Iðnaðarmál - 01.01.1978, Page 9
IÐNAÐARMAL
1. TBL. 25. ÁRG. 1978
( ^
EFN I
Langtímaáætlanir um rann-
sóknir og þróunarstarfsemi
í þágu atvinnuveganna 3
Múrhúðun 4
Rafsi ........................ 6
Þróun og smíði rafeindatækja
á íslandi .................. 7
Listiðnaður - Design 11
Nýjungar í íslenskum veiðar-
færaiðnaði................. 15
Blýteinatógið veldur byltingu
í netaveiðum 15
Sterkir bobbingar framleiddir
í Odda.................... 19
Flothringjaframleiðsla færist
inn í landið - Keyptum áður
af Norðmönnum - seljum
þeim nú 20
Danska uppgötvaraskrifstofan 22
Heilsufar og stjórnun 25
Þróun - Tækni - Nýjungar 30
Nýjar bækur í Tæknibóka-
safni 2 og 32
V_________________________________J
\
Útgefandi:
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Ritstjórn:
Sveinn Björnsson (áb.)
Ásbjörn Einarsson
Guðjón Sv. Sigurðsson
Hörður Jónsson
Jón Bjarklind
Ritstjóri:
Magnús Bjarnfreðsson
Útlit:
Stefán Snæbjörnsson
Setning og prentun:
PRENTSMIÐJAN HÓLAR HF.
V______________________________)
Langtímaáœtlun um rannsóknir
og þróunarstarfsemi
í þágu atvinnuveganna
„Árið 1972 ákvað Rannsóknaráð ríkisins að gera langtíma-
áætlun um þróun vísinda. Var gert ráð fyrir því að áætlun þessi
næði til áranna 1976—1981 og yrði fyrir rannsóknir í þágu at-
vinnuveganna. Ekki var talið kleift í þessari fyrstu tilraun að
hafa áætlunina víðtækari.
Markmiðið með slíkri langtímaáætlun er fyrst og fremst að
efla rannsóknastarfsemi í þágu atvinnuveganna með því að
tengja rannsóknastörfin betur en verið hefur við þarfir atvinnu-
lífsins. Þetta er gert með því að athuga þróun atvinnuveganna
og þjóðfélagsleg markmið og ákveða síðan með tilliti til slíks
forgangsröðun verkefna hjá rannsóknastofnunum.
Áætlun þessi er unnin að nokkru eftir norskri fyrirmynd. Þar
eru slíkar áætlanir orðnar fastur liður í stjórn rannsókna. Þær
eru kynntar á Stórþinginu og verða þáttur í stefnu ríkisstjórn-
ar. Hefur þetta gefið mjög góða raun.“
Þessi tilvitnun er úr formálsorðum að langtímaáætlun um
rannsóknir og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna, sem
kynnt var sérstaklega á ársfundi Rannsóknaráðs ríkisins 19.
maí 1978 í Háskólabíói.
Á næstunni er ætlunin að kynna þessa áætlun eftir föngum.
Eru lesendur Iðnaðarmála hvattir til að kynna sér áætlunina.
Verkefnaval og stefnumótun stofnana, sem kostaðar eru af
opinberu fé og koma eiga atvinnulífinu til góða, eru vissulega
áhugaverð fyrir alla, sem á annað borð láta sig þróun atvinnu-
veganna skipta máli. í langtímaáætluninni er í fyrsta skipti
leitast við að setja fram forgangsröðun verkefna í stofnunum,
sem starfa að rannsóknum í þágu atvinnuveganna, þannig að
tekið sé mið af þjóðhagslegum markmiðum.
Hér á iðnaðurinn vissulega hlut að máli og væri því æski-
legt, að þeir sem í iðnaði starfa kynntu sér það, sem áætlunin
segir um rannsóknir og þróunarstarfsemi á því sviði.
Sveinn Björnsson.
IÐNAÐARMÁL
S. B.
3