Iðnaðarmál - 01.01.1978, Page 19
á kostnað annarra undirstöðuatriða, s. s.
vöruþróunar og hönnunar — forsendu þess
að framleiða frambærilega og seljanlega
vöru.
Fyrir liðlega tíu árum bentu áhugamenn
um listiðnað og iðnhönnun á nauðsyn þess
að hafnar yrðu aðgerðir til eflingar og auk-
ins skilnings á hönnunarsviðinu og með því
reynt að fylla í augljósa eyðu á alltof mörg-
um sviðum í íslenskum framleiðsluiðnaði.
Það væri því ómaklegt að segja annað en að
umræða um þessi mál hafi verið hin jákvæð-
asta, einkum við upphaf Efta aðildar. Hönn-
unar- og vöruþróunarþátturinn var þó aldrei
tekinn þeim tökum sem æskilegt hefði ver-
ið, hvorki af iðnaðinum né opinberum að-
ilum og því miður verður ekki annað sagt en
að við stöndum í svipuðum sporum og þá.
Flest það, sem sagt var um stöðu og æski-
legar aðgerðir á þessu sviði á jafn vel við
nú og fyrir EFTA aðild.
Það verður með einhverjum hætti að
knýja á um það að íslenskur iðnaður beini
sjónum að vöruþróunarsviðinu þannig að
íslensk framleiðsla verði stolt hvers íslend-
ings, að hann velji íslenskt vegna þess að
það sé jafngott eða betra en erlent.
Myndirnar hér á opnunni eru frá sýningu
félagsins Listiðnaðar 1976. Listiðnaðar-
menn hafa á ýmsan hátt reynt að vekja at-
hygli á mikilvægi hönnunarsviðsins fyrir ís-
lenskan iðnað, en hafa sætt óverðskuldaðs
tómlætis þeirra er málið varðar. - s. s.
IÐNAÐARMÁL
13