Iðnaðarmál - 01.01.1978, Blaðsíða 20
Opna i syningarskrá A. Aalto, Finniandíahús Pompidou
LISTIÐNAÐUR
design
IÐNHÖNNUN
Finnskur listiðnaður og byggingarlist í Pompidou
Nýlega, eða nánar tiltekið 4. októ-
ber s.l., var opnuð í Pompidou-
safninu í París viðamikil yfirlitsýn-
ing er kynnir finnskan listiðnað og
byggingarlist, en Finnar hafa lengi
vakið á sér athygli fyrir kjarnmik-
inn listastíl sinn, ekki hvað síst á
sviði nytjalista. Sýning þessi rekur
þróun byggingarlistar og listiðnað-
ar í Finnlandi s.l. 100 ár eða svo,
eða frá þeim tíma er Louis Sparre
og Akseli Gallen Kallela, sem taldir
eru frumherjar við vakningu finnsks
listiðnaðar störfuðu. Finnskur list-
iðnaður byggist á þjóðlegri arf-
leifð og hafði varðveist í afskekkt-
um og dreifðum byggðum landsins.
Frumherjastarf þeirra félaga var
fyrst og fremst í því fólgið að leita
uppi gleymdar hefðir og aðferðir
og leggja með þvígrundvöll að nýju
gildismati á því sviði sjónmennta
sem við köllum nytjalistir. Sýning-
in í Pompidou-safninu er ótæk
sönnun þess hverja áherslu Finnar
leggja á kynningu finnsks listiðn-
aðar og hvers konar hönnunar,
enda ekki aðeins í því fólginn mik-
ill söluhvati fyrir finnskar fram-
leiðsluvörur, heldur er slík sýning
til þess fallin að vekja almenna at-
hygli á landinu, menningu þess og
þjóðlífi. - S. S.
14
IÐNAÐARMÁL