel fyrir
Hamley´s og því stjórnunarteymi sem þar væri.