Frjáls verslun - 01.04.2008, Blaðsíða 59
sumarið er tíminn ...
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 8 59
sumarið er tíminn ...
Elísabet Einarsdóttir, starfsmanna-
stjóri hjá Ölgerðinni, bjó erlendis í 10
ár þar sem hún nam fjámálastjórn,
alþjóðaviðskipti og sálarfræði. Hún
segist meta Ísland betur eftir að hún
flutti aftur heim og nefnir sérstak-
lega hina einstöku náttúru, birtuna
og hið seiðmagnaða landslag. Þetta
þrennt kallar á útivistaráhuga.
„Ég geng einu sinni í viku upp
Esjuna en þá endurnýjast ég á sál
og líkama. Þarna er streitulaust
umhverfi og þetta er hin besta
slökun. Maður endurnýjar orkuna og
fyllist krafti við að komast úr hávaða-
num og stressinu sem við lifum í.“
Þá má geta þess að Elísabet fer
víðar í gönguferðir á sumrin og er
stefnan tekin á Fimmvörðuháls og
Hornstrandir í sumar.
golfbakterían kviknaði á sínum
tíma og spilar starfsmannastjórinn
golf í hverri viku. Elísabet er jú í
guðsgrænni náttúrunni þegar hún
slær kúluna.
Gönguferðir:
Hin einstaka náttúra
Elísabet Einarsdóttir. „Ég geng einu sinni í viku upp Esjuna
en þá endurnýjast ég á sál og líkama. Þarna er streitulaust
umhverfi og þetta er hin besta slökun.“
Laxveiði:
Í hjúpi náttúrunnar
María Maríusdóttir, eigandi verslunarinnar drangey, byrjaði í laxveiði
fyrir tveimur árum. Hún hafði áður stundað silungsveiði en hún
segir að laxveiðinni fylgi allt öðruvísi tilfinning.
„Silungsveiðinni fylgir kyrrð, ró og fuglasöngur en maður verður
spenntur í laxveiðinni. Hún er meira ögrandi. Það er meira spen-
nandi að veiða við á en við vatn.“
Burtséð frá þessu þá segir María að veiðin gefi sér algjöra
hugarró. „Það kemst ekkert annað í kollinn en náttúran og friðsæl-
din í kring. Náttúran setur á mann hjúp og ekkert kemst þar inn
fyrir.“
María hefur aðallega verið í laxveiði í Krossá norður á
Ströndum. „Þar liggja rætur mínar og þar af leiðandi þykir mér
vænt um Strandirnar.“
Maríulaxinn var níu pund en stærsti laxinn, sem María hefur
veitt, var 14 pund.
Hvað matreiðsluna á laxi áhrærir segir María að því einfaldari
matreiðsla því betri verði laxinn. „Ég legg meira upp úr meðlætinu,
set laxinn með ýmsu góðgæti í álpappír og legg á grill.“
María Maríusdóttir. „Silungsveiðinni fylgir kyrrð, ró og fuglasöngur
en maður verður spenntur í laxveiðinni. Hún er meira ögrandi. Það er
meira spennandi að veiða við á en við vatn.“