Iðnaðarmál - 01.01.1978, Qupperneq 16

Iðnaðarmál - 01.01.1978, Qupperneq 16
Mynd 8 bætt. Hliðstæð þróun mun vafalitið verða í frysti- húsum sjávarútvegsins á komandi árum. Ætla má að þessi tækni geti fært okkur 2-3 milljarða króna árlega í bættri hráefnisnýtingu auk þess sem marg- víslegur vinnusþarnaður mun fylgja þessu. Hér vaknar áleitin spurning: Verður þetta verk- efni sem og mörg hliðstæð leyst af erlendum tækja- samstæðum eða munu íslenskir tæknimenn hanna tækin og íslenskar hendur setja þau saman. Hér bíður okkar einstakt tækifæri til að efla þjóðina tæknilega, fá ódýrari og betri lausn, spara milljarða króna í erlendum gjaldeyri og skapa nýja atvinnu- möguleika. Við getum byggt upp töluverðan raf- eindaiðnað hér á landi sem fyrst og fremst byggist á innlendum verkefnum, og takist þetta vel eru allar líkur fyrir því að eitthvað af þessum tækjum megi selja til annarra landa. Þá er og liklegt að þetta gæti leitt til þess að ýmis rafeindatæki, sem hönnuð eru erlendis, verði sett saman hér á landi. Loks má einn- ig benda á að slíkur rafeindaiðnaður mundi vafalítið leiða til umtalsverðra smíða í málmiðnaði: sérstök færibönd, ýmsar sjálfvirkar vélar o ,fl. Rafeindaiðnaður er hreinlegur, hann mengar ekki, hann krefst breiðrar þekkingar og reynslu, allt frá handlægni til umfangsmikillar þekkingar í raf- eindaverkfræði. Þessi iðnaður er ekki dýr í stofn- kostnaði. 100 tonna vélbátur kostar um 300 milljónir króna. Fyrir um helming þessarar upphæðar mætti byggja upp myndarlegt rafeindafyrirtæki sem gæti leyst þýðingarmikil verkefni og skilað arði á við besta fiskibát. Við eigum á að skipa hóp af góðum útvarpsvirkj- um, símvirkjum, tæknifræðingum og verkfræðingum til að vinna að lausn þessara verkefna. Okkur er því ekkert að vanbúnaði. Og ég endurtek því, að við getum og við eigum að taka virkan þátt í hönnun og smíði ýmissa þeirra rafeindatækja sem notuð verða hér á landi á komandi árum. Nú er tækifærið til að hefjast handa. Mynd 9 Með því að beita nýþróaðri raf- eindatækni í frystihúsum má sennilega auka verðmæti afurð- anna um 3000 milljónir króna á ári. Þetta verkefni geta í.slenskir tæknimenn leyst og getur það lagt grundvöll að álitlegum raf- eindaiðnaði hér á landi. Ef við viljum grípa þetta tækifæri þarf að vinna fljótt og markvisst að lausn þess, ella missum við það til erlendra aðila. 10 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.